Rigning eða slydda norðan- og austanlands Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag þar sem yfirleitt má reikna með vindi þremur til tíu metrum á sekúndu. 26.9.2024 07:13
Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Árni Geir Valgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Origo og mun hann leiða hugbúnaðarsvið félagsins frá októbermánuði. 25.9.2024 13:27
Prince-dansarinn Cat er látinn Bandaríski dansarinn Catherine Vernice Glover frá Chicago, betur þekkt sem Cat, er látin, sextug að aldri. Cat var ein nánasta samstarfskona bandaríska tónlistarmannsins Prince á hans ferli. 25.9.2024 13:00
Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Haustráðstefna Stjórnvísi fer fram í dag og ber hún yfirskriftina „Snjöll framtíð“ að þessu sinni. 25.9.2024 08:33
Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk, aðgengi að fjármögnun gott og fjármögnunarkostnaður erlendis hefur lækkað. Þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa getur skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið. Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5 prósentum. 25.9.2024 08:33
Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, segir að bílaumboðið hafi ávallt og muni áfram leggja sig mikið fram við að leiðbeina og aðstoða viðskiptavini eins hægt er. Hann segir fyrirtækið hafa lagt sig fram við að ná lausn í máli ósátts viðskiptavinar þó að bíll viðkomandi hafi ekki lengur verið í ábyrgð. Niðurstaðan hafi líka verið sú að hann hafi ekki greitt neitt vegna málsins. 25.9.2024 08:10
Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sem nýjan formann stjórnar Matvælasjóðs. 24.9.2024 14:31
Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris í Svartsengi heldur áfram á svipuðum hraða og verið hefur og hefur kvikusöfnun sömuleiðis haldið áfram á svipuðum hraða og síðustu vikur. Lítil jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina að undanförnu. 24.9.2024 14:02
Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir milli klukkan 13 og 16:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. 24.9.2024 12:32
Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Alls voru 16,8 prósentum færri íbúðir í byggingu á landinu í september en á sama tíma á síðasta ári. Ljóst má vera að framkvæmdir eru að hefjast á of fáum íbúðum ef ekki á að verða frekari samdráttur á nýjum íbúðum. 24.9.2024 07:55