Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran. Erlent 16.3.2026 15:49
Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn þurfa peninga og tækni frá Mið-Austurlöndum í skiptum fyrir tæknilega aðstoð og þekkingu hvað varðar varnir gegn írönskum sjálfsprengidrónum. Þrjú teymi úkraínskra sérfræðinga hafa verið send til Mið-Austurlanda til að aðstoða hermenn og ráðleggja þeim varðandi hvernig best sé að verjast drónunum, sem Úkraínumenn hafa verið að verjast um árabil. Erlent 16.3.2026 11:51
Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé í húfi komi bandamenn ekki til aðstoðar við að greiða fyrir opnun Hormuz-sunds. Erlent 16.3.2026 06:38
Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fordæmdi í nótt drónaárás í norðurhluta Íraks. Nokkrir franskir hermenn særðust og einn yfirmaður lét lífið í árásinni. Hermennirnir hafa verið að þjálfa írakska Kúrda í að berjast gegn vígahópum á svæðinu. Erlent 13. mars 2026 08:04
Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Stjórnvöld í Washington eru sögð hafa misreiknað sig verulega við skipulagningu aðgerðanna gegn Íran og ekki gert ráð fyrir því að þarlend yfirvöld myndu reynast viljug til að loka Hormuz-sundi. Erlent 13. mars 2026 07:53
Bandarísk herflugvél fórst í Írak Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks. Erlent 12. mars 2026 23:29
Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Bandaríkjaforsetanum Donald Trump hefur snúist hugur og segir hann nú að það sé ekki viðeigandi fyrir íranska landsliðið að mæta á HM í sumar. Fótbolti 12. mars 2026 18:00
Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Mojtaba Khamenei, sem tók nýverið við embætti æðstaklerks Íran af föður sínum, heitir því að halda Hormússundi lokuðu. Hann segir einnig að árásir á nágrannaríki Íran muni halda áfram og þá sérstaklega á bandarískar herstöðvar í þessum ríkjum. Erlent 12. mars 2026 14:10
Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“. Lífið 12. mars 2026 07:00
Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Verð á Brent hráolíu er komið aftur yfir 100 dollara á tunnu og ríki út um allan heim íhuga nú aðgerðir til að mæta yfirvofandi orkuskorti vegna aðgerða Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran og hefndaraðgerða Írana. Erlent 12. mars 2026 06:50
Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur. Erlent 11. mars 2026 14:48
Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Gianni Infantino, forseti FIFA, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa fullvissað sig um að landslið Írans sé velkomið til Bandaríkjanna á HM í sumar og að mótið muni sameina heiminn. Orð hans virka hjákátleg á meðan gestgjafinn ræðst á eitt þátttökuríkjanna og útilokar stuðningsmenn frá því að sjá þar leiki. Fótbolti 11. mars 2026 11:30
Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sendi olíumarkaði í enn eina sveifluna en gífurlegt flökt hefur verið á olíuverði undanfarna daga vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Með einu tísti frá Wright féll verðið mjög hratt en í einungis nokkrar mínútur. Viðskipti erlent 11. mars 2026 10:32
Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Ráðist var á að minnsta kosti þrjú flutningaskip á og við Persaflóa í grennd við Hormuz-sund í nótt. Tvö þeirra urðu fyrir tiltölulega litlum skemmdum en áhöfn þess þriðja þurfti að yfirgefa skipið eftir að eldur kviknaði þar um borð. Svo virðist sem skipin hafi orðið fyrir eldflaugum en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 11. mars 2026 08:52
Mojtaba Khamenei særður en óhultur Mojtaba Kahmenei, nýr æðsti leiðtogi Íran, er særður en á lífi. Þetta segir Yousef Pezeshkian, sonur forsetans Masoud Pezeshkian. Erlent 11. mars 2026 08:28
Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Bandaríkjastjórn er sögð gæla við þá hugmynd að senda sérsveitir til Íran til að tryggja og sækja birgðir landsins af auðguðu úrani, sem sagðar eru duga til að búa til tíu kjarnaodda. Erlent 11. mars 2026 06:51
Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Bandaríkjaher segist hafa grandað sextán skipum sem leggja tundurdufl í eigu Írana. Herinn birti myndskeið af árásunum. Erlent 10. mars 2026 23:14
Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlendir fjölmiðlar hafa birt sönnungargögn sem benda til þess að bandarískt flugskeyti hafi hæft stúlknaskóla í Íran. Að minnsta kosti 168 létust í árásinni, af þeim voru langflestir ungir nemendur við skólann. Bandaríkjaforseti segir Írani ábyrga. Erlent 10. mars 2026 22:40
Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að dagurinn í dag verði sá ákafasti hingað til, hvað varðar árásir Bandaríkjanna á Íran. Ráðamenn í Íran segjast ætla að berjast áfram en ráðgjafar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, eru sagðir hvetja hann til að finna leið til að binda enda á stríðið. Erlent 10. mars 2026 13:39
Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hringdi í Vladimír Pútín, kollega sinn í Rússlandi, í gær og ræddu þeir saman í klukkutíma. Meðal umræðuefna voru stríðið gegn Íran, Venesúela, staðan á olíumarkaði og stríð Rússa í Úkraínu. Erlent 10. mars 2026 08:10
Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Í það minnsta fimm landsliðskonur Írans í fótbolta hafa strokið eftir þátttöku liðsins á Asíumótinu í Ástralíu. Leikmenn liðsins sættu harðri gagnrýni heimafyrir á meðan mótinu stóð og sagðar svikarar á stríðstímum. Fótbolti 10. mars 2026 07:03
Íranir enn vígreifir Byltingavörðurinn í Íran segir að Íranir muni ákveða hvenær átökum lýkur, ekki Bandaríkin eða Ísrael. Þá muni stjórnvöld þar í landi ekki leyfa „einum dropa“ af olíu að komast frá Mið-Austurlöndum ef árásir halda áfram. Erlent 10. mars 2026 06:42
„Höfum ekki unnið nóg“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að átökin við Íran verði yfirstaðin „innan tíðar“ en að Bandaríkin eigi enn eftir að hrósa fullnaðarsigri. Hann segir Bandaríkjaher hafa tekist að eyðileggja allt að níutíu prósent af hernaðarinnviðum í landinu undanfarna tíu daga. Erlent 10. mars 2026 00:01
Vaxandi ótti við langvarandi átök Vaxandi ótti við langvarandi átök í Mið-Austurlöndum er meginástæða þess að heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp. Verðið á olíutunnunni hækkaði um tuttugu prósent á einum degi og segir hagfræðingur skell eins og þennan hafa sérlega mikil áhrif á litla þjóð. Erlent 9. mars 2026 19:23