Litlu nær um peningana í Fljótagöng Enn vantar skýr svör um framlag ríkisins til Fljótaganga að mati Stefáns Vagns Stefánssonar þingmanns. Hann spurði um fjárveitingu til ganganna en innviðaráðherra vísaði til heimildar til að leggja fé eða eignir í innviðafélagið, án þess að nefna fjárhæð. 21.9.2026 16:33
Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum Vísbendingar eru um að útgerðir nýti sér reglur gegn brottkasti fisks til að hagnast, að mati atvinnuvegaráðuneytisins. Tekjur Verkefnasjóðs sjávarútvegsins hafa rúmlega fjórfaldast á fimm árum samhliða auknum löndunum á fiski sem ekki dregst frá kvóta skipanna. 21.9.2026 15:45
„Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Skoða á hvort hlaðvörp þurfi að skrá sig sem fjölmiðla þegar fjölmiðlalögum verður breytt, sagði Logi Einarsson menningarmálaráðherra á Alþingi. Hann sagðist einnig vera að kanna hvort hægt væri að skýra reglurnar með reglugerð. Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hann á Alþingi hvort eðlilegt væri að fjölmiðlanefnd hótaði hlaðvarpsfólki dagsektum á meðan beðið væri eftir breytingum á fjölmiðlalögum. 21.9.2026 14:50
Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Þreifingar voru í gær milli samninganefnda flugvirkja og Icelandair um að þoka kjaraviðræðum áfram. Framhaldið hefur ekki verið ákveðið en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudags, 23. september. 21.9.2026 13:03
Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Kópavogsbær ætlar að skoða hvort fólk þurfi að hafa búið á Íslandi í tiltekinn tíma til að fá fulla fjárhagsaðstoð. Bæjarstjóri vísar til danskra reglna og segir hlutfall útlendinga meðal þeirra sem fá aðstoð hjá bænum hafa hækkað úr 33 í 71 prósent frá árinu 2021. Engar vísbendingar séu þó um misnotkun kerfisins. 21.9.2026 12:57
Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Sáttasemjari hefur hvatt fulltrúa Icelandair til að leggja áherslu á færri mál í kjaraviðræðum við flugmenn, að sögn samninganefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Nefndin telur umfangsmikinn kröfulista félagsins hindra framgang viðræðnanna. 18.9.2026 16:19
Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Fundur flugvirkja og Icelandair hjá ríkissáttasemjara lauk án árangurs í dag. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall flugvirkja aðfaranótt miðvikudagsins 23. september, eftir fimm daga. 18.9.2026 13:52
Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Stofnun innviðafélagsins Ganga og brúar er líka pólitískt verkefni um að sýna að lýðræðislega kjörnar ríkisstjórnir geti komið stórum hlutum í verk, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Hún segir stóra erlenda fjárfesta sýna félaginu áhuga og að með því skapist fjárhagslegur rammi fyrir Sundabraut og fleiri stór samgönguverkefni. 17.9.2026 16:27
Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Rúmlega þúsund farþegar Icelandair hafa nýtt sér boð félagsins um að færa flug vegna fyrirhugaðs verkfalls flugvirkja. Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilunni en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudagsins 23. september. 17.9.2026 11:35
Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Skannbíll Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á töluverðan þátt í að tekjur sjóðsins fóru 258 milljónum króna fram úr áætlun á fyrri helmingi ársins, að sögn deildarstjóra hans. Hann segir tæknina einnig gera sjóðnum kleift að sinna eftirliti með færra starfsfólki en áætlað var. 16.9.2026 16:20