Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Eigendur Fjölskyldulands gætu þurft að loka náist ekki að snúa erfiðum rekstri við. Eigandinn segir þjónustuna afar mikilvæga, ekki síst fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að ná að aðlagast íslensku samfélagi. 13.8.2024 23:13
Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Náttúruvársérfræðingur segir litlar líkur á að gos hefjist innan bæjarmarka Grindavíkur. Starfsmenn Veðurstofunnar eru nú í biðstöðu og bíða eftir kvikuhlaupi eða eldgosi sem gæti hafist hvenær sem er. 13.8.2024 12:16
Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Ráðherrar hafa undanfarið tekist á um nytsemi gjaldfrjálsra námsgagna og máltíða í grunnskólum landsins. Háskólaráðherra segir það sóun á almannafé en barnamálaráðherra vill ganga enn lengra. Fyrrverandi borgarstjóri segir að allir eigi að standa saman um fjárfestingar í málefnum barna og jafnrétti til náms. 11.8.2024 22:58
Treystir Útlendingastofnun fullkomlega Um sjö fjölskyldum frá Venesúela var vísað úr landi í gær þrátt fyrir óöldina þar í landi eftir umdeildar forsetakosningar fyrir rúmri viku síðan. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segist treysta mati útlendingayfirvalda í málaflokknum. 11.8.2024 12:23
„Fullorðna fólk, grow up!“ Páll Óskar segir að á meðan fólk er ennþá að kasta pílum í það hvernig fólk lítur út, hvað það gerir eða hvernig það lifir lífinu sínu, séum við ekki frjáls, og Gleðigangan haldi áfram. Fólk sem dreifi óhróðri og óábyrgum upplýsingum á netinu þurfi að þroskast. 11.8.2024 10:24
„Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Hælisleitendur óttast um líf sitt verði þeir sendir til baka til Venesúela frá Íslandi. Lögmaður segir útlendingayfirvöld ekki taka mið af óöldinni sem ríkir í Venesúela eftir endurkjör forsetans. Flugvél full af hælisleitendum frá Venesúela flýgur frá Keflavíkurflugvelli í kvöld. 10.8.2024 19:30
Afnám tolla myndi gera út af við íslenskan landbúnað Hart hefur verið tekist á um afnám matvælatolla síðustu daga. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir það skila sér í minni verðbólgu en framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði segir starfstéttina geta lagst niður verði það gert. 10.8.2024 14:32
Gengur ekki að fólk sé að rústa húsum á Þjóðhátíð Íbúi í Vestmannaeyjum kom að heimili sínu í rúst eftir að hafa leigt það út til tíu ungra manna á Þjóðhátíð í ár. Formaður Þjóðhátíðarnefndar segir mörg ár síðan hann hafi séð frágang í húsi svo slæman eftir Þjóðhátíð. 10.8.2024 12:09
Vara við gasmengun við upptök Skálmar og Múlakvíslar Rafleiðni hefur farið hækkandi í Skálm og Múlakvísl frá seinnipartinum í gær en vatnshæðin hefur haldist nokkuð stöðug. 10.8.2024 10:08
Bjóða upp á langlægsta verðið en samkeppnisaðilar óttast ekkert Bolt, eitt stærsta deilirafskútufyrirtæki heims, hefur hafið starfsemi á Íslandi. Leiguverðið er mun lægra en það sem þekkist hér á landi, þó það gæti breyst á næstu mánuðum. Samkeppnisaðili óttast ekki innkomu risans á markað. 9.8.2024 22:00