Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu. 16.4.2026 06:55
Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Rannsókn BBC hefur leitt í ljós að lögmenn og ráðgjafar á Bretlandseyjum hafa rukkað hælisleitendur um háar fjárhæðir fyrir aðstoð, þar sem þeim er leiðbeint með það að þykjast vera samkynhneigðir í þeim tilgangi að fá hæli. 15.4.2026 07:31
Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að viðræður við Írani myndu mögulega hefjast á ný á næstu dögum. 15.4.2026 06:44
Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Rannsókn á mögulegu þjófagengi sem er sagt hafa látið greipar sópa í versluninni Freysnesi í Öræfum þann 29. mars síðastliðinn stendur enn yfir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. 14.4.2026 11:55
Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Péter Magyar, verðandi forsætisráðherra Ungverjalands, hefur heitið því eftir mikinn kosningasigur um helgina að draga þá til ábyrgðar sem hann segir hafa svikið og arðrænt Ungverja. Þá hefur hann kallað eftir því að forseti landsins, yfirsaksóknari og yfirmenn þeirra stofnana sem sinna eftirliti með fjölmiðlum og samkeppni segi af sér. 14.4.2026 07:55
Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael. 14.4.2026 06:34
Trump hjólar í páfa Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn gegn Leó páfa á samfélagsmiðlum í nótt og í samtali við fréttamenn. Hann sagðist ekki aðdáandi páfa, sakaði hann um að ganga erinda vinstri manna og sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn. 13.4.2026 06:46
Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Svo virðist sem dánartilkynning hafi birst í Morgunblaðinu í morgun um mann sem er sprelllifandi. Maðurinn, Sölvi Guðmundarson, ber fregnirnar af sér í færslu á Facebook, í skilaboðum til ættingja og vina. 10.4.2026 08:34
Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn á Truth Social í gær og sagði nokkra stuðningsmenn sína heimska brjálæðinga, í kjölfar gagnrýni þeirra á hernað Bandaríkjanna í Íran og hótanir Trump um tortímingu íranskrar siðmenningar. 10.4.2026 06:58
Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Umhverfisverndarsamtökin Marine Conservation Society hafa hvatt neytendur til að forðast breskan þorsk og kaupa heldur þorsk frá Íslandi, þar sem nóg sé af honum. Samtökin gefa út leiðarvísinn Good Fish Guide, þar sem neytendur og fyrirtæki eru hvött til að haga innkaupum sínum í þágu sjálfbærra veiða. 9.4.2026 12:18