Starfsmenn Sólheima óttaslegnir vegna óvæntra breytinga Starfsmenn Sólheima eru uggandi vegna breytinga í yfirstjórn. Sá ótti kemur meðal annars fram í yfirlýsingu sem 53 starfsmenn Sólheima í Grímsnesi undirrita en þar lýsa þeir meðal annars yfir vonbrigðum með skorti á samráði og því að Kristni Ólafssyni framkvæmdastjóra skyldi vera vikið úr starfi. Undir hans stjórn hafi viðhorf til starfsemi Sólheima breyst til hins betra. Nú horfi til verri vegar. 18.2.2025 11:21
Ragna Árnadóttir hættir á þingi Ragna Árnadóttir mun taka við starfi forstjóra Landsnets og mun því hætta sem skrifstofustjóri Alþingis í ágúst. 17.2.2025 13:32
„Kemur ekki til greina að niðurgreiða hreindýraveiðar“ Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra segir það svo, vegna tuttugu prósenta hækkunar á veiðigjöldum á hreindýr, að gjaldið verði að sjálfsögðu að standa undir eftirliti og stjórnunar veiðanna. 14.2.2025 16:25
Dómarinn kveður Facebook með tárum Brynjar Níelsson héraðsdómari, en hann hefur verið einhver vinsælasti gasprari á Facebook, kveður samfélagsmiðilinn og segir tal þar ekki samræmast nýju starfi. 14.2.2025 15:27
Bitist um miða á ball vinstri sinnaðs ábreiðubands Bjartar sveiflur er einhver athyglisverðasta og skemmtilegasta hljómsveit landsins. Hún heldur árlega svokallað „Prom-ball“ og var barist um miðar á ballið sem verður í kvöld. 14.2.2025 13:46
Forsetinn klyfjaður krossum til Danmerkur Þegar Halla Tómasdóttir forseti Íslands fór til Danmerkur 8. nóvember 2024 í umtalaða heimsókn mætti hún ekki tómhent. Hún útbýtti stórkrossum, stórriddarakrossum, jafnvel með stjörnu, á báða bóga. 14.2.2025 10:26
Vilja afnema sérréttindi opinberra starfsmanna Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja afnema sérréttindi sem opinberir starfsmenn hafa notið þegar þingfararkaup þingmanna er annars vegar. 13.2.2025 16:12
Jóhann Páll hækkar hreindýraveiðileyfi hressilega Gjald fyrir hreindýraveiðileyfi hækkar verulega á milli ára eða um tuttugu prósent eins og sjá má í stjórnartíðindum. 13.2.2025 15:12
Fróm fyrirheit í jómfrúarræðuhlaðborði Ekki er víst að annar eins her þingmanna hafi flutt sínar jómfrúarræður og gerðist nú síðdegis á Alþingi Íslendinga. Ræðurnar voru flestar fluttar af nokkru öryggi og í máli sumra hinna nýju þingmanna mátti greina fróm fyrirheit; þeir ætla að vinna landi og þjóð gagn með störfum sínum. 12.2.2025 17:46
Heimir Már til liðs við Ingu og Flokk fólksins Heimir Már Pétursson, einhver vaskasti fréttamaður nú um stundir, hefur söðlað um og tekið að sér að verða framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins. 11.2.2025 14:58