Enski boltinn

Parker nýr þjálfari West Ham

Valur Páll Eiríksson skrifar
Parker er tekinn við West Ham.
Parker er tekinn við West Ham. EPA

Scott Parker er nýr þjálfari West Ham í ensku B-deildinni í fótbolta. Hann tekur við af Portúgalanum Nuno Espírito Santo sem var sagt upp í gær.

Hinn 46 ára gamli Parker gerir tveggja og hálfs árs samning við West Ham, til sumarsins 2029. Honum er ætlað að stýra West Ham upp í ensku úrvalsdeildina eftir fall liðsins úr deildinni í vor.

Nuno var sagt upp störfum í gær eftir slaka byrjun á leiktíðinni en West Ham situr í áttunda sæti deildarinnar með 22 stig eftir 13 leiki. Tvö töp í röð fyrir Southampton og West Bromwich Albion gerðu að verkum að stjórnarmenn liðsins ákváðu að breyta til.

Scott Parker var leikmaður West Ham í rúmar fjórar leiktíðir.Nordic Photos / Getty Images

Parker þekkir til hjá West Ham en hann var leikmaður og fyrirliði liðsins. Hann spilaði 129 leiki fyrir West Ham milli 2007 og 2011.

Parker hefur sem þjálfari stýrt liðum Fulham, Bournemouth og Burnley og hefur komið öllum þremur liðum upp úr B-deildinni. Hann þekkir því hvað þarf til í þeim efnum.

Hann reyndi einnig fyrir sér í Belgíu er hann stýrði Club Brugge milli 2022 og 2023.

Fyrsti leikur eftir þjálfaraskiptin er strax í kvöld er West Ham sækir Cardiff City heim til Wales.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×