Tollar á ál og stál hækka Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tvöfaldað almenna tolla á innflutning stáls og áls til Bandaríkjanna. Hann segir fyrri tolla ekki hafa gert nóg til að vernda bandarískan iðnað og hefur því hækkað tollana í fimmtíu prósent, úr 25 prósentum. Viðskipti erlent 4. júní 2025 06:48
Mun þingið fara fram hjá Trump? Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagðist í gær styðja hertar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Áhugi fyrir slíkum aðgerðum er mikill í þinginu og þá sérstaklega í öldungadeildinni en hingað til hefur Donald Trump, forseti, ekki viljað taka það skref. Erlent 3. júní 2025 12:55
Yfirmaður FEMA sagðist ekki vita af tilvist fellibyljatímabila Forsvarsmenn Almannavarna Bandaríkjanna (FEMA) hafa ákveðið að hætta við að nota nýja viðbragðsáætlun við fellibyljum sem ku hafa verið langt á veg komin. Þess í stað ætla þeir að nota áætlunina frá því í fyrra en nýr yfirmaður stofnunarinnar kom starfsmönnum sínum í opna skjöldu í gær þegar hann sagðist ekki vita af tilvist fellibyljatímabila. Erlent 3. júní 2025 11:28
Með sömu óásættanlegu kröfurnar Rússneskir erindrekar lögðu í gær fram sömu umfangsmiklu kröfurnar til Úkraínumanna og þeir hafa gert áður. Þessar kröfur hafa Úkraínumenn áður sagt vera óásættanlegar þar sem þær geri ríkið berskjaldað gegn annarri innrás og að Úkraína verði í raun leppríki Rússlands. Um uppgjöf væri að ræða. Erlent 3. júní 2025 07:22
Vilja ganga á milli bols og höfuðs á geimrannsóknum í Bandaríkjunum Athuganastöðin sem greindi þyngdarbylgjur í fyrsta skipti verður lömuð og fjöldi þekktra rannsóknarleiðangra í sólkerfinu stöðvaðir ef óskir Bandaríkjaforseta um fjárlög næsta árs verða að veruleika. Niðurskurðinum er líkt við útrýmingu vísinda í Bandaríkjunum. Erlent 2. júní 2025 11:58
Áhugi á Bandaríkjareisum snarminnkar Áhugi Íslendinga á ferðalögum til Bandaríkjanna hefur dvínað eftir að Donald Trump sneri aftur í embætti forseta Bandaríkjanna í upphafi árs. Áhuginn hefur dregist mest saman hjá kjósendum Samfylkingar og Viðreisnar. Innlent 2. júní 2025 11:05
Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að Bandaríkin muni tvöfalda tolla á innflutt stál og ál, úr 25 prósent í 50 prósent. Breytingin tekur gildi næsta miðvikudag. Trump greindi frá þessu á baráttufundi í Pittsburgh í Pennsylvaníu. Viðskipti erlent 31. maí 2025 07:56
Ryður leiðina fyrir Trump til að vísa hálfri milljón úr landi Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Donald Trump, forseti, megi svipta farand- og flóttafólk frá Haítí, Kúbu, Níkaragva og Venesúela tímabundinni vernd gegn brottvísunum sem þau hafa fengið. Þannig má Trump vísa þeim úr landi áður en umsóknir þeirra um dvalarleyfi eru tekin fyrir. Erlent 30. maí 2025 16:24
Vísuðu til rannsókna sem voru ekki til í „heimsklassa“ skýrslu Robert F. Kennnedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, gaf á dögunum út skýrslu þar sem farið var hörðum orðum um framleiðslu matvæla í Bandaríkjunum og lyfjamarkað landsins. Skýrslan, sem bar nafnið „Make Amercia Healthy Again“ hefur þó verið harðlega gagnrýnd eftir að í ljós kom að hún vísar í nokkrum tilfellum í rannsóknir sem voru aldrei framkvæmdar. Erlent 30. maí 2025 12:32
Ísrael samþykkir vopnahlé Trumps Fulltrúar Ísrael hafa samþykkt nýjustu tillögu Bandaríkjanna um vopnahlé milli Ísrael og Hamas. Tveir mánuðir er liðnir síðan síðasta vopnahléi lauk með loftárásum Ísraela. Erlent 29. maí 2025 20:14
Störfum Musk lokið hjá DOGE Elon Musk hefur tilkynnt um það að störfum hans hjá DOGE, hagræðingar- og niðurskurðarstofnun Bandaríkjastjórnar, sé lokið. Donald Trump réði Musk til starfa í 130 daga sem sérstakan ráðgjafa um niðurskurð innan stjórnkerfisins. Erlent 29. maí 2025 15:17
Dómstóll ógilti tollahækkanir Trump Dómstóll í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi farið út fyrir valdheimildir sínar þegar hann fyrirskipaði tollahækkanir á fjölmörg ríki fyrr á árinu í skjóli laga um neyðarvald. Viðskipti erlent 29. maí 2025 08:49
Óttast að stefna Trump-stjórnarinnar fæli námsmenn frá Bandaríkjunum Stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur fyrirskipað öllum sendirráðum landsins að hætta tímabundið að taka við umsóknum námsmanna um vegabréfsáritanir. Forseti Sambands íslenskra námsmanna erlendis hefur áhyggjur af stöðunni og segir alvarlegt að vegið sé að tjáningarfrelsi þeirra sem hyggja á nám í Bandaríkjunum, og hvetur námsmenn sem fundið hafa fyrir áhrifum þessa til að leita til samtakanna og deila reynslu sinni. Innlent 28. maí 2025 13:11
Náðar raunveruleikastjörnur sem sviku tugmilljónir dala út úr bönkum Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að náða hjónin Todd og Julie Chrisley sem voru með raunveruleikaþættina Chrisley Knows Best og fengu áralanga fangelsisdóma fyrir tugmilljóna lánasvik og skattaundanskot. Erlent 28. maí 2025 08:31
Stöðva vegabréfsáritanir námsmanna og rannsaka umsækjendur nánar Bandaríkjastjórn hefur gefið út þau fyrirmæli til allra sendiráða landsins í heiminum að þau hætti að taka við beiðnum frá námsmönnum um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Þetta er gert til þess að yfirvöld geti undirbúið sig undir nánari skoðun á hverri umsókn, meðal annars með því að fara grannt ofan í saumana á samfélagsmiðlanotkun viðkomandi umsækjanda. Erlent 28. maí 2025 06:55
„Hann er að leika sér að eldinum!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður ósáttur við Vladimír Pútín, kollega sinn í Rússlandi, vegna ítrekaðra árása Rússa á borgir og bæi Úkraínu. Þá segist hann íhuga frekari refsiaðgerðir gegn Rússlandi en það hefur hann sagt áður án þess að grípa til aðgerða. Trump taldi að gott samband sitt við Pútín myndi duga til. Erlent 27. maí 2025 16:11
Náðar spilltan fógeta Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að hann ætlaði sér að náða fógeta sem dæmdur var í tíu ára fangelsi fyrir mútuþægni og annarskonar spillingu. Forsetinn segir fógetann spillta hafa verið ofsóttan af öfgamönnum í dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Erlent 27. maí 2025 14:06
Deila enn um „stóra fallega“ frumvarpið Þó fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafi nýverið samþykkt, með mjög naumum meirihluta, hið „stóra og fallega“ fjárlagafrumvarp sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, studdi, er framtíð þess þó enn óljós. Það tók miklar samningaviðræður innan þingflokks Repúblikanaflokksins að ná frumvarpinu í gegn, seint um nóttu, en nú hefur Trump gefið öldungadeildarþingmönnum grænt ljós á að gera miklar breytingar á frumvarpinu. Erlent 26. maí 2025 16:27
Norðurlöndin standi saman vörð um alþjóðalög Forsætisráðherrar Norðurlandanna, auk leiðtoga Álandseyja, Færeyja Grænlands, komu saman í Finnlandi i dag. Þar var farið yfir öryggis- og varnarmál á Norðurlöndum, málefni Grænlands og ásælni forseta Bandaríkjanna í eyjuna, efnahagsmál auk ýmissa annarra mála. Innlent 26. maí 2025 14:28
Mestu árásirnar hingað til, aftur Rússar gerðu í gærkvöldi og í nótt sína umfangsmestu dróna- og eldflaugaárás á Úkraínu hingað til. Notast var við 355 dróna, bæði sjálfsprengjudróna og tálbeitur, auk níu stýriflauga. Var það í kjölfar umfangsmikillar árásar á Kænugarð og önnur héruð þar sem notast var við dróna og stýriflaugar. Erlent 26. maí 2025 11:32
Segir Pútín „genginn af göflunum“ og íhugar refsiaðgerðir Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Vladímír Pútín Rússlandsforseta „algjörlega genginn af göflunum“ í kjölfar loftárása Rússa á Úkraínu um helgina. Ágengni Pútín muni leiða til falls Rússlands og segist Trump íhuga frekari refsiaðgerðir gegn Rússum. Erlent 26. maí 2025 07:06
Frestar fimmtíu prósenta tollum á Evrópusambandið Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að fresta gildistöku fimmtíu prósenta tolla á vörur frá Evrópusambandinu fram til níunda júlí næstkomandi. Hann ræddi tollamálin við Ursulu von der Leyen, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins símleiðis í kvöld. Erlent 25. maí 2025 23:47
Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Viðskiptaráðherra Evrópusambandsins kallar eftir tollasamningi milli sambandsins og Bandaríkjanna sem byggi á virðingu en ekki hótunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í gær að leggja fimmtíu prósent innflutningstoll á vörur frá Evrópusambandinu. Viðskipti erlent 24. maí 2025 10:44
Hótar Evrópusambandinu og Apple háum tollum Bandaríkjaforseti hótaði því að leggja fimmtíu prósent innflutningstoll á vörur frá Evrópusambandinu og 25 prósent toll á Apple-vörur í samfélagsmiðlafærslum í dag. Hann segir hvorki ganga né reka í viðræðum við ESB um viðskipti. Viðskipti erlent 23. maí 2025 13:48
Hvetja Íslendinga í Harvard til að hafa samband Samband íslenskra námsmanna erlendis hvetur íslenska nemendur við Harvard háskóla til þess að hafa samband, í kjölfar þess að Bandaríkjastjórn tilkynnti forsvarsmönnum skólans í gær að heimild skólans til þess að taka við nemendum erlendis frá hafi verið felld úr gildi. Erlent 23. maí 2025 12:02
Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Íslendingur sem nam við Harvard háskóla og vinnur nú í Bandaríkjunum á hefðbundnum landvistarleyfi fyrir námsmenn, gæti þurft að yfirgefa landið með stuttum fyrirvara. Er það eftir að ríkisstjórn Bandaríkjanna felldi úr gildi landvistarleyfi fyrir nemendur skólans og meinaði skólanum að taka móti nýjum erlendum nemendum. Erlent 22. maí 2025 21:33
Banna erlendum nemendum að sækja Harvard Ríkisstjórn Donalds Trump, tilkynnti forsvarsmönnum Harvard háskólans í dag að heimild skólans til að taka við nemendum erlendis frá hefði verið felld úr gildi. Þessu var hótað í síðasta mánuði en Trump og hans fólk hafa gengið hart fram gegn skólanum og öðrum í Bandaríkjunum. Erlent 22. maí 2025 19:48
Samþykktu billjóna dollara skattalækkanir og niðurskurð til velferðarmála Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu í nótt umfangsmikið frumvarp sem felur í sér um 4,5 billjóna dollara skattalækkanir og niðurskurð til velferðarmála. Milljónir manna eru taldar missa aðgang að heilbrigðisþjónustu og mataraðstoð verði frumvarpið að lögum. Erlent 22. maí 2025 12:22
Nota lygapróf til að leita lekamanna og refsa þeim Forsvarsmenn heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna hafa að undanförnu skikkað starfsmenn í lygapróf. Það er liður í viðleitni til að bera kennsl á fólk sem hefur rætt við blaðamenn. Erlent 21. maí 2025 22:37
Sat fyrir forseta Suður-Afríku með ásökunum um þjóðarmorð á hvítum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, missti stjórn á skapi sínu á átakasömum blaðamannafundi með Cyril Ramaphosa, forseta Suður-Afríku í Hvíta húsinu í dag. Þar hélt Trump því fram að verið væri að myrða hvíta bændur í massavís og að morðingjarnir kæmust upp með það og lét kollega sinn horfa á myndband sem átti að styðja við falskar yfirlýsingar hans. Erlent 21. maí 2025 19:01