Umræðan

Skila­boð Trumps til Úkraínu eru nú skýrari en nokkru sinni fyrr

Anne Applbebaum skrifar

Á síðustu 72 klukkustundum hefur Donald Trump hætt allri sýndarmennsku, kollvarpað bandarískri utanríkisstefnu sem mótast hefur á undanförnum tveimur áratugum og grafið undan sínum eigin friðarumleitunum síðustu átján mánaða. Hann hefur aflétt viðskiptaþvingunum á innflutning rússneskrar dísilolíu, þvert á bæði orðalag og tilgang laga sem hann sjálfur undirritaði. Hann hefur hótað að hætta að miðla leyniþjónustuupplýsingum til Úkraínu nema Úkraínumenn fallist á að hætta árásum á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar. Þar með krefst hann þess að stjórnvöld í Kænugarði afsali sér áhrifaríkasta vopni sínu án þess að fara fram á nokkrar tilslakanir af hálfu Rússa á móti. Hann hefur ekki gagnrýnt árásir Rússa á úkraínsk raforkuver eða verksmiðjur, ekki einu sinni þær sem eru í eigu bandarískra fyrirtækja. Hann hefur heldur ekki vottað samúð sína vegna úkraínsku barnanna sem hafa látið lífið í sprengjuárásum Rússa að undanförnu.

Hann hefur hvað eftir annað logið blákalt. Hann lýsti því yfir að Úkraína og Rússland hefðu komist að samkomulagi um „vopnahlé á orkusviðinu“, yfirlýsingu sem kom Úkraínumönnum í opna skjöldu og Rússar brutu hvort sem er þegar í stað með árás á raforkuver í Kharkiv aðeins nokkrum klukkustundum síðar. Hann sakaði Úkraínumenn um að standa í vegi fyrir friðarviðræðum, þótt staðreyndin sé sú að þeir hafa ítrekað lagt til vopnahlé á meðan Rússar hafa aldrei fallist á slíkt eða yfir höfuð neinar eiginlegar friðarviðræður.

Hann hefur lýst lýðræðislega kjörnum forseta Úkraínu sem hindrun í vegi samningaviðræðna og sagt honum að segja af sér embætti. En áður en hann tók þessar nýju ákvarðanir á föstudag ræddi hann enn eina ferðina lengi og í mestu vinsemd við rússneska einræðisherrann, sem gæti í raun bundið enda á stríðið strax í dag. Það eina sem Vladimír Pútín þyrfti að gera væri að skipa hermönnum sínum að hætta að berjast. Þar með væri stríðinu lokið. Úkraínumenn geta hins vegar ekki lagt niður vopn því þá yrði land þeirra lagt undir Rússland og þeir myndu sæta sömu örlögum og íbúar hernumdu svæðanna: leiðtogar yrðu myrtir, börnum rænt og aðrir íbúar beittir kúgun og vistaðir í fangabúðum. Ef Trump gerir sér grein fyrir þessu virðist honum einfaldlega vera sama.

Bandaríkin eru nú orðin duttlungafullt og óútreiknanlegt stórveldi þar sem utanríkisstefnu, sem hefur verið við lýði um langt árabil, er hægt að snúa á hvolf fyrirvaralaust, frá einum degi til annars.

Bandaríkjaforseti hefur gefið í skyn að markmiðið með þessari nýju stefnu sé að lækka eldsneytisverð fyrir bandarískan almenning. Mögulega vill hann telja kjósendum trú um að hátt verð sé Úkraínu að kenna en ekki stríðinu gegn Íran, sem hann sjálfur kaus að hefja. En sú skýring nægir hvorki til að útskýra né réttlæta þessar afdrifaríku ákvarðanir. Það magn eldsneytis sem Rússar gætu flutt út er of lítið, áhrifin á verðlag of óveruleg og frásögnin nær ekki að móta almenningsálitið í tæka tíð til að hafa áhrif á kosningaúrslitin

Þetta virðist fremur vera eitthvað allt annað: skyndileg og örvæntingarfull úrslitatilraun til að knýja Úkraínu til uppgjafar og bjarga rússnesku efnahagslífi. Hugsanlega er tilgangurinn sá að koma loks í höfn þeim fjölmörgu viðskiptasamningum sem vitað er að Rússar hafa rætt við bandaríska samningamenn og aðra úr innsta hring Trumps. Þar á meðal eru samningar sem tengjast Nord Stream-gasleiðslunum, námuvinnslu á norðurslóðum, rússneskum eignum sem hafa verið frystar í evrópskum bönkum og ýmsu öðru.

Frá upphafi síðara kjörtímabils Trumps hafa bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og víðar reynt að útskýra fyrir forsetanum mikilvægi stríðsins og þá ógn sem Rússland skapar gagnvart friði og velmegun í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku. Nú virðist sem þeim hafi mistekist það og að Trump hafi látið gamalgróna afstöðu sína ráð för og tekið afstöðu með Pútín. Hvaða lærdóm munu bandamenninir draga af þessu?

Fyrsti og augljósasti lærdómurinn er þessi: Ekki treysta á Bandaríkin. Bandaríkin eru nú orðin duttlungafullt og óútreiknanlegt stórveldi þar sem utanríkisstefnu, sem hefur verið við lýði um langt árabil, er hægt að snúa á hvolf fyrirvaralaust, frá einum degi til annars. Bandaríkin hafa beitt Rússland viðskiptaþvingunum árum saman en nú hefur þeim skyndilega verið aflétt, einfaldlega vegna þess að forsetanum þóknast svo.

Annar lærdómur er sá að einræðisherrar njóta betri meðferðar í Washington undir stjórn Trumps en lýðræðislega kjörnir leiðtogar. Kanada er mun áreiðanlegra samstarfsríki Bandaríkjanna í orkumálum en Rússland. Samt hefur Trump ekki leitast við að bæta samskiptin við kanadísk stjórnvöld. Öryggi Evrópu verður í beinni hættu ef Úkraína fellur eða gefst upp, en engu að síður hlustar Trump á Moskvu fremur en Berlín eða Lundúnir.

Trump hefur skipt um skoðun á fóstureyðingum og rafmyntum og stutt mismunandi stjórnmálaflokka á ólíkum tímum, en andúð hans á lýðræðislegum bandamönnum Bandaríkjanna og velvild í garð Rússlands hefur verið ótrúlega staðföst í gegnum árin.

Enn einn lærdómurinn er að þessi ríkisstjórn er til sölu. Fyrir nokkrum dögum greindi The New York Times frá því að í tengslum við friðarviðræður Bandaríkjanna og Rússlands kynnu eignir rússneska olíufélagsins Lukoil brátt að verða keyptar af fjárfestahópi. Í þeim hópi eru meðal annars viðskiptafélagar frá Mið-Austurlöndum sem tengjast tveimur helstu samningamönnum Trumps í Úkraínudeilunni, Jared Kushner og Steve Witkoff, auk Ivönku, dóttur Trumps, og sonar Witkoffs. (Embættismaður í ríkisstjórninni staðfesti við The New York Times að Kushner og Witkoff hefðu tekið þátt í viðræðum um Lukoil, þótt engar sannanir liggi fyrir um að þeir muni sjálfir hagnast á viðskiptunum.)

Tillögur að samningum um gasleiðslur, jarðefnaauðlindir og frystar eignir eru sömuleiðis enn til umræðu. Jafnvel þótt enginn þessara samninga verði nokkurn tíma að veruleika nægir sú staðreynd ein og sér, að samningamenn Trumps skuli ræða þá, til að gefa rússneskum stjórnvöldum ástæðu til að ætla að þau geti haldið stríðinu áfram án þess að þurfa að gjalda fyrir það.

Lýðræðisríki geta hins vegar unnið saman án Bandaríkjaforseta. Úkraína mun halda áfram að berjast og að öllum líkindum einnig halda áfram árásum sínum á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar, með stuðningi vinaþjóða sinna í Evrópu og víðar. Leyniþjónustuupplýsingar frá Frakklandi, vopnabúnaður frá Þýskalandi og umfangsmiklir stuðningspakkar frá Norðurlöndunum, Póllandi og öðrum ríkjum munu koma þar að gagni. Önnur ríki ættu að draga af þessu lærdóm. Undanfarin tvö ár hafa Evrópuríki, Kanada og lýðræðisríki við Kyrrahaf unnið að því að efla viðskipta- og öryggistengsl sín á milli, auk þess að styrkja samstarfið við Indland og ríki Rómönsku Ameríku. Nú hafa þau fengið enn eina ástæðu til að treysta þessi bönd enn frekar.

Samband Trumps og Rússlands er áfram náið, mikilvægt og ákaflega sérkennilegt. Þegar öllu er á botninn hvolft tekur Trump alltaf undir sjónarmið Rússa, hver svo sem fer þar með völd. Allt frá fyrstu ferð sinni til Moskvu árið 1987, þegar borgin tilheyrði enn Sovétríkjunum, hefur hann ítrekað tekið upp áróður Rússa og endurómað sjónarmið þeirra. Þegar hann sneri heim úr þeirri ferð keypti hann heilsíðuauglýsingar í þremur dagblöðum þar sem hann réðst gegn bandalögum Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu. Í nærri fjóra áratugi hefur málflutningur hans verið að mestu leyti sá sami. Hann hefur skipt um skoðun á fóstureyðingum og rafmyntum og stutt mismunandi stjórnmálaflokka á ólíkum tímum, en andúð hans á lýðræðislegum bandamönnum Bandaríkjanna og velvild í garð Rússlands hefur verið ótrúlega staðföst í gegnum árin.

Hann heldur áfram að aðhyllast þessar skoðanir þvert á afstöðu bandaríska hersins og leyniþjónustustofnana landsins, sem og meirihluta bandarísks almennings og þingmanna á Bandaríkjaþingi. Strax eftir yfirlýsingu hans um dísilolíuna og ummælin um Volodímír Selenskí reis upp hópur þingmanna, bæði úr fulltrúadeild og öldungadeild, gegn samkomulaginu og hét því að fá því hnekkt. [Í gær] sendi Alexus Grynkewich, hershöfðingi í bandaríska flughernum, Rússum allt önnur skilaboð. Grynkewich er æðsti yfirmaður bandaríska heraflans í Evrópu og jafnframt herforingi Atlantshafsbandalagsins, embætti sem Bandaríkjamaður hefur ávallt gegnt. Í ræðu á öryggisráðstefnu í Varsjá sagði Grynkewich að hvers kyns árás á Atlantshafsbandalagið, nokkuð sem margir óttast nú í fullri alvöru, yrði mætt af yfirgnæfandi hernaðarlegum styrk:

„Við munum stöðva árásina og koma í veg fyrir að þeim takist að ná markmiðum sínum, hver sem þau kunna að vera. Í stuttu máli munum við tryggja að sérhver árás gegn hvaða bandamanni sem er reynist með öllu tilgangslaus,“ sagði hann. Grynkewich gaf jafnframt í skyn að slíkri árás yrði svarað með umfangsmiklum gagnárásum sem beindust gegn „öllu því sem styður við, heldur uppi og stjórnar“ árásarhernum.

Þetta er einmitt skilaboðin sem gætu haft fælingarmátt gagnvart Rússum ef þau kæmu einnig frá Hvíta húsinu. Þau gætu fælt þá frá því að auka umfang skemmdarverka sinna og netárása í Evrópu, halda áfram stuðningi við Íran eða fremja stríðsglæpi í Úkraínu. En þessi forseti neitar alfarið að tala með þeim hætti og eins og staðan er nú verðum við að gera ráð fyrir að hann muni aldrei gera það.


Lausleg þýðing á grein sem birtist eftir Anne Applebaum á vefsíðu The Atlantic mánudaginn 12. október.

Anne Applebaum er bandarískur sagnfræðingur og blaðamaður, sem hefur meðal annars hlotið Pulitzer-verðlaunin, og starfar í dag sem pistlahöfundur hjá The Atlantic. Hún er jafnframt með ríkisborgararétt í Póllandi og gift utanríkisráðherra landsins, Radoslaw Si­korski. Hún er meðal annars höfundur bókanna Aurocracy, Inc., Gulag: A History, Red Famine og Twilight of Democracy: The Seductive Lure of Authoritarianism.


Tengdar fréttir

Allir nema Trump skilja hvað hann hefur gert

Donald Trump hugsar ekki með strategískum hætti. Hann hugsar heldur ekki í sögulegu eða landfræðilegu samhengi, né heldur á rökréttan hátt. Hann tengir ekki saman ákvarðanir sem hann tekur einn daginn við atburði sem eiga sér stað vikum síðar. Hann veltir því ekki fyrir sér hvernig hegðun hans á einum stað hefur áhrif á viðbrögð annarra á öðrum stöðum.






×