Rangárþing eystra

Rangárþing eystra

Mannfjöldi: 2.073 (2025). Flatarmál: 1.832 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Hvolsvöllur, Landeyjar, Eyjafjallahreppur, Fljótshlíðarhreppur, Hvolhreppur.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Við höldum í fjallarómantíkina“

Skagfjörðsskáli í Langadal í Þórsmörk hefur verið jafnaður við jörðu. Eftir 72 ára sögu hefur Ferðafélag Íslands ákveðið að blása í herlúðra og reisa nýjan þar sem ferðalangar í náttúruparadísinni geta sungið saman undir gítarspili og hallað höfði yfir nóttina.

Innlent
Fréttamynd

Sauð upp úr milli ferða­manns og meintra vasaþjófa

Lögreglunni á Suðurlandi bárust tvær tilkynningar um vasaþjófnað um helgina. Þá varð einnig atvik við Skógafoss þar sem ferðamaður hnakkreifst við meinta vasaþjófa, hrifsaði af þeim síma og kastaði honum út á tún. Lögreglumaður á Suðurlandi segir það reglulegt orðið að tilkynningar berist um vasaþjófnað.

Innlent
Fréttamynd

„Það er brjálað að gera með stóru B-i“

Svo mikill gestagangur er á Kirkjubæjarklaustri að gripið hefur verið til lokunar á klukkustundarfresti í sundlaug bæjarins. Níu hundruð manns sóttu laugina í gær. Rekstraraðilar tveggja tjaldstæða á Suðurlandi segjast varla muna eftir öðrum eins gestagangi, sem þeir rekja beint til veðurblíðu á Suðurlandi og rigningar á Suðvesturlandi. 

Innlent
Fréttamynd

Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp

Unnið er að hrunavörnum við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum, meðfram Hringveginum. Staðurinn hefur verð til skoðunar um nokkurt skeið en þar varð banaslys í mars í fyrra. 

Innlent
Fréttamynd

Við­gerð á mótor Herjólfs á á­ætlun

Viðgerðir á mótor Herjólfs IV Vestmannaeyjaferju eru á áætlun og gert ráð fyrir að mótorinn verði sendur til Íslands með skipi frá Hollandi þann 13. júlí. Mótorinn verði settur í ferjuna þegar hann berst til landsins og ferjan Baldur í kjölfarið snúa aftur til siglinga á Breiðafirði þegar uppsetningu mótorsins er lokið. Þetta segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Bráð veikindi á Fimm­vörðu­hálsi

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið ræst út og er á leið að Fimmvörðuhálsi vegna alvarlegra veikinda sem upp komu hjá göngumanni. Aðgerðir eru enn yfirstandandi.

Innlent
Fréttamynd

„Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“

Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ekki hafa áhyggjur af samgöngum fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þó enn verði tafir á viðgerð Herjólfs. Þá gangi vel að koma fólki frá Eyjum eftir Orkumótið sem fram fór þar um helgina þrátt fyrir að fella hafi þurft niður ferðir með Baldri.

Innlent
Fréttamynd

Fengju ekki að rústa verslunar­miðstöð ó­á­reittir

Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir óþolandi og óþarfi að erlendir ferðamenn séu staðnir að utanvegaakstri ár eftir ár. Hún segir þurfa að nýta heimildir til viðurlaga betur og það þurfi samstillt átak stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um að gæta þess að allir sem heimsæki landið, innlendir og erlendir, gangi vel um það.

Innlent
Fréttamynd

„Best að taka menn og sekta dug­lega“

Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér.

Innlent
Fréttamynd

Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upp­tæka

Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri.

Innlent
Fréttamynd

Hefja borun rannsóknar­holu á Land­eyja­sandi í vikunni

Allur undirbúningur er nú á lokastigi og er allt klárt til að hefja fóðrun og kjarnaborun á rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Verkefnið er einn af lykilþáttunum í viðamiklum jarðfræðirannsóknum sem munu skera úr um fýsileika þess að gera jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

Að­stoðuðu ferða­menn að Fjalla­baki

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru í nótt boðaðar út til aðstoðar ferðalöngum sem treystu sér ekki til að halda för áfram. Björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli ásamt Stjörnunni í Skaftártungu og Kyndli á Kirkjubæjarklaustri voru boðaðar út og héldu inn á Fjallabak úr sitthvorri áttinni.

Innlent