Páskaeggin við það að klárast Það fer nú hver að verða síðastur að tryggja sér páskaegg en þau eru að klárast í flestum verslunum. Þetta staðfesta framkvæmdastjórar Hagkaup og Krónunnar og þá hefur Vísir fengið það staðfest að handgerð páskaegg Hafliða Ragnarssonar séu uppseld. 3.4.2021 15:20
Bóluefni virðast örugg og veita bæði móður og barni vörn Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að það sé bæði öruggt og áhrifaríkt að bólusetja þungaðar konur. Þá benda þær til þess að bólusetning veiti barninu einnig vörn gegn Covid-19. 3.4.2021 13:19
Minna en helmingur Bandaríkjamanna segist tilheyra trúarsöfnuði Minna en helmingur fullorðinna Bandaríkjamanna segist tilheyra kirkju, sýnagógu eða mosku, samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Könnunin leiddi í ljós að aðeins 47 prósent tilheyra trúarsöfnuði en hlutfallið var 70 prósent rétt fyrir aldamót. 3.4.2021 11:52
Ítalir skella í lás yfir páska: Um 20 þúsund greinast á degi hverjum Ítalía er eldrauð þegar kemur að kórónuveirufaraldrinum og hefur allt verið sett í lás í þrjá daga til að koma í veg fyrir enn meiri fjölgun tilvika yfir páska. Um 20 þúsund ný tilfelli Covid-19 greinast nú á degi hverjum. 3.4.2021 10:23
Tugþúsundir heilbrigðisstarfsmanna þjást af langvarandi Covid Að minnsta kosti 122 þúsund starfsmenn opinberu heilbrigðisþjónustunnar (NHS) þjást af langvarandi áhrifum Covid-19, samkvæmt hagstofu Bretlands. Stjórnendur NHS eru uggandi vegna áhrifa þessa á mönnun. 3.4.2021 08:58
Lokað fyrir umferð að gosstöðvunum í dag Vegna veðurs verður lokað fyrir umferð að gosstöðvunum í Geldingadölum í dag. Þetta kom fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum í gær og stendur enn, að sögn Gunnars Schram yfirlögregluþjóns. 3.4.2021 08:02
Sleginn í höfuðið af grímuklæddum árásarmanni Maður hafði samband við lögreglu snemma í gærkvöldi og sagðist hafa orðið fyrir árás af höndum grímuklædds manns í hverfi 105. Sagði hann árásarmanninn hafa slegið sig í höfuðið með áhaldi og þá reyndist hann einnig með áverka á hendi. 3.4.2021 07:06
Cocoa Puffs og Lucky Charms verða ekki fáanleg á Íslandi Cocoa Puffs og Lucky Charms verða brátt ófáanleg á Íslandi ef marka má tilkynningu frá Nathan & Olsen. Þar segir að framleiðandinn General Mills hafi nýlega upplýst að ný uppskrift samræmist ekki Evrópulöggjöf. 31.3.2021 13:58
Bóluefni Pfizer með fullkomna virkni hjá tólf til fimmtán ára Forsvarsmen Pfizer segja nýjustu rannsóknir sýna að bóluefni fyrirtækisins gegn Covid-19 sé 100 prósent virkt þegar það er gefið börnum á aldrinum 12 til 15 ára og framkalli öflugt ónæmisviðbragð. 31.3.2021 13:09
Ekki alvarleg nauðgun fyrst þolandinn valdi að verða ölvaður Dómstólar í Minnesota í Bandaríkjunum máttu ekki dæma mann fyrir alvarlega (e. felony) nauðgun, þar sem konan sem hann braut gegn neytti áfengis sjálfviljug áður en árásin átti sér stað. 31.3.2021 11:51