Wie fer í háskóla Kvennakylfingurinn Michelle Wie hefur tilkynnt að hún hafi fengið inngöngu í Stanford-háskólann í Bandaríkjunum og hefji þar nám næsta haust, eftir að hún útskrifast úr menntaskóla. Margir bjuggust við því að Wie myndi einbeita sér að golf-íþróttinni eftir menntaskóla en hún ákvað sjálf að setja menntun í fyrsta sætið. Golf 22. desember 2006 21:00
Woosnam íhugaði að segja af sér Ian Woosnam, fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-keppninni fyrr á þessu ári, segist hafa íhugað að segja af sér eftir að danski kylfingurinn Thomas Bjorn gagnrýndi hann harðlega fyrir að velja sig ekki í lið Evrópu. Golf 22. desember 2006 15:15
Ætlar að skáka Tiger Woods Suður-Afríkubúinn Ernie Els hefur sett í gang þriggja ára markmið til að skáka Tiger Woods. Woods er langefstur á heimslista kylfinga þar sem Els situr í fimmta sæti. Golf 21. desember 2006 00:01
Woods sigraði á mótinu sínu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods sigraði í nótt á Target World mótinu í golfi sem fram fór í Kaliforníu, en hann skipuleggur mótið sjálfur. Woods lauk keppni á 16 höggum undir pari, fjórum höggum á undan Ástralanum Geoff Ogilvy. Aðeins 16 kylfingar tóku þátt í mótinu og var sigurinn sá annar á þremur árum hjá Woods á mótinu. Hann gaf verðlaunaféð allt til góðgerðamála. Golf 18. desember 2006 13:39
Ernie Els sigraði í Suður-Afríku Heimamaðurinn Ernie Els sigraði glæsilega á SA Airways mótinu í Suður-Afríku í dag en mótið var liður í evrópsku mótaröðinni. Els lék frábært golf á lokasprettinum og hafði betur gegn landa sínum Trevor Immelman. Els lauk keppni á 24 höggum undir pari en Immelman var þremur höggum þar á eftir. Golf 17. desember 2006 17:31
Birgir Leifur lauk keppni á pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á SA Airlines mótinu í golfi í morgun á sléttu pari. Hann lék lokahring sinn á mótinu á þremur höggum yfir pari og endaði í 82. sæti á mótinu sem var partur af Evrópumótaröðinni og verður það að teljast mjög góður árangur á þessu sterka móti. Golf 17. desember 2006 13:47
Birgir Leifur í þremur undir pari Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að spila vel á SA Airlines mótinu í golfi í Portl Elizabeth í Suður-Afríku, en hann lauk þriðja hringnum í morgun á 70 höggum eða tveimur undir pari. Hann er því á samtals þremur höggum undir pari á mótinu og er í kring um 57. sæti í mótinu. Golf 16. desember 2006 13:49
Sjöland efstur - Birgir Leifur áfram Sænski kylfingurinn Patrik Sjöland er í efsta sæti á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku þegar tveimur fyrstu hringjunum er lokið. Sjöland er samtals á 12 höggum undir pari eftir að hann lék á 8 undir í dag. Birgir Leifur tryggði sér naumlega áframhaldandi keppni eftir góðan leik í dag. Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu sem halda áfram í fyrramálið. Golf 15. desember 2006 16:15
Birgir Leifur í góðri stöðu Birgir Leifur Hafþórsson er kominn með annan fótinn í gegn um niðurskurðinn á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk öðrum hring í dag á þremur höggum undir pari og er því á höggi undir pari samanlagt. Hann er sem stendur í 58. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum þegar skammt er eftir af öðrum hring og komast 70 efstu menn áfram á mótinu. Golf 15. desember 2006 15:44
Birgir Leifur á tveimur yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson lauk fyrsta keppnisdeginum á SA Airways mótinu í golfi á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari í dag. Mótið fer fram í Suður-Afríku og er hluti af evrópsku mótaröðinni. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu næstu daga. Golf 14. desember 2006 15:32
Þjóðverjar sigruðu á heimsmótinu Þjóðverjar fögnuðu sigri á heimsmótinu í golfi sem lauk á Barbados eyjum í gærkvöldi eftir spennandi lokasprett gegn Skotum en bráðabana þurfti til að skera úr um úrslit. Golf 11. desember 2006 19:51
Quiros sigraði á Dunhill mótinu Spænski kylfingurinn Alvaro Quiros sigraði nokkuð óvænt á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag, en Birgir Leifur Hafþórsson var á meðal keppenda á mótinu en komst ekki í gegn um niðurskurðinn. Quiros lauk keppni á 13 höggum undir pari, einu höggi á undan heimamanninum Schwartzel sem hafði forystu allt fram á lokahringinn. Golf 10. desember 2006 14:59
Birgir Leifur úr leik Birgir Leifur Hafþórsson er úr leik á Alfred Dunhill mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk keppni í dag á þremur höggum yfir pari eða 75 höggum. Birgir kemst því ekki í gegn um niðurskurðinn á mótinu og lýkur keppni á 8 höggum yfir pari. Sjónvarpsstöðin Sýn er með beinar útsendingar frá mótinu um helgina. Golf 8. desember 2006 17:13
Birgir á pari á fyrstu 9 holunum Birgir Leifur Hafþórsson hefur nú leikið fyrri 9 holurnar á öðrum hringnum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku og er á pari vallar. Hann er því enn á fimm höggum yfir pari og þarf að leika fullkomlega á síðari 9 holunum til að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu. Sýn er með beina útsendingu frá mótinu. Golf 8. desember 2006 14:07
Birgir Leifur á fimm yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdeginum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku í dag en sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Birgir lauk fyrsta hringnum á 77 höggum eða 5 yfir pari og er því á meðal neðstu manna á móginu. Birgir verður því að leika óaðfinnanlega á morgun ef hann á að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu þar sem 70 kylfingar halda áfram keppni. Golf 7. desember 2006 15:06
Birgir Leifur í beinni á Sýn í fyrramálið Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér fyrir skömmu keppnisrétt á evrópsku mótaröðinni í golfi og hann verður í eldlínunni innan um marga af bestu kylfingum heims á tveimur mótum sem haldin verða í Suður-Afríku fyrir jól. Fyrra mótið hefst í fyrramálið og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Golf 6. desember 2006 15:14
Enn fellur Michelle Wie úr keppni Bandaríska undrabarnið Michelle Wie náði sér ekki á strik á Casino World Open mótinu í japan sem nú stendur yfir og komst ekki í gegn um niðurskurð á mótinu. Wie lék fyrstu tvo hringina á 17 höggum yfir pari og endaði í næst síðasta sæti. Hún hefur því fallið úr keppni á 11 af 12 karlamótum sem hún hefur tekið þátt í. Wie er aðeins 17 ára gömul en er staðráðin í að halda áfram að reyna sig með körlunum þrátt fyrir mótlætið. Golf 24. nóvember 2006 13:18
Enn einn sigurinn hjá Tiger Woods Tiger Woods vann í nótt sinn 7. sigur á Hawai mótinu í golfi þegar hann lauk keppni á átta höggum undir pari og sá við sínum helsta keppinaut Jim Furyk sem var þar tveimur höggum á eftir. Woods lék lokahringinn á sex undir pari en leiknar voru 36 holur. Golf 23. nóvember 2006 14:29
Harrington hafði betur í bráðabana Frábær endasprettur Írans Padraig Harrington tryggði honum frækinn sigur á Dunlop Pheonix mótinu sem lauk í Japan í morgun. Harrington sigraði Tiger Woods í bráðabana eftir að sá síðarnefndi hafði farið illa að ráði sínum á lokasprettinum. Golf 19. nóvember 2006 14:15
Þrautagöngu Birgis loksins lokið Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, varð í gær fyrstur íslenskra kylfinga í karlaflokki til að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi. Golf 17. nóvember 2006 13:30
B&L og GR semja um BMW mótaröðina Bílaumboðið B&L og GR gerðu nýlega með sér samstarfssamning um að GR sjái um framkvæmd alþjóðlegu mótaraðarinnar BMW Golf Cup International hér á landi. Samningurinn er til þriggja ára og er jafnframt sá fyrsti sem samningsaðilar gera með sér. Golf 16. nóvember 2006 22:24
Birgir Leifur á Evrópumótaröðina Birgir Leifur Hafþórsson náði í dag langþráðum áfanga þegar hann varð fyrsti íslendingurinn í karlaflokki til að vinna sér sæti á Evrópumótaröð atvinnukylfinga á næsta ári. Birgir lauk keppni á þremur höggum undir pari á sjötta og síðasta hringnum á lokaúrtökumótinu á Spáni og verður því örugglega á meðal 30 efstu manna, sem tryggði sæti á Evrópumótaröðinni á næsta ári. Golf 16. nóvember 2006 15:32
Birgir Leifur náði sér ekki á strik Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á 5. hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer á Spáni. Birgir lék hringinn á 3 höggum yfir pari í dag og er því samtals á 2 yfir pari á mótinu. Hann er því í 45.-63. sæti á mótinu, en 30 efstu kylfingarnir tryggja sig á Evrópumótaröðina eftir 6. hringinn. Golf 15. nóvember 2006 16:02
Birgir Leifur áfram Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk fjórða hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina á einu höggi undir pari og er því í á meðal 30 efstu kylfinga á mótinu sem fram fer á Spáni. Tveir hringir eru óleiknir á mótinu og þar komast 30 af 70 efstu kylfingunum á Evrópumótaröðina á næsta tímabili og horfurnar því þokkalegar hjá Birgi. Golf 14. nóvember 2006 16:15
Birgir Leifur á pari á Spáni Birgr Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á þriðja keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina í dag þegar hann lauk keppni á þremur höggum yfir pari og er því samanlagt á pari vallar. Hann er sem stendur í kring um 30. sætið á mótinu og á góða möguleika á því að komast í gegn um frekari niðurskurð. Golf 13. nóvember 2006 15:25
Birgir Leifur í 11. sæti Birgir Leifur Hafþórsson er í mjög góðri stöðu eftir annan hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer á Spáni. Birgir lék á pari í dag og er því enn á þremur höggum undir pari sem skilar honum 11. sæti. Eftir frábæra byrjun í dag fataðist honum reyndar flugið og fékk hann tvo skolla á 16. og 17. braut. Golf 12. nóvember 2006 15:38
Birgir Leifur byrjar vel Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG byrjaði mjög vel á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópsku mótaröðina sem fram fer á Spáni, en hann lék fyrsta hringinn í dag á 69 höggum eða 3 undir pari og er á meðal efstu manna á mótinu. 30 efstu kylfingarnir á mótinu tryggja sér sæti á Evrópumótaröðinni. Golf 10. nóvember 2006 17:12
Ragnhildur úr leik á Ítalíu Ragnhildur Sigurðardóttir náði sér ekki á strik á þriðja degi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í dag þegar hún lék á 10 höggum yfir pari og er því úr leik á mótinu. Ragnhildur var á 17 höggum yfir pari samanlagt og endaði í 86.-90. sæti á mótinu en aðeins 65 keppendur náðu í gegn um niðurskurð inn á fjórða hring á morgun. Golf 10. nóvember 2006 15:30
Ragnhildur á sjö yfir pari á Ítalíu Ragnhildur Sigurðardóttir náði sér ekki á strik í dag á öðrum keppnisdegi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi þegar hún lauk keppni á sex höggum yfir pari. Ragnhildur lék á höggi yfir pari vallarins í gær - 73 höggum. Ragnheiður var í 55.-64. sæti á mótinu en keppendum verður fækkað niður í 65 eftir keppni morgundagsins. Golf 9. nóvember 2006 19:28
Azinger verður fyrirliði Kylfingurinn Paul Azinger hefur verið útnefndur fyrirliði Bandaríkjanna í Ryder keppninni sem fram fer í heimalandi hans eftir tvö ár. Azinger tekur við af Tom Lehman, sem var fyrirliði bandaríska liðsins sem tapaði stórt fyrir liði Evrópu fyrir nokkrum vikum. Golf 6. nóvember 2006 19:36