Bein útsending hafin frá PGA á Sýn Nú er hafin bein útsending á Sýn frá öðrum keppnisdegi á Bridgestone mótinu í Akron í Ohio sem er hluti af PGA mótaröðinni í golfi. Ástralski kylfingurinn Adam Scott er í forystu á mótinu á 7 höggum undir pari, en hinn ótrúlegi Tiger Woods var þá í fjórða sætinu. Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla helgina. Golf 25. ágúst 2006 20:52
Adam Scott með forystu Ástralski kylfingurinn Adam Scott er í forystu á Bridgestone mótinu í golfi sem fram fer í Akron í Ohio og er hluti af PGA mótaröðinni. Scott er á 7 höggum undir pari í fyrstu umferðinni, tveimur höggum á undan Bandaríkjamanninum Jason Gore. Tiger Woods er á meðal keppenda á mótinu og er á 3 höggum undir pari. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu um helgina. Golf 25. ágúst 2006 14:48
Birgir Leifur í stuði í Óðinsvéum Birgir Leifur Hafþórsson úr golfklúbbnum GKG er í fantaformi á áskorendamótinu í Óðinsvéum í Danmörku. Birgir lauk keppni á öðrum hring í morgun á fjórum höggum undir pari, líkt og á fyrsta hringnum í gær þegar hann lék á 66 höggum. Hann er því á meðal efstu manna á samtals átta höggum undir pari. Golf 25. ágúst 2006 13:37
Glæsilegur sigur hjá Tiger Woods Tiger Woods sýndi fádæma öryggi í dag þegar hann sigraði með yfirburðum á PGA risamótinu á Medinah vellinum í Illinois. Woods lék lokahringinn í dag á 68 höggum og lauk keppni á 18 höggum undir pari eða fimm höggum á undan Shaun Micheel sem hafnaði í öðru sæti á 13 höggum undir pari. Þetta er 12. risatitill Woods á ferlinum og aðeins Jack Nicklaus (18) hefur unnið fleiri í sögunni. Golf 20. ágúst 2006 22:48
Woods í forystu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur forystu á PGA risamótinu í golfi sem nú stendur yfir á Medinah-vellinum í Illinois-fylki. Woods hefur náð þriggja högga forystu eftir fyrstu sex holurnar á lokahringnum, en næstur honum kemur David Weir. Sýn er með beina útsendingu frá mótinu. Golf 20. ágúst 2006 20:52
Luke Donald í forystu Luke Donald er sem stendur í efsta sæti á PGA mótinu í golfi sem stendur yfir í Illinois-fylki í Bandaríkjunum, en þetta er síðasta risamót sumarsins. Donald er á 12 höggum undir pari í þriðju umferð mótsins en þeir Shaun Micheel og Mike Weir koma fast á hæla hans á 11 undir pari. Tiger Woods er í góðri aðstöðu til að hefja atlögu að efstu mönnum eins og hans er von og vísa, en hann er tveimur höggum á eftir þeim á Medinah-vellinum. Sýn er með beinar útsendingar í gangi frá mótinu. Golf 19. ágúst 2006 20:17
Heiðar náði sér ekki á strik á lokahringnum Heiðar Davíð Bragason náði sér ekki á strik á lokadeginum á sænsku mótaröðinni í dag þegar hann lék á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari. Hann lauk því keppni á fimm höggum yfir pari og hafnaði í 53. sæti á mótinu. Golf 19. ágúst 2006 17:04
Stenson tekur forystu Sænski kylfingurinn Henrik Stenson hefur eins höggs forystu eftir tvær umferðir á USPGA mótinu sem nú stendur yfir á Medinah vellinum í Chicago. Stenson lék annan hringinn á 68 höggum eða 4 höggum undir pari og er því einu höggi á undan Davis Lowe III sem vann sigur á mótinu árið 1997. Bein útsending verður frá mótinu á Sýn í kvöld. Golf 18. ágúst 2006 18:27
Heiðar á pari í Svíþjóð Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason er á pari eftir tvo fyrstu hringina á sænsku mótaröðinni í golfi sem fram fer á Haverdal vellinum. Heiðar lék á 71 höggi í dag eða einu höggi undir pari, en hann var á höggi yfir pari í gær. Heiðar er þó nokkuð langt frá efstu mönnum á mótinu. Golf 18. ágúst 2006 14:20
Heiðar Davíð á höggi yfir pari Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason úr Kili lék fyrsta hringinn á sænsku mótaröðinni á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari í dag. Keppnin fer fram í Haverdal í Svíþjóð og er efsti maður eftir fyrsta dag á sex höggum undir pari. Golf 17. ágúst 2006 20:43
PGA-mótið í beinni á Sýn í kvöld PGA-meistaramótið í golfi sem fram fer á Medinah-vellinum í Illinois hefst í kvöld og hest bein útsending frá mótinu klukkan 21:50. Það er Phil Mickelson sem á titil að verja á mótinu síðan í fyrra, en auk hans eru skráðir til leiks flestir af sterkustu kylfingum heims. Þetta er síðasta risamót sumarsins á PGA-mótaröðinni og Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. Golf 17. ágúst 2006 16:45
Slakur dagur hjá Michelle Wie Fyrsta umferðin í Opna breska meistaramóti kvenna í golfi stendur nú yfir á Royal Lytham og St Annes golfvellinum. Það er Juli Inkster frá Bandaríkjunum sem leiðir á sex höggum undir pari og hefur hún lokið hringnum. Michelle Wie hefur ekki náð sér á strik. Golf 3. ágúst 2006 19:43
Michelle Wie er klár í slaginn Bandaríska undrabarnið Michelle Wie sést hér slá uppúr sandgryfju á Royal Lytham og St Annes golfvellinum í Lytham á Norðvestur-Englandi í dag. Hún er að búa sig undir Opna breska meistaramótið sem hefst þann 3. ágúst næstkomandi. Golf 1. ágúst 2006 17:01
Birgir Leifur naumlega áfram Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG komst í dag naumlega í gegnum niðurskurð eftir þriðja hring á Ryder Cup áskorendamótinu í Golfi sem fram fer í Wales. Golf 29. júlí 2006 20:48
Birgir Leifur áfram í Wales Birgir Leifur Hafþórsson lék ágætlega á öðrum keppnisdegi áskorendamótsins í Wales í dag og lauk keppni á þremur höggum undir pari. Birgir lék á tveimur höggum yfir pari í gær, en komst naumlega í gegn um niðurskurðinn með góðum leik sínum í dag. Golf 28. júlí 2006 21:30
Birgir Leifur á tveimur yfir í Wales Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson var nokkuð frá sínu besta á fyrsta hringnum á áskorendamótinu í Wales og lauk hringnum á 73 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Efsti maður á mótinu er að leika á sjö undir pari og er Birgir því nokkuð langt frá efstu mönnum. Golf 27. júlí 2006 14:33
Mjög ósáttur við ljósmyndara Hinn dagfarsprúði sigurvegari Opna breska meistaramótsins, Tiger Woods, var fjarri því að vera sáttur með ágang ljósmyndara á meðan mótið stóð yfir um helgina. Þar átti hann ekki við atvinnuljósmyndarana, heldur áhugamenn sem tóku myndir af honum, sumir hverjir með farsímamyndavélum. Golf 24. júlí 2006 18:27
Tiger Woods varði titil sinn Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur tryggt sér sigur á opna breska meistaramótinu í golfi, annað árið í röð. Woods lék af fádæma öryggi í dag og tryggði sér sigur með því að leika lokahringinn á 67 höggum og endaði á 18 höggum undir pari. Chris DiMarco lék á 68 höggum í dag og lauk keppni tveimur höggum á eftir Woods, sem grét fögrum tárum þegar sigurinn var í höfn. Golf 23. júlí 2006 17:28
Slæmur endasprettur hjá Birgi Birgir Leifur Hafþórsson náði sér aldrei á strik á lokadeginum á áskorendamótinu í Austurríki í dag, en hann var í þriðja sæti á mótinu í gær eftir að leika frábært golf. Birgir hafnaði í 49-55 sæti á mótinu eftir lokadaginn, sem hann lék á 8 höggum yfir pari. Hann lauk keppni á 2 höggum undir pari. Golf 23. júlí 2006 16:52
Tiger Woods í forystu fyrir lokadaginn Bandaríski kylfingurinn Tiger Wodds hefur eins höggs forystu á opna breska meistaramótinu í golfi þegar keppni er að ljúka á þriðja degi. Woods lék á höggi undir pari í dag og og er því samtals á 13 höggum undir pari á mótinu. Höggi þar á eftir koma þeir Sergio Garcia, Chris DiMarco og Ernie Els. Golf 22. júlí 2006 17:42
Faldo Series til Íslands Golfklúbbur Reykjavíkur hefur undirritað samning við golfgoðsögnina Nick Faldo um að Ísland verði fyrsta landið utan Bretlands sem heldur mót í Faldo Series-mótaröðinni og mun það fara fram á Korpuvelli dagana 7-9 ágúst. Hér er um að ræða unglingamót og fyrirhugað er að mótið verði haldið víðar í Evrópu á næstunni. Þetta kemur fram á vefsíðu Golfklúbbs Reykjavíkur. Golf 22. júlí 2006 14:07
Birgir Leifur frábær í dag Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er að leika frábærlega á áskorendamótinu í Austurríki og í dag lauk hann þriðja hringnum á mótinu á 64 höggum eða 6 höggum undir pari. Birgir er því samtals á 10 höggum undir pari á mótinu og er á meðal allra efstu manna. Golf 22. júlí 2006 13:49
Woods í stuði Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er í miklu stuði á Opna breska meistaramótinu í golfi í dag og jafnaði kappinn vallarmetið þegar hann lék á 65 höggum í dag, eða 7 undir pari. Hann hefur sem stendur þriggja högga forystu á næsta mann á mótinu sem er Chris DiMarco. Golf 21. júlí 2006 14:29
McDowell í forystu Norður-írski kylfingurinn Graeme McDowell hefur óvænt forystu eftir fyrsta keppnisdag á opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer á Hoylake-vellinum í Liverpool. McDowell lék á 66 höggum í dag, eða 6 höggum undir pari og er höggi á undan meistara ársins í fyrra Tiger Woods og tveimur Bretum sem koma þar á eftir. Golf 20. júlí 2006 22:01
Birgir Leifur hafnaði í 14. sæti Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í 14. sæti á áskorendamótinu í golfi sem fram fór í Skotlandi um helgina. Birgir lék lokahringinn í dag á 71 höggi, eða pari og lauk því keppni á þremur höggum undir pari á mótinu. Sport 9. júlí 2006 16:21
Birgir Leifur á þremur undir pari í Skotlandi Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að spila ágætlega á áskorendamótinu í Skotlandi og lauk þriðja keppnisdeginum á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Birgir er því samtals á þremur höggum undir pari fyrir lokadaginn og er nokkuð ofarlega á töflunni. Efsti maður mótsins eins og staðan er nú er á 12 höggum undir pari. Sport 8. júlí 2006 16:09
Birgir Leifur á pari í Skotlandi Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson byrjaði ágætlega á Áskorendamótaröðinni í Skotlandi í dag þegar hann lauk fyrsta hringnum á 71 höggi, sem er par vallarins. Sport 6. júlí 2006 19:20
Heiðar í 20.-25. sæti Heiðar Davíð Bragason, kylfingur úr Kili í Mosfellsbæ, lauk í gær keppni á móti í Brönderslev í Danmörku í 20.-25. sæti en mótið er liður í dönsku keppnismótaröðinni. Davíð Heiðar spilaði þriðja og síðasta hringinn á þremur höggum yfir pari og samtals á átta höggum yfir parinu. Hann átti frábæran fyrsta hring á mótinu er hann spilaði á einu höggi undir pari en náði ekki að leika það eftir. Sport 28. júní 2006 09:30
Heiðar Davíð í 18. sæti í Danmörku Heiðar Davíð Bragason úr Kili varð í 18.-20. sæti á opna golfmótinu í Herning í Danmörku sem lauk í dag. Heiðar lék lokahringinn á þremur höggum yfir pari og lauk keppni á fjórum höggum yfir pari. Sport 22. júní 2006 20:37
Skelfileg byrjun hjá Ólöfu Maríu Ólöf María Jónsdóttir náði sér engan veginn á strik á fyrsta keppnisdeginum á Estorial-mótinu í golfi sem fram fer í Portúgal. Ólöf á litla möguleika á að komast í gegn um niðurskurð á mótinu á morgun eftir að hafa lokið keppni á 13 höggum yfir pari í dag. Sport 22. júní 2006 19:44