Leggjast aftur yfir myndefnið Formaður Nefndar um eftirlit með lögreglu segir nefndarmenn ekki hafa heyrt orðfæri lögreglumanna við mótmæli í Skuggasundi í maí í fyrra. Til standi að fara aftur yfir myndefni úr búkmyndavélum og skoða málið betur. 26.2.2025 11:19
Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni Lyfjablóms ehf. á hendur þeim Þórði Má Jóhannessyni fjárfestis og Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur fyrrverandi ráðherra. Hæstiréttur telur málið ekki hafa nægilega almennt gildi og ekkert bendi til þess að dómur Landsréttar sé rangur. 26.2.2025 10:25
Ógeðslega stoltur af kennurum Formaður Kennarasambands Íslands segist ógeðslega stoltur af kennurum þessa lands eftir undirritun fjögurra ára kjarasamnings við sveitarfélögin og ríkið. Kennarasambandið sé að verða að því öfluga stéttarfélagi sem það þurfi að vera. Samningurinn marki þó aðeins upphaf. Enn vanti fjögur þúsund kennara á Íslandi en nýr samningur hjálpi vonandi til að fjölga faglærðum í skólum landsins. 26.2.2025 01:07
Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík segir í samtali við Vísi að sveitarfélögin hafi einróma samþykkt þann samning sem nú stendur til að skrifa undir í Karphúsinu. Það sé mikið fagnaðarefni. 25.2.2025 23:21
Kjarasamningur kennara í höfn Kjarasamningur Kennarasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkið var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara á tólfta tímanum í kvöld. Samningurinn er mjög svipaður þeim sem sveitarfélögin höfnuðu á föstudag. 25.2.2025 22:09
Engin röð á Læknavaktinni Undur og stórmerki gerðust þegar feðgar mættu á Læknavaktina í Austurveri á níunda tímanum í kvöld. Fáir bílar á bílastæðinu hefðu átt að vera vísbending en það kom þeim engu að síður í opna skjöldu og skemmtilega á óvart að röðin var engin. 25.2.2025 21:51
Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til Kennari sem hefur mikla reynslu af börnum með hegðunarvanda segir skort á fjármagni og fagfólki ástæðuna fyrir því að ekki sé unnið rétt með hópinn. Stokka þurfi kerfinu upp. Tvö sveitarfélög á öllu landinu bjóði upp á úrræði fyrir börn sem glími við slíkar áskoranir en biðlistinn sé langur. Kostnaður samfélagsins verði miklu meiri vegna brotinna einstaklingar útskrifast úr grunnskóla. 25.2.2025 15:56
Auðveldara verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir Einfalda þarf regluverk til að geta breytt atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði og setja kvaðir á nýtingu íbúðarhúsnæðis til skammtímaleigu. Auka þarf framboð íbúða verulega og endurskoða byggingarreglugerð. 25.2.2025 10:01
Fundað á ný í kennaradeilu Samninganefndir í kjaradeilu kennara hafa verið boðaðar til fundar í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan 15 í dag. Ekki hefur verið fundað í deilunni síðan sveitarfélögin höfnuðu innanhússtillögu sáttasemjara á föstudag og ríkið tók ekki afstöðu til hennar. 25.2.2025 09:44
Kennarar mótmæla við bæjarráðsfund Kennarar í Garðabæ fjölmenntu í Sveinatungu á Garðatorgi í morgun til að minna á kjarabaráttu sína. Fundur bæjarráðs hófst klukkan átta og liggja kennarar á gluggunum með fána á lofti meðan fundurinn fer fram. Boðað hefur verið til fundar í deilunni hjá sáttasemjara klukkan 15 í dag. 25.2.2025 09:05