Handbolti

Ó­líkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistara­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Orri Freyr Þorkelsson nýtti færin sín vel í Meistaradeildinni í kvöld.
Orri Freyr Þorkelsson nýtti færin sín vel í Meistaradeildinni í kvöld. Getty/Kolektiff Images

Það er ólíkt á komið með Íslendingaliðunum í D-riðli Meistaradeildar karla í handbolta.

Portúgalska félagið Sporting er taplaust á toppnum eftir sigur í Danmörku í kvöld en sænska félagið Kristianstad hefur tapað fyrstu sex leikjum sínum.

Orri Freyr Þorkelsson skoraði fimm mörk úr fimm skotum þegar Sporting vann tveggja marka útisigur á GOG í Danmörku, 37-35. Sporting hefur unnið fimm leiki og gert eitt jafntefli í fyrstu sex leikjum sínum.

Bræðurnir Francisco Costa og Martim Costa voru markahæstir hjá Sporting með sjö mörk hvor. Olí Mittún og Manuel Zehnder voru báðir með ellefu mörk fyrir heimamenn.

Kristianstad stóð um tíma í ungverska stórliðinu PICK Szeged en varð að sætta sig við fimm marka tap, 31-26.

Einar Bragi Aðalsteinsson og Andri Erlingsson skoruðu báðir tvö mörk fyrir Kristianstad en Baldur Fritz Bjarnason skoraði eitt mark. Ólafur Guðmundsson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×