Lífið

Hin­segin ást í loftinu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Nýja kompaníið hinÓperan frumsýndi verkið 27 á föstudag.
Nýja kompaníið hinÓperan frumsýndi verkið 27 á föstudag. Unnur Agnes Níelsdóttir

Gleðin var við völd í Borgarleikhúsinu síðastliðinn föstudag þegar hinÓperan frumsýndi óperuna 27 á Litla sviði. 

HinÓperan er nýtt íslenskt óperukompaní sem hefur það að markmiði að auka sýnileika hinsegin fólks á óperusviðinu, leggur áherslu á sögur af hinsegin fólki og að skapa hinsegin listafólki tækifæri til að starfa við óperu, hvort sem er sem flytjendur, listrænir stjórnendur eða aðrir þátttakendur.

Fjöldi fólks mætti á frumsýninguna og þar á meðal var Ricky Ian Gordon, tónskáldið á bak við verkið. Hann samdi það með textahöfundinum Royce Vavrek en þetta er í fyrsta sinn sem óperan er sett upp í Evrópu og jafnframt fyrsta uppfærsla hinÓperunnar. Nánari upplýsingar um sýninguna má finna hér og að neðan má sjá vel valdar myndir af gestum:

Glæsilegar á frumsýningu.Unnur Agnes Níelsdóttir
Joe og Sindri „Sparkle“ Freyja í góðum gír. Unnur Agnes Níelsdóttir
Frumsýningarfjör.Unnur Agnes Níelsdóttir
Ray Milano og Gunnar Hjörtur Baldvinsson.Unnur Agnes Níelsdóttir
Gleðin var við völd.Unnur Agnes Níelsdóttir
Matthildur Anna Gísladótti, Íris Björk Gunnarsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson og Herdís Anna Jónasdóttir öll frá hinÓperunni.Unnur Agnes Níelsdóttir
Gleði og gaman.Unnur Agnes Níelsdóttir
Bjarni Snæbjörnsson, Herdís Anna Jónasdóttir og Íris Björk Gunnarsdóttir.Unnur Agnes Níelsdóttir
Tveir ótrúlega smart og glæsilegir.Unnur Agnes Níelsdóttir
Íris Björk Gunnarsdóttir og Tinna Dís Sigmarsdóttir.Unnur Agnes Níelsdóttir
Allir aðstandendur óperunnar í skýjunum með frumsýninguna.Unnur Agnes Níelsdóttir
Sveinn Ólafur, Jörundur Ragnars og Þórunn Arna með góðum vini.Unnur Agnes Níelsdóttir
Bjarni Snæbjörns og Bjarmi Fannar glæsileg hjón.Unnur Agnes Níelsdóttir
Fannar Arnarsson í frábærum félagsskap.Unnur Agnes Níelsdóttir
Gestir skáluðu fyrir frumsýningunni.Unnur Agnes Níelsdóttir
Áslákur Ingvarsson og Bjarni Thor Kristinsson.Unnur Agnes Níelsdóttir
Stuð.Unnur Agnes Níelsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.