Sökuðu hvor annan um hringlandahátt Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra, svaraði þingmanni Pírata fullum hálsi sem sagði hringlandahátt ríkja í stefnu stjórnvalda um veggjöld. Sigurður Ingi sakaði Pírata á móti um hringlandahátt í sinni stefnu. 24.10.2019 13:30
„Ekki krúttlegur friðarklúbbur“ Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um aðild Norður-Makedóníu að NATO með 32 atkvæðum en 11 sátu hjá. Þeirra á meðal voru allir þingmenn Vinstri grænna en flokkurinn hefur alla tíð verið andvígur aðild Íslands að NATO. 24.10.2019 11:44
Þorsteinn studdi ekki tillögu um frumkvæðisathugun á verklagi ráðherra Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, segist ekki hafa stutt tillögu um að hefja frumkvæðisathugun á verklagi ráðherra í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka þar sem ekki lægi nægilega ljóst fyrir hvernig ætti að framkvæma slíka athugun 23.10.2019 20:47
Ekki megi stilla upp aðferðum við kolefnisbindingu sem andstæðum Margvísleg mistök voru gerð við framræslu votlendis á Íslandi að sögn þingmanns Framsóknarflokksins. Gæta þurfi að því að falla ekki í sömu gryfjuna við endurheimt þess. 23.10.2019 20:00
Skipar samráðsnefnd um fiskeldi Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samráðsnefnd um fiskeldi. Nefndin mun meðal annars hafa það hlutverk að meta forsendur og úrvinnslu gagna sem áhættumat erfðablöndunar byggist á. 23.10.2019 12:45
Allir nema einn samþykktu að hefja frumkvæðisrannsókn Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samþykkti á fundi sínum í dag að hefja frumkvæðisrannsókn á verklagi ráðherra í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Tillagan var samþykkt með öllum atkvæðum nefndarmanna nema einu. 23.10.2019 12:03
Segir stjórnvöld ekki hafa verið með augun á boltanum í vörnum gegn peningaþvætti Fjármálaráðherra segir að vera Íslands á gráum lista hafi ekki haft veruleg áhrif til þessa. Dómsmálaráðherra bindur vonir við að Ísland komist af listanum í febrúar. 22.10.2019 20:45
Lokun skólans yrði reiðarslag fyrir hverfið Faðir þriggja barna í Kelduskóla-Korpu segir áform borgaryfirvalda um að loka skólanum vera reiðarslag fyrir íbúa, foreldra og börnin í hverfinu. 22.10.2019 20:30
Segir vinnubrögðin vera meirihlutanum til skammar Ákvörðun og vinnubrögð meirihlutans í Reykjavík um að skólahald í Kelduskóla-Korpu verði lagt niður eru til skammar að sögn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. 22.10.2019 12:54
„Dálítið ófyrirsjáanlegt og ógagnsætt” Fjármálaráðherra segir ferlið við ákvörðun um grálistun FATF-hópsins, sem vaktar varnir ríkja gegn peningaþvætti, vera ógagnsætt. 22.10.2019 11:41
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti