Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Hampiðjan hefur greitt viðbótarkaupgreiðslu til seljenda indverska kaðlaframleiðandans Kohinoor Ropes upp á 4,14 milljónir evra, eða um 569 milljónir króna, þar sem að reksturinn fór fram úr væntingum. 2.10.2026 00:05
„Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Hin fimmtuga Christa Pike, sem var dæmd til dauðarefsingar árið 1996, er enn á lífi en þó sögð í lífshættu eftir misheppnaða aftöku í gær. 1.10.2026 23:15
„Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Skyndileg starfslok Harðar Arnarsonar sem forstjóra Landsvirkjunar koma í kjölfar ágreinings milli hans og stjórnar Landsvirkjunar. Stjórnarformaðurinn segir forstjórann og stjórnina ekki ávallt hafa verið sammála um allt en hún þakkar Herði fyrir glæsilegan sautján ára feril hjá félaginu. 1.10.2026 21:31
Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Landsréttur taldi það ekki skipta máli hvort ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur um Ingó veðurguð hafi verið sett fram í kaldhæðni enda væri ekki hægt að túlka þau á annan veg en að Ingó hefði nauðgað ungum konum og beitt þær ofbeldi. Ummælin voru dæmd dauð og ómerk. 1.10.2026 19:30
Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Bresk-íranskur ríkisborgari hefur verið handtekinn í Bretlandi þar sem hann er grunaður um að skipuleggja hryðjuverk í tengslum við atvik við RAF Fairford-herstöðina um helgina. Breskir og bandarískir ráðamenn hafa sakað írönsk stjórnvöld um aðkomu að atvikinu en þau þvertekið fyrir það. 1.10.2026 19:01
Marco Rubio á leið til Íslands Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Íslands í næstu viku eftir að hafa þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn. Hans má vænta hinn 5. október en að því loknu heldur Rubio til Grikklands og Portúgal. 1.10.2026 18:07
Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Starfsmaður á byggingarsvæði í Neskaupstað slasaðist alvarlega á þriðjudag þegar hann féll af svölum. Hann er ekki talinn í lífshættu. 1.10.2026 17:24
„Ég hafna samningi þeirra“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann hafi hafnað tillögu Írana sem fólst í því að opnað yrði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á ný. Hann segir tillöguna „óásættanlega“. 26.9.2026 21:30
Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Hinsegin bar í bandarískum smábæ hefur ratað í kastljós heimsmiðla eftir að eigandinn tók þá umdeildu ákvörðun að aflétta grímuskyldu á laugardögum, sem vakti hörð viðbrögð frá fastakúnnum. 26.9.2026 18:59
Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Kína og Bandaríkin hafa samþykkt að koma á fót sérstakri „samskiptarás“ til að meðhöndla atvik er tengjast gervigreind og flýta fyrir vinnu við samskipti í hernaðarlegum neyðartilvikum. 26.9.2026 13:53