Norðlendingar megi reikna með 10-15 stiga hita í vikunni Miklum hitabreytingum er spáð með mildu lofti úr suðri sem kemur yfir landið í vikunni. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir að norðlendingar meigi reikna með allt að tíu til fimmtán stiga hita á fimmtudag. 14.3.2021 10:50
Brotist inn til Hinriks og Markle í tvígang Karlmaður á fertugsaldri hefur verið kærður fyrir að brjótast inn í setur Hinriks Bretaprins og Meghan Markle, eiginkonu hans, í Kaliforníu yfir jólin. 14.3.2021 10:02
Rafmagnslaust var í hluta Hafnarfjarðar Ekkert rafmagn hefur verið í Arnarhrauni og Smyrlahrauni í Hafnarfirði frá því klukkan hálf sjö í morgun. Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS Veitna segist vonast til að komist verði fyrir bilunina fyrir hádegið. 14.3.2021 09:23
Segja aðgerðir lögreglu á minningarsamkomu hafa verið nauðsynlegar Aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar í London segir að aðgerðir lögreglu gegn konum sem söfnuðust saman til að minnast ungrar konu sem var myrt í borginni hafi verið nauðsynlegar. Borgarstjóri London og innanríkisráðherra Bretlands eru á meðal þeirra sem hafa krafið lögregluna skýringa á framgöngu hennar gegn konunum. 14.3.2021 08:40
Töluvert um ölvun í höfuðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum fjölda útkalla vegna ölvaðs fólks í gærkvöldi og nótt. Tilkynnt var um tvær líkamsárásir í miðbænum. 14.3.2021 07:58
Stærsti skjálftinn í nótt 4,2 að stærð Jarðhræringar á Reykjanesskaga héldu áfram í nótt og var stærsti jarðskjálftinn 4,2 að stærð þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í fimm í morgun. Alls mældust sjö skjálftar þrír eða stærri eftir miðnætti í nótt. 14.3.2021 07:24
Rifjar upp hjólaferð yfir Sprengisand meira en sextíu árum síðar Áratugum áður en Ísland varð að vinsælum áfangastað erlends útivistarfólks hjóluðu Bretinn Ron Bartle og þrír förunautar hans þvert yfir hálendið á sjötta áratug síðustu aldar. Bartle, sem er nú á níræðisaldri, rifjar upp svaðilförina í nýrri stuttmynd kvikmyndagerðarmanns sem reyndi að feta í hjólspor hans. 13.3.2021 20:00
Snjóbíll björgunarsveitar fór niður um ís á hálendinu Engan sakaði þegar snjóbíll frá Flugbjörgunarsveitinni Reykjavík sem var æfingarferð fór niður um ís nálægt Landmannalaugum snemma í morgun. Unnið er að því að koma bílnum aftur upp á fast land. Varhugarverðar aðstæður eru nú á hálendingu vegna hlákutíðar undanfarið. 13.3.2021 14:38
Fjöldi stjórnarandstæðinga handtekinn í Rússlandi Rússnesk yfirvöld handtóku um 150 manns á ráðstefnu stjórnarandstöðu- og óháðra stjórnmálamanna í Moskvu í dag. Þeir eru sakaðir um að tilheyra „óæskilegum“ samtökum. Á meðal þeirra eru nokkrir leiðtogar stjórnarandstöðunnar í landinu. 13.3.2021 13:30
Hvítrússar íhuga að senda inn nýtt lag í Júróvisjón Alexander Lúkasjenka, forseti Hvíta-Rússlands, segir mögulegt að ríkisútvarp landsins sendi inn nýtt lag í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva eftir að upphaflegu framlagi hennar var hafnað sem of pólitísku. Hljómsveitin sem flutti lagið hefur ítrekað hæðst að mótmælendum Lúkasjenka og ríkisstjórnar hans. 13.3.2021 12:26