Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Arfur Sonju

Þegar heimskonan Sonja Benjamínsson de Zorilla lést fyrir fimm árum var boðað að allar hennar eigur rynnu í minningarsjóð til styrktar málefnum barna. Jafnvel var talið að eigur hennar hefðu numið hátt í tíu milljörðum króna. En hvað varð um milljarðana - eða voru þeir yfirhöfuð til?

Stöð 2
Fréttamynd

Ekkert einkamál

Ekkert af sautján styrktarfélögum langveikra barna kannast við stuðning úr Zorrilla sjóðnum. Sjóðsstjórar gefa til kynna að höfuðstóll sjóðsins sé í besta falli tvö til þrjúhunduð milljónir króna - en það er óravegur frá þeim milljörðum sem Sonja var talin eiga. Það fæst ekki skýrt hvað varð um verðmætt listaverkasafn hennar til dæmis Picasso verk, sem var henni kært, en hangir nú uppi á einkaheimili í Reykjavík

Stöð 2
Fréttamynd

Lífstíðardómur

Í mars fjallaði Kompás ítarlega um morðið á Íslendingnum Gísla Þorkelssyni í Suður-Afríku. Honum var ráðinn bani vorið 2005 og lík hans steypt í ruslatunnu. Vinur Gísla, Willi Theron, var sakfelldur fyrir morðið í síðasta mánuði og í síðstu viku hlaut hann lífstíðardóm fyrir ódæðið.

Stöð 2
Fréttamynd

Sjóður Sonju Zorrillu

Lítið hefur farið fyrir minningasjóði hinnar litríku Sonju Benjamínsson Zorillu. Þegar hún lést fyrir rúmum fimm árum var talið að eigur Sonju, uppá milljarða króna, - jafnvel hátt í tíu milljarða, myndu renna í sjóðinn. Hann átti að styrkja íslensk og bandarísk börn til menntunar og heilbrigðis. Forsvarsmenn sjóðsins segja að málefni hans séu einkamál og almenningur eigi engan kröfurétt á upplýsingum. Vinir og ættingjar Sonju eru eru undrandi á því hversu lítið fari fyrir þessum sjóði og telja það ekki í anda þessarar heimskonu að hljótt fari um sjóðinn. Þeir telja nauðsynlegt að sjóðurinn starfi fyrir opnum dyrum.

Stöð 2
Fréttamynd

Áfallið

Á hverjum degi fá rúmlega tveir Íslendingar slag sem er yfirheiti yfir heilablóðföll og heilablæðingar. Við kynnumst tveimur ungum stúlkum sem fengu heilablæðingu og urðu mjög alvarlega veikar. Í dag hafa þær báðar náð ótrúlegum bata. Það að fá heilablæðingu eða heilablóðfall er grafalvarlegt mál og það skiptir miklu máli að fólk þekki einkennin að undanfara slíkra blæðinga. Með réttum forvörnum er hægt að minnka líkurnar á því að fá slag um helming. Reikna má með að einn af hverjum sjö Íslendingum fái slag á lífsleiðinni.

Stöð 2
Fréttamynd

Bætt meðferð

Skurðaðgerð á heila vegna heilablæðingar getur tekið allt að átta klukkustundir. Með aukinni tækni er hægt að staðsetja blæðingar í heila og hugsanlega koma í veg fyrir alvarleg áföll. Endurhæfing slagsjúklinga getur tekið mörg ár og þeir eru lengi að jafna sig. Sumir ná fullum bata - aðrir ekki.

Stöð 2
Fréttamynd

Þekktu einkennin

Talið er að tíðni slaga muni aukast á heimsvísu á næstu árum vegna stöðugt hækkandi aldurs. Með réttum forvörnum einstaklinganna geta þeir minnkað hættuna á að fá slag um helming. Amfetamín- og kókaínneysla eykur hættuna á heilablóðfalli hjá ungu fólki.

Stöð 2
Fréttamynd

Heilablóðfall og heilablæðingar

Einn af hverjum sjö Íslendingum fær heilablóðfall einhverntíman á lífsleiðinni. Það er einstaklingsbundið hversu mikill skaðinn er en sumir jafna sig aldrei að fullu. Er hægt að minnka hættuna á að fá heilablóðfall? Kompás skoðar afleiðingar heilablóðfalla og heilablæðinga. Kompás er á dagskrá á þriðjudögum kl: 21:30 á Stöð 2.

Stöð 2
Fréttamynd

Félagi Jeltsín

Hljómsveit kennd við rússneska leiðtogann Boris Jeltsín, er að stíga sín fyrstu skref með lagið Kíló af Prósakki. Félagarnir fimm sem skipa hljómsveitina stefna á heimsfrægð og það fyrr en síðar. Áhrifavaldarnir eru úr öllum áttum - tónlist tíunda áratugarins, tölvuleikir, og einræðisherrar.

Stöð 2
Fréttamynd

Skammbyssa á svörtu

Það er auðvelt að kaupa skambyssu og önnur ólögleg vopn á Íslandi. Þetta sýnir Kompás fram á í kvöld en tálbeitu þáttarins voru boðnar tvær skambyssur til sölu - og það tók ekki langan tíma að finna sölumennina. Á hverju ári gerir lögreglan upptæk tugi ólöglegra vopna og þar með taldar skambyssur og afsagaðar haglabyssur. Vopn eru ólögleg ef þau eru ekki skráð og þannig vopn geta legið víða.

Stöð 2
Fréttamynd

Harmleikur

Kompás kafar ofan í markað með ólögleg vopn á Íslandi og skoðar það hvernig byssumanninum sem tók eigið líf og annars manns á Sæbraut í sumar, tókst að kaupa byssu í skotveiðiverslun með byssuleyfi vinar síns upp á vasann. Kompás sendi tálbeitu í síkar verslanir til að athuga hvort hægt væri að kaupa byssur með sama hætti. En er hægt að kaupa skambyssu á svörtum markaði á Íslandi?

Stöð 2
Fréttamynd

Ólögleg vopn

Það er ekki vitað hvað til eru margar óskráðar byssur á Íslandi. En hvar eru þessar byssur? Kompás skoðar ólöglegar byssur á Íslandi og hvort hægt sé að kaupa byssu á svörtum markaði. Morðið á Sæbraut í sumar vakti upp óhug í samfélaginu. Kompás skoðar það hvernig einstaklingi hafi tekist að kaupa byssu út á nafn vinar síns. Er þetta algengt? Hvað segja þeir sem selja byssurnar? Kompás keypti 9mm skambyssu á svarta markaðnum. Byssu sem er alls ekki ætluð til veiða.

Stöð 2
Fréttamynd

Krónan dæmd

Ofurvextir Seðlabankans eiga að vera viðbragð við verðbólgu sem þykir enn alltof há á Íslandi. En það er ekki sama hvernig er mælt. Ef Íslendingar mældu verðbólgu með sama hætti og Evrópusambandið væri hér sáralítil verðbólga. Bandaríkjamenn beita heldur ekki sömu aðferðum og við. En það er ekki bara mælingin sem er gagnrýnd. Stjórnvöld sæta ámæli fyrir að bera ábyrgð á þenslunni og ofurvextir Seðlabankans eru taldir blása fremur í glæðurnar en slökkva eldana.

Stöð 2
Fréttamynd

Dauði krónunnar

Það eru ekki allir sem gefa stjórnun með íslensku krónunni góða einkunn. En vera kann að gjaldmiðilinn sé sjálfkrafa að heyra sögunni til án þess að þeirri þróun sé stýrt. Hagfræðignar spyrja hvort það sé ekki þegar búið að gefa þessum sjálfstæða gjaldmiðli falleinkunn enda fleiri og fleiri að færa sig yfir í Evru og aðrar myntir.

Stöð 2
Fréttamynd

Svar úr svörtuloftum

Kompás reyndi í hálfan mánuð að fá viðtal við Davíð Oddsson, formanns bankastjórnar Seðlabankans um þessi mikilisverðu mál. Hann tók líkindalega í það framanaf en snérist hugur þegar þátturinn var í lokavinnslu og beindi erindinu til annars bankastjóra sem kom loks í viðtal þegar þátturinn var nánast frágenginn.

Stöð 2
Fréttamynd

Vaxtastefna Seðlabankans

Seðlabankinn fær lítinn stuðning við ákvörðun sína um svimandi háa vexti. Hávaxtastefnan er sögð skapa verðbólgu í stað þess að slá á hana. Verðbólgan er ekki rétt mæld segja aðrir. Svo virðist sem ríkisvaldið vinni gegn Seðlabankanum. Á meðan deilt er um hvernig eigi að hlúa að krónunni er atvinnulíf og einstaklingar að gefast upp og yfirgefa þennan gjaldmiðil. Á krónan sér viðreisnar von í ólgusjó útrásar og alþjóðavæðingar?

Stöð 2
Fréttamynd

Kynlíf unglinga

Fimm einstaklingar á Íslandi smitast af kynsjúkdómnum klamidýu á hverjum degi og enn fleiri smitast af kynfæravörtum og herpes. Klamydía getur breiðst hratt út. Í háskóla í Bandaríkjunum var gerð rannsókn þar sem kom í ljós að frá einni smitaðri stúlku gætu 287 einstaklingar smitast. Á síðasta ári greindust rúmlega sautján hundruð manns með klamidýu á Íslandi.

Stöð 2
Fréttamynd

Fræðsla mikilvæg

Fræðsla um kynlíf og áróður um notkun smokksins eru þau tæki sem helst duga til árangurs gegn kynsjúkdómum unglinga. Mjög mismunandi er hvernig kynfræðslu er háttað í grunn- og framhaldsskólum landsins. Smokknum ætti að dreifa frítt segja þeir sem fræða unglingana.

Stöð 2
Fréttamynd

Stolin kirkja

Það er ekki oft sem Þjóðkirkjan er sökuð um að hafa stolið heilli kirkjubyggingu en það gerðist fyrir fimmtíu árum þegar kirkjan á Hesteyri var flutt til Súðavíkur í óþökk Hesteyringa. Þótt langt sé um liðið hefur ekki enn gróið um heilt og vilja Hesteyringar fá að minnsta kosti kapellu í sitt gamla heimaþorp. Hesteyri í Jökulfjörðum lifnar nú við á hverju sumri, þar er blómleg sumarbyggð og viðkomustaður ferðamanna sem hrífast af kyrrð og fegurð staðarins.

Stöð 2
Fréttamynd

Ungt fólk og kynlíf

Tólf einstaklingar hafa greinst með HIV veiruna það sem af er árinu. Þessi illvígi sjúkdómur er ekki lengur dauðadómur. En hugsar ungt fólk um sjúkdóminn í dag? Lifa unglingar öruggu kynlífi? Fimm einstaklingar smitast af klamydíu á hverjum degi og enn fleiri smitast af kynfæravörtum og Herpes. Kompás kynnist viðhorfum ungs fólks til kynlíf, kynsjúkdóma og kynfræðslu.

Stöð 2
Fréttamynd

Kona gegn kerfinu

Einstaklingurinn finnur sig oft vanmáttugan gagnvart kerfinu. Við segjum sögu af konu sem staðið hefur í stríði við Tryggingastofnun í mörg ár. Þetta er dæmisaga um upplifun einstaklings á ósveigjanleika, óbilgirni og ómanneskjulegu viðmóti að hálfu stofnunar sem telur sig hornstein velferðakerfisins. Tryggingastofnun neitaði að tjá sig um þetta tiltekna mál. Forsvarsmenn hennar höfnuðu því einnig að mæta í viðtal til að svara fyrir almenna gagnrýni á Tryggingastofnun.

Stöð 2
Fréttamynd

Öruggasti ferðamátinn

Það eru fáir sem vita hvað gerist í flugstjórnarklefanum fyrir flug og á meðan á flugi stendur. Talið er að hið framandi og hið óþekkta sé ein af orsökum þess að fimmti hver farþegi þjáist af flughræðslu eða ónotum í flugi. Sigurður Ragnarsson - Siggi stormur - fékk á dögunum fáséða innsýn í hvað gerist í flugstjórnarklefanum í flugi 502 til Amsterdam.

Stöð 2
Fréttamynd

Íslenska víkingageitin

Íslenski geitastofninn er talinn vera minnsti geitastofn í heimi. Þetta gamla víkingakyn er harðgert og sérlundað, en vannýtt í íslenskum landbúnaði. Eftirspurn eftir geitaafurðum ferð vaxandi og þá hafa borist fyrirspurnir frá Bandaríkjunum um útflutning á íslensku geitinni.

Stöð 2
Fréttamynd

Barátta við TR

Einstaklingurinn finnur sig oft vanmáttugan gagnvart flóknu kerfi. Við heyrum sögu Rögnu af baráttu hennar við TR. Fyrir 25 árum voru kalk kirtlar fjarlægðir úr Rögnu fyrir mistök og hefur hún eftir það þurft að taka lífsnauðsynleg lyf. Hún borgaði lyfin sjálf í tvo áratugi þangað til hún komst að því að hún átti alltaf rétt á því að fá þau ókeypis. Það hefur verið þrautin þyngri að fá endurgreiðslu þessa kostnaðar.

Stöð 2
Fréttamynd

Óværa á heimilinu

Ný óværa hefur tekið sér bólfestu í rúmum landsmanna. Þetta er lúsartegund sem hreiðrar um sig í rúmum og lifir á því að sjúga blóð úr sofandi fólki. Við fjöllum um þennan ófögnuð, þennan nýja landnema á Íslandi.

Stöð 2
Fréttamynd

Börn í boxi

Í gömlu sundhöllinni í Reykjanesbæ æfa yngstu boxarar landsins ólympíska hnefaleika af miklu kappi. Boxið nýtur mikilla vinsælda, meðal annars hjá krökkum sem greinst hafa með ofvirkni eða athyglisbrest. Við heimsóttum Hnefaleikafélag Reykjaness og fylgdumst með boxurum framtíðarinnar á æfingu.

Stöð 2
Fréttamynd

Sýknun í tálbeitumáli

Í síðustu viku voru þrír menn sýknaðir af ákæru um kynferðisbrot fyrir að hafa ætlað að fara á fund unglingsstúlku með það í huga að eiga við hana kynferðislegt samneyti. Við lögreglurannsókn og saksókn var byggt á Kompásþætti frá í janúar þar sem þessir menn komu innfyrir þröskuld íbúðar og töldu sig vera á leið á stefnumót við unglingsstúlku. Þeir höfðu fallið fyrir tálbeitu Kompáss á netinu.

Stöð 2
Fréttamynd

Blóðsuga á íslenskum heimilum

Veggjalús er blóðsuga sem leggst á mannfólk. Þessi óværa kemur sér fyrir í svefnherbergjum fólks og fjölgar sér hratt. Þær lifa á blóði þess sem í rúminu sefur. Þessum tilfellum hefur verið að fjölga mjög hratt síðustu ár og dæmi eru um að heilu búslóðunum hafi verið fargað. Tryggingafélögin greiða ekki bætur vegna tjóna sem þessa. Kompás fylgdist með meindýraeyði að störfum og baráttunni gegn blóðsugunum á heimili í Reykjavík.

Stöð 2
Fréttamynd

Þroskaheftur á Sogni

Fyrir sextán árum myrti Baldvin Kristjánsson unga konu í Reykjavík. Baldvin er þroskaheftur. Í fimmtán ár hefur hann verið lokaður inni á réttargeðdeildinni að Sogni. Þar hefur hann verið vistaður meðal ósakhæfra manna sem glíma við geðsjúkdóma, manna sem hafa framið misalvarleg afbrot.

Stöð 2
Fréttamynd

Mannréttindi þroskaheftra

Lögmaður sem hefur annast réttargæslu fyrir ósakhæfa einstaklinga segir að mannréttindi séu brotin á Baldvini Kristjánssyni. Það sé ekki einsdæmi. Þroskaheft fólk er haft í stöðugri gæslu og ferðafrelsi þeirra skert, þrátt fyir að það sé sjálfráða. Starfsfólk sem ananst þroskahefta kvartar yfir að reglur skorti og vill ekki una ásökunum um að það brjóti mannréttindi á skjólstæðingum sínum.

Stöð 2