Innrás Rússa í Úkraínu

Innrás Rússa í Úkraínu

Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Fréttamynd

Vilja banna rúss­neska túr­ista

Ísland er sagt vera meðal þeirra ellefu Evrópuríkja sem krefjast þess að Evrópusambandsríki hætti að veita rússneskum ferðamönnum vegabréfsáritanir. Ráðherrar landanna munu hafa sent framkvæmdastjórn ESB bréf þar sem þeir segji það óboðlegt að rússneskir ferðamenn fái að sóla sig á evrópskum ströndum á meðan sprengjur dynja á úkraínskum borgum.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Á­rásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns

Úkraínumenn gerðu í morgun árásir með langdrægum drónum á olíuinnviði og hernaðarleg skotmörk í Pétursborg. Miklir eldar kviknuðu við árásirnar en árleg viðskiptaráðstefna hófst í Pétursborg í morgun. Úkraínumenn segjast hafa ráðist á að minnsta kosti tuttugu olíuvinnslur á undanförnum 33 dögum.

Erlent
Fréttamynd

Spjallað í Reykja­vík á meðan drónarnir dynja á Kænu­garði

Sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi segist þakklátur Íslendingum og finnst hann meðal vina. Hann segir Ísland og Úkraínu eiga mikla sameiginlega hagsmuni og að diplómasía sé gífurlega mikilvæg fyrir þjóð í stríði og að hún geti hjálpað þar sem vopnin dugi ekki til.

Erlent
Fréttamynd

Vilja skipa erind­reka en vita ekki hvert erindið er

Ráðamenn í Evrópu eru með til skoðunar að skipa sérstakan erindreka gagnvart Rússlandi sem koma á að friðarviðræðum um Úkraínu. Þessi erindreki myndi þá eiga í viðræðum við ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Fyrst þurfa Evrópumenn þó að komast að samkomulagi um hvað erindrekinn á að segja.

Erlent
Fréttamynd

Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Banda­ríkin

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum.

Erlent
Fréttamynd

Hafa þurft að draga veru­lega úr olíuframleiðslu vegna á­rása

Rússar hafa neyðst til draga úr framleiðslu eða jafnvel stöðva hana alveg í mörgum af helstu olíuvinnslum ríkisins. Það er vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði eins og vinnslur, dælustöðvar og geymslutanka en vegna þeirra hafa Rússar bannað alfarið útflutning á unnu eldsneyti í það minnsta út júlí.

Erlent
Fréttamynd

Hvernig Rúss­land tapaði vinum sínum og á­hrifum á heims­vísu

Frá því að Vladimir Pútín hóf allsherjarinnrás sína í Úkraínu fyrir meira en fjórum árum hefur honum ekki aðeins mistekist að ná þeim hernaðarlega sigri sem hann þráði. Hann hefur einnig grafið undan fjölmörgum samböndum og tengslum sem hann eyddi áratugum í að byggja upp, með þeim afleiðingum að Rússland er nú einangraðra en á nokkrum tíma síðan á fyrstu árum bolsévikabyltingarinnar.

Umræðan
Fréttamynd

Engir flökkudrónar fundist í Finn­landi

Finnsk yfirvöld segja að engir flökkudrónar hafi fundist eftir að almannavarnatilkynning var gefin út til íbúa Helsinki í nótt um að halda kyrru fyrir innandyra. Forsætisráðherrann segir viðbrögð yfirvalda ekki hafa verið ýkt miðað við tilefnið.

Erlent
Fréttamynd

Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum

Svíar og önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins tóku nýverið á móti úkraínskum drónaflugmönnum á æfingu á Gotlandi. Þar áttu úkraínsku hermennirnir að kynna Svía og aðra fyrir drónahernaði. Úkraínumennirnir stóðu sig svo vel að Svíarnir stöðvuðu æfinguna þrisvar sinnum til að hugsa sinn gang og reyna að breyta aðferðum sínum.

Erlent
Fréttamynd

Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar

Ráðamenn í bæði Rússlandi og í Úkraínu telja litlar líkur á því að hægt verði að endurlífga viðræðurnar þar sem Bandaríkjamenn hafa reynt að miðla málum þeirra á milli, jafnvel þegar stríði Bandaríkjanna gegn Íran lýkur. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er sagður staðráðinn í að leggja undir sig meira landsvæði í Úkraínu og þá sérstaklega Donbas-svæðið svokallaða.

Erlent
Fréttamynd

Skildu skrið­drekana eftir á víg­línunni

„Sigurinn verður, og hefur alltaf verið, okkar,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti er hann flutti ræðu á Rauða torginu í Moskvu þar sem hersveitir höfðu stillt sér upp að tilefni Sigurdagsins svokallaða. Hersýningin var með breyttu sniði í ár, nánar til tekið smærri, þar sem flest þungavopn Rússa eru á víglínunni í Úkraínu um þessar mundir.

Erlent
Fréttamynd

Þriggja daga vopna­hlé í Úkraínu

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað þriggja daga vopnahlé í innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti staðfestir að vopnahléð hefjist á morgun, laugardag.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert vopna­hlé heldur um­fangs­miklar á­rásir í Rúss­landi

Bæði Rússar og Úkraínumenn hafa sakað hvor annan um að brjóta gegn vopnahléi sem Vladimír Pútín, forseti Rússlands, krafðist einhliða um helgina á meðan að Rússar halda upp á sigur sinn á Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir að Rússar gerður umfangsmiklar árásir á Úkraínu í gær hafa Úkraínumenn gert dróna- og eldflaugaárásir víðsvegar um Rússland í dag.

Erlent
Fréttamynd

Þing­menn klöppuðu ó­spart fyrir konunginum

Karl þriðji, konungur Bretlands, ávarpaði í gær sameinaðar deildir bandaríska þingsins. Það gerði hann fyrstur breskra kónga en móðir hans var fyrsta drottningin til að ávarpa þingmenn með þessum hætti, árið 1991.Bandaríkjamenn fagna um þessar mundir því að 250 ár eru liðin frá því að þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Í ræðu sinni ítrekaði konungurinn menningarleg tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, þó samskipti ríkjanna hafi beðið hnekki að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Sjö felldir í Úkraínu

Hið minnsta sjö voru felldir í umfangsmiklum loftárásum Rússa víða í Úkraínu í fyrrinótt og þar af fimm í Dnípró, þar sem sprengja lenti á íbúðahúsnæði. Þessa sömu nótt sóttu úkraínskir drónar djúpt inn í Rússland.

Erlent
Fréttamynd

Vestur­lönd tali opin­skátt um fyrirætlað stríð við Rúss­land

Utanríkisráðherra Rússlands segir Vesturlönd hafa lýst Rússlandi stríði á hendur með Úkraínu í broddi fylkingar. Vestrænir leiðtogar tali opinskátt um fyrirætlaða styrjöld við Rússland og vilji nota „Kænugarðsstjórnina“ sem múrbrjót. Þetta er þrátt fyrir að Rússland hafi gert allsherjarinnrás í landið fyrir fjórum árum síðan og staðið í árásum á það í á annan áratug.

Erlent
Fréttamynd

Hætta að styrkja Fen­eyjart­víæringinn vegna þátt­töku Rússa

Evrópusambandið ætlar að hætta að styrkja ítölsku listahátíðina Feneyjartvíæringinn vegna ákvörðunar stjórnenda hennar að bjóða rússneskum listamönnum. Þetta verður í fyrsta skipti sem Rússar taka þátt eftir að innrás þeirra í Úkraínu hófst af fullum þunga árið 2026.

Erlent