Fimmtán ára stúlka um borð í bát með alræmdum ofbeldismanni Tæplega 24 ára karlmaður var handtekinn við höfnina í Reykjanesbæ á fjórða tímanum í dag eftir að tilkynnt var að fimmtán ára stúlka í Vestmannaeyjum hefði ekki skilað sér heim í gær. Stúlkan fannst um borð í bát við veiðar á Suðurnesjum. Karlmaðurinn á sögu um gróft ofbeldi. 2.4.2023 18:16
Bjarni væri að fá falleinkunn í skóla Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja ríkisstjórnina gera of lítið og of seint í baráttunni gegn verðbólgunni með nýrri fjármálaáætlun. 31.3.2023 23:32
Einhverfufélagið blæs til listasýningar: „Við getum gert allt sem annað fólk getur gert“ Nóg verður um að vera í húsnæði Hamarsins ungmennahúss í Hafnarfirði um helgina þar sem Einhverfufélagið hefur sett upp listasýningu. 31.3.2023 23:02
Umboðsmaður krefur Bjarna frekari svara Umboðsmaður Alþingis hefur ritað fjármála- og efnahagsráðherra bréf þar sem farið er fram á svar við því hvernig fyrra svar hans samrýmist tilkynningu ráðuneytisins um birtingu vinnuskjala ríkisendurskoðanda 31.3.2023 22:02
Júlíus Viggó vill leiða Heimdall Júlíus Viggó Ólafsson gefur kost á sér í formannsæti Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Magnús Benediktsson er varaformannsefni framboðslistans en kosið verður í Valhöll á þriðjudaginn kemur. 31.3.2023 21:24
Væri búin að taka RÚV af auglýsingamarkaði væri það lausnin Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og ferðamálaráðherra, segir daginn í dag hvorki vera góðan fyrir fjölmiðlun né lýðræði í landinu. Hún segir yfirvöld hafa stóraukið stuðning við einkarekna fjölmiðla og að hún væri búin að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði væri það lausnin við vanda fjölmiðla á borð við Fréttablaðið, sem gefið var út í hinsta sinn í morgun. 31.3.2023 20:30
Tate-bræður úrskurðaðir í stofufangelsi Samfélagsmiðlastjarnan umdeilda Andrew Tate, bróðir hans Tristan og tveir vitorðsmenn þeirra eru lausir úr gæsluvarðhaldi í Rúmeníu. Þeir hafa hins vegar verið úrskurðaðir í stofufangelsi. 31.3.2023 19:32
Vesturlandsvegi var lokað vegna slyss Vesturlandsvegi var lokað í norðurátt nú síðdegis. Vegurinn hefur verið opnaður á ný en töluverðar umferðartafir hafa orðið vegna slyssins. 31.3.2023 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hátt í eitt hundrað misstu vinnuna í morgun þegar Fréttablaðið, annað tveggja dagblaða landsins, var lagt niður. Ritstjóri segir daginn sorgardag og starfsmenn eru í áfalli. Við fáum Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem hefur málefni fjölmiðla á sínu borði, til að fara yfir stöðu fjölmiðla á Íslandi í beinni. 31.3.2023 18:01
Ekki talið óhætt að aflétta rýmingum frekar Veðurstofa Íslands hefur kannað ástand hlíða á Austurlandi með tilliti til rýminga í dag. Ekki þykir óhætt að aflétta rýmingum frekar að svo stöddu. 31.3.2023 17:50