Lífið

Saga Sig og Villi nagl­bítur eignuðust dóttur

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Saga Sig og Villi Naglbítur eignuðust dóttur í september, annað barn þeirra saman.
Saga Sig og Villi Naglbítur eignuðust dóttur í september, annað barn þeirra saman. Vísir/Sylvía

Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir og tónlistarmaðurinn Vilhelm Anton Jónasson, betur þekktur sem Villi naglbítur, eignuðust dóttur þann 27. september síðastliðinn. Fyrir á parið saman soninn Hring og svo á Villi tvo syni úr fyrra sambandi.

„Dóttir okkar Sögu mætti yfirveguð og fullkomin þ. 27.09.26 kl. 12:34,“ skrifar Villi í færslu á samfélagsmiðlum og birtir nokkrar myndir af dótturinni.

„Hjartað stækkaði og hún er afar mikið elskuð,“ skrifaði hann jafnframt.

Saga og Vilhelm hafa verið par frá árinu 2019 og eignuðust saman soninn Hring í mars árið 2023. Listin er allsráðandi á heimilinu en þau hafa boðið gestum og gangandi í opna vinnustofu sem þau halda saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.