Innlent

Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Daði Már hefur sagt miður að fundur með forstjóra hafi verið frestað og svo ekki haldinn. Það gerist hins vegar reglulega að fundir færist til.
Daði Már hefur sagt miður að fundur með forstjóra hafi verið frestað og svo ekki haldinn. Það gerist hins vegar reglulega að fundir færist til. Vísir/Anton Brink

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra mun gefa Alþingi munnlega skýrslu varðandi starf forstjóra og stjórnar Landsvirkjunar klukkan hálf fjögur. Stjórnarandstaðan kallaði eftir því að ráðherra gerði grein fyrir máli sínu og telja margir þingmenn stjórnarandstöðunnar skorta upp á svör frá Daða Má.

Þingfundur á Alþingi hófst klukkan 13:30 og má fylgjast með í spilaranum.

Forsaga málsins er sú að Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar til sautján ára, sagði óvænt upp störfum í lok september. Hörður hefur vísað til þess að stjórn Landsvirkjunar hafi fundað án sín og að ráðherra hafi hafnað fundi með Daða Má.

Fjölmargir stjórnarandstæðingar fóru í pontu í hálftíma umræðu á þinginu í gær og töldu fulla ástæðu til að ræða málið betur.

Daði sagði í sjónvarpsfréttum RÚV í gær að alltaf væri óheppilegt þegar kæmu upp samskiptavandamál á milli forstjóra og stjórnar. Lög hefðu hins vegar ekki verið brotin.

Að neðan má fylgjast með umræðum á Alþingi en vænta má skýrslu frá Daða Má um málið klukkan 15:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×