Fresta ákvörðun um þátttöku í Eurovision Ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision á næsta ári hefur verið frestað þar til í næstu viku. Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar og fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins, sagði fyrr í vikunni að ákvörðunin yrði tekin í þessari viku en henni hefur verið frestað þar til eftir helgi. Ísland lenti í seinasta sæti á Eurovision í ár. 6.9.2024 15:10
Mjúk lending frekar en niðurskurður í fjárlögum Sigurður Ingi Jóhannsson mun leggja fram fjárlagafrumvarp næstkomandi þriðjudag. Hann segist bjartsýnn um að sátt verði um frumvarpið, en getur ekki tjáð sig um innhald þess að svo stöddu. 6.9.2024 15:07
DD-listi gæti haft góð og slæm áhrif á Sjálfstæðisflokkinn Stjórnmálafræðingur segir fólk geta túlkað það sem veikleikamerki leyfi Sjálfstæðisflokkurinn framboð DD-lista. Örfá fordæmi eru fyrir viðbótarlistum í íslenskri stjórnmálasögu. 6.9.2024 14:35
Fylla upp í sprungur í von um að hægt verði að opna Grindavík aftur Vinna við sprungufyllingar í Grindavík gengur vel, þó að verkið vinnist seint, að sögn verktaka. Hann er fullviss um að eftir að fyllt verður í sprungur og hættusvæði girt af verði hægt að flytja aftur í bæinn. 5.9.2024 20:20
Allir austur um helgina Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar hvetur alla landsmenn að ferðast austur í veðurblíðuna um helgina. Á Vestfjörðum og Norðurlandi eru gular veðurviðvaranir, og losnaði bátur frá bryggju á Ísafirði vegna veðurofsans. 5.9.2024 12:14
Bolli baðst afsökunar eftir orrahríð dagsins Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um stúlkur í Sjálfstæðisflokknum. Formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna segir ummælan dæma sig sjálf en tekur afsökunarbeiðninni og býður Bolla aftur velkominn í flokkinn. 4.9.2024 21:35
Ræðst á morgun hvort Ísland taki þátt í Eurovision Ríkisútvarpið mun á morgun tilkynna hvort Ísland muni taka þátt í Eurovision í Basel á næsta ári. Fararstjóri íslenska hópsins sagði eftir keppnina í ár að hann gerði ráð fyrir því að Ísland tæki aftur þátt í ár, en ekkert væri meitlað í stein. 4.9.2024 12:46
Flokkurinn þurfi ekki „nýútskrifaðar stúlkur sem ætla bara að blása á sér hárið og naglalakka sig“ Sjálfstæðismaður segir stofnun nýs framboðs tengdu flokknum vera mikilvægt til að sækja þá kjósendur sem hafa yfirgefið flokkinn síðustu ár undir núverandi forystu. Einungis þeir sem hafa áorkað eitthvað í lífinu fengju sæti á lista framboðsins. 4.9.2024 11:52
Kílómetragjaldið verst fyrir þá tekjulægri Sérfræðingur hjá Alþýðusambandinu telur frumvarp fjármálaráðherra um upptöku kílómetragjalds koma verst niður á tekjulægri hópum. Þá hefur hún áhyggjur af því að olíufélögin nýti tækifærið til að auka gróðann. 3.9.2024 12:32
Æfðu viðbragð eftir stórt brunaslys með Bandaríkjaher Viðbragðsaðilar á Íslandi ásamt Bandaríkjaher æfðu í dag viðbragð við því ef fjöldi fólks fengi alvarleg brunasár á sama tíma. Æfingin gekk vel að sögn þátttakenda sem margir hverjir brugðu sér í gervi sjúklinga. 2.9.2024 23:02
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent