Búast við nýju fjölmiðlafrumvarpi Páll Magnússon þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að reynt hafi verið að ná samkomulagi milli stjórnarflokkanna um fjölmiðlafrumvarpið sem menntmálaráðherra lagði fram á síðasta ári og fjallar um opinberan fjárstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Nú sé búist við að nýtt frumvarp verði lagt fram. 29.11.2020 20:00
Sjö ára drengur veiktist lífshættulega eftir að hafa fengið Covid-19 Sjö ára íslenskur drengur veiktist lífshættulega nú í haust af bráða- bólguheilkenni í tengslum við Covid-19. 29.11.2020 18:04
Segir forgangsröðun bólusetninga skringilega, elstir eigi að fara fyrst Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur forgangsröðun í bólusetningu skringilega þar sem 60 ára og eldri eru í sjötta sæti forgangslista. Hann leggur til að 85 ára og eldri verði bólusettir fyrst því þeir séu í mestri hættu ef þeir veikjast. Hann telur að heilbrigðisráðherra muni líta til þessa. 29.11.2020 12:30
„Ætlum að stytta biðtíma og álag á bráðadeild“ Stytta á biðlista og minnka álag á bráðamóttöku Landspítalans með fjölda umbótaverkefna en búist er við að þeim ljúki í febrúar á næsta ári. Yfirlæknir bráðaþjónustu spítalans segir að mikil ásókn sé í störf á deildinni. 29.11.2020 12:01
Segir Kára vega ómaklega að sér Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir tölur dagsins á svipuðum nótum og undanfarið. Sveiflur geti orðið á milli daga og ekki megi draga of sterkar ályktanir af einum degi. 29.11.2020 11:45
Aðstoðar jólasveina með gjafirnar í desember Jólasveina hjálparkokkar taka sig saman fyrir jólin og aðstoða jólasveina með skógjafir. Þeir útvega líka gjafir handa börnum þeirra sem eiga ekki sjálfir fyrir þeim. 28.11.2020 22:30
Telur skilaboð sóttvarnayfirvalda hafa valdið kæruleysi Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur að skilaboð sóttvarnayfirvalda fyrir nokkrum vikum hafi mögulega valdið því að fólk hafi byrjað að slaka of mikið á. Hann segir mikilvægt að ekki sé spáð í framtíðina þegar um svo ótúreiknanlegan faraldur sé að ræða. Ekki sé rými fyrir tilslakanir fyrr en á næsta ári. 28.11.2020 18:24
Kapp lagt á að TF- GRÓ verði tilbúin á morgun Flugvirkjar Landhelgisgæslunnar sneru á ný til vinnu í morgun eftir að lög voru sett á verkfall þeirra í gær. 28.11.2020 14:27
Mikið um ölvun og hávaðakvartanir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að töluverður erill hafi verið hjá lögregluþjónum í nótt. Mikið hafi verið um ölvunartengd mál og hávaðakvartanir. 28.11.2020 13:21
Eitt boð ber tölurnar uppi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að stóran hluta dreifingar Covid-19 sem greinst hefur að undanförnu megi rekja til eins fjölskylduboðs. Hann segir tölurnar í dag svipaðar og í gær en þó hafi fleiri verið í sóttkví við greiningu. Það gæti verið til marks um línulegan vöxt. 28.11.2020 11:45