Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Árni Sæberg skrifar 23. október 2026 10:40 Ökumenn þessara tveggja Land Rover-bifreiða ullu miklu jarðraski í sumar. Klemenz Geir Klemenzson Samkvæmt frumvarpsdrögum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fá stjórnvöld auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri. Til að mynda fær Nátturuverndarstofnun heimild til að senda þeim sem valda náttúruspjöllum reikning fyrir úrbótum og lögregla fær heimild til að gera bíla þeirra sem ráðherra kallar „skussana“ upptæka.
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að frumvarpsdrögin feli í sér margháttaðar umbætur á náttúruverndarlögum og lúti meðal annars að uppbyggingu innviða, landtöku farþega á friðlýstum svæðum og skýrari heimildum til friðlýsingar og friðunar í hafi. Þar séu jafnframt lagðar til breytingar sem snúa að úrræðum stjórnvalda til viðbragða við ólögmætum utanvegaakstri. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafi lýst því yfir síðasta sumar, eftir að ferðamenn voru staðnir að grófum og ítrekuðum utanvegaakstri, að taka þyrfti miklu fastar á slíkum brotum. Í frumvarpsdrögunum sé lagt til að Náttúruverndarstofnun verði heimilt að annast nauðsynlegar úrbætur á verulegum náttúruspjöllum vegna utanvegaaksturs og krefja þann sem veldur spjöllunum um kostnað við úrbæturnar, svo sem við að afmá jarðrask, lagfæra gróðurskemmdir og draga að öðru leyti úr áhrifum brotsins. Jafnframt sé lagt til að lögregla fái heimild til tímabundinnar haldlagningar ökutækja til að koma í veg fyrir áframhaldandi brot eða frekari spjöll en í dag sé einvörðungu hægt að gera ökutæki upptækt með dómi. Loks sé lagt til að viðurlög vegna brota sem valda alvarlegum náttúruspjöllum verði hert og samræmd viðurlögum samkvæmt öðrum lögum á þessu sviði. „Þetta snýst um að passa upp á Ísland. Ólögmætur utanvegaakstur er óþolandi og á ekki að líðast. Þess vegna þurfa stjórnvöld að hafa raunhæf úrræði til þess að taka fastar á skussunum og senda þeim reikninginn vegna tjónsins sem þeir valda. Og þegar ökumenn hlýða ekki fyrirmælum verður lögregla að geta haldlagt ökutæki strax og komið þannig í veg fyrir frekari brot. Um þetta snúast lagabreytingarnar,“ er haft eftir ráðherra.
Utanvegaakstur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Umhverfismál Tengdar fréttir Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 13:34 „Best að taka menn og sekta duglega“ Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér. 22. júní 2026 17:07 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Dróu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Sjá meira
Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 13:34
„Best að taka menn og sekta duglega“ Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér. 22. júní 2026 17:07