Innlent

Drógu vélar­vana skútu til hafnar

Samúel Karl Ólason skrifar
Áhöfn skútunnar hafði átt í miklu basli undanfarna daga.
Áhöfn skútunnar hafði átt í miklu basli undanfarna daga. Vísir/vihelm

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði í gær út Björgunarfélag Akraness vegna vélarvana skútu sem var þá um tólf sjómílur vestur af Akranesi. Verið var að sigla skútunni frá Scoresbysundi á Grænlandi þegar vél hennar bilaði eftir ellefu daga siglingu.

Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að útkallið hafi borist um klukkan sex í gær. Áhöfn skipsins Hafdísar SK kom fólkinu á skútunni til aðstoðar á vettvangi.

Björgunarsveitarmenn voru á æfingum á björgunarskipinu Margréti Guðbrandsdóttur  þegar útkallið barst og hélt áhöfn þess þegar í stað til móts við skútuna. Vegna stærðar skútunnar þurfti þó öflugra skip til að koma henni örugglega til hafnar og því tók Björgunarskipið Kristrún á Bjargi, frá Ísafirði, við aðgerðinni og dró hana til hafnar, eins og segir í tilkynningunni.

Áhöfn skútunnar hafði glýmt við ítrekaðar vélarbilanir á leiðinni frá Grænlandi en síðustu fjórir dagar höfðu víst verið sérstaklega krefjandi vegna veðurs og mikillar þreytu.

„Aðgerðin gekk vel og skútan komst heilu og höldnu til Hafnarfjarðar um klukkan 22:00. Björgunarskipið Kristrún á Bjargi sneri að því loknu til heimahafnar á Akranesi, þangað sem það kom um miðnætti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×