Líbanon

Líbanon

Höfuðborg: Beirút. Mannfjöldi: 5,5 milljónir (2025). Flatarmál: 10.452 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Áfram­haldandi á­tök í Líbanon þrátt fyrir sam­komu­lag

Átök héldu áfram í Líbanon í nótt þrátt fyrir að Ísraelar og Hezbollah hafi samþykkt tillögu Bandaríkjamanna um staðbundið vopnahlé. Hezbollah gerði í nótt þrjár árásir á ísraelska skriðdreka og hermenn nærri þorpum í norðurhluta Ísrael og ríkismiðlar í Líbanon hafa greint frá árásum Ísraela í suðurhluta landsins.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hörðustu á­rásir á Líbanon í langan tíma

Tugir voru drepnir í hörðum árásum Ísraela á Líbanon í gær og í nótt eftir að forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú hafði heitið því að setja aukinn kraft í baráttuna gegn Hezbollah samtökunum sem starfa þar í landi.

Erlent
Fréttamynd

Við­ræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu.

Erlent
Fréttamynd

Fyrstu við­ræður Ísraela og Líbana

Fulltrúar Ísraels og Líbanon áttu í sínum fyrstu diplómatísku viðræðum í meira en þrjá áratugi í dag. Markmið fundarins var að binda enda á átökin á milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna.

Erlent
Fréttamynd

Hezbollah mót­mælir við­ræðum og Íranir krefjast skaða­bóta

Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael.

Erlent
Fréttamynd

Líbanon verið hluti af sam­komu­laginu og Trump þurfi að velja

Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. 

Erlent
Fréttamynd

Hormússund sagt lokað á ný

Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið.

Erlent
Fréttamynd

Réðust fyrir­vara­laust á mið­borg Beirút

Tugir eru sagðir fallnir og hundruð særð eftir að Ísraelsher gerði fyrirvaralausar loftárásir á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar segja að vopnahlé sem þeir gerðu við Írani í gær nái ekki til árása þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon.

Erlent
Fréttamynd

Hútar gerðu aðra á­rás á Ísrael

Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. 

Erlent
Fréttamynd

Ísraelar hyggjast her­nema suður­hluta Líbanon

Stjórnvöld í Ísrael hyggjast taka yfir suðurhluta Líbanon að ánni Litani, það sem þau kalla „öryggissvæði“. Áin liggur í um 30 kílómetra fjarlægð frá landamærum Ísrael og Líbanon. Að sögn utanríkisráðherrans Israel Katz munu Ísraelar einnig stjórna þeim brúm yfir ána sem enn standa.

Erlent
Fréttamynd

Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani

Að minnsta kosti tveir létust þegar Íranir skutu eldflaugum með klasasprengjum á Tel Aviv í nótt. Ríkismiðlar í Íran sögðu um að ræða hefndarárás vegna dráps Ísraelsmanna á Ali Larijani, yfirmanni öryggismála og einum helsta ráðgjafa Ali Khamenei.

Erlent
Fréttamynd

Á­rás gerð á sendi­ráð Banda­ríkjanna í Baghdad

Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata.

Erlent
Fréttamynd

Líbanon viður­kenni Ísrael sem ríki

Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla.

Erlent
Fréttamynd

Hóta höfnum eftir á­rás á „krúnudjásnið“

Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans.

Erlent