Fréttamaður

Eiður Þór Árnason

Eiður Þór er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Kona á sjötugs­aldri lenti á sjúkra­húsi með 125 pakkningar inn­vortis

Portúgölsk kona á sjötugsaldri sem reyndi að smygla fíkniefnum innbyrðis til landsins þurfti að fara í bráðaaðgerð og liggur nú á Landspítalanum. Málum sem snúa að burðardýrum hefur fjölgað verulega að sögn lögreglu. Að jafnaði séu hátt í tuttugu manns í gæsluvarðhaldi vegna slíkra brota á Suðurnesjum.

Tók málin í eigin hendur þegar er­lenda vinnu­aflið kom ekki

Helga Rún Jóhannsdóttir þurfti að taka málin í sínar eigin hendur þegar seinkun á afhendingu vörugáms leiddi til þess að hópur erlendra verkamanna gat ekki sett upp padelvöllinn hennar á Reyðarfirði. Hann verður sá fyrsti á Íslandi utan höfuðborgarsvæðisins. Helga starfaði áður erlendis fyrir eitt stærsta fjárfestingarfyrirtæki heims en vill núna sinna verkefnum sem þjóna betur samfélaginu.

„Hann heitir bara Leó páfi held ég“

Umdeildur málflutningur kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um samkynhneigða var ekki ræddur á fundi forseta lýðveldisins með Leó fjórtánda páfa í dag. Forsetinn segist ávallt tala fyrir jafnréttisgildum Íslendinga en áherslan hafi frekar verið á stöðu heimsmálanna. Ljóst sé hvað nýi páfinn verði kallaður í samfélagsmiðlafærslum.

Fjórir í varð­haldi vegna Detti­fossmálsins

Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem snýr að innflutningi á rúmlega fjórtán lítrum af amfetamínbasa, að sögn lögreglu. Áður kom fram að þrír þeirra hafi verið handteknir í viðamiklum aðgerðum um miðjan apríl í tengslum við meintan innflutning með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips.

Ó­vissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfs­menn

Íslandshótel munu hefja hótelrekstur í húsnæði við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg sem hefur hýst Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samhliða því lætur Berjaya Hotels Iceland af rekstri hótelanna en malasíska fyrirtækið keypti hann af Icelandair Group árið 2019. Stjórnendur Íslandshótela hyggjast taka yfir ráðningarsamninga starfsfólks.

Horfa á eftir Stein­grími og spara 180 milljónir á ári

Stjórn Fossa fjárfestingarbanka hefur samið við Steingrím Arnar Finnsson um starfslok en hann hefur verið forstjóri Fossa frá árinu 2023. Brynjar Þór Hreinsson tekur við eftir að hafa verið fjármálastjóri móðurfélagsins Skaga hf. frá árinu 2023.

Sjá meira