Ásmundur Einar með Sölva Tryggva
Ásmundur Einar Daðason er barnamálaráðherra Íslands. Fyrir nokkru síðan varð kúvending í lífi hans þegar hann ákvað að opna á áföll í æsku, sem höfðu legið eins og steinn í maganum á honum í gegnum allt lífið. Í þættinum talar hann opinskátt um aðstæður sínar í barnæsku og það hvernig hann segist allt eins hafa getað endað á Litla Hrauni miðað við aðstæður. Hann fer líka yfir ástríðuna fyrir málefnum barna og allt það sem samfélagið getur gert til að bæta aðstæður barna og unglinga sem standa höllum fæti. Hægt er að horfa á allan þáttinn hér.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    