Ekki hægt að flytja dauðvona dreng í Páfagarð Utanríkisráðherra Bretlands segir best að fela sérfræðingum og dómstólum að taka ákvarðanir um örlög dauðvona drengs. Sjúkrahús Páfagarðs hafði boðist til að taka við drengnum og halda meðferð áfram. 5.7.2017 18:02
Byssumaðurinn á Akureyri metinn ósakhæfur og sýknaður Héraðsdómur Norðurlands eystri mat mann sem skaut á íbúð nágrannakonu sinnar á Akureyri í fyrra ósakhæfan og sýknaði hann. Lögmaður hans segir hann undir reglulegu eftirliti lækna. 5.7.2017 17:28
Varað við hvassviðri á Suðurlandi annað kvöld Veðurstofan varar við allhvassri austanátt syðst á landinu seint annað kvöld og fram á fimmtudagsmorgun. Slíkur vindur geti verið varasamur fyrir farartæki sem eru viðkvæm fyrir vindi eins og húsbíla og hjólhýsi. Hiti gæti náð 17 stigum í innsveitum norðaustantil á morgun. 4.7.2017 23:07
Þrettán kynlífsþrælar leystir úr prísund á Spáni Á fjórða tug meðlima alþjóðlegs glæpagengis sem neyddi fátækar konur frá Búlgaríu út í vændi á suðurströnd Spánar hefur verið handtekinn. Lögreglan frelsaði þrettán konur sem voru kynlífsþrælar í aðgerðinni. 4.7.2017 22:43
Lýst eftir karlmanni á sjötugsaldri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Jóhannssyni. Hann er 67 ára gamall, fæddur árið 1950. Guðmundur er um 175 sm á hæð, með grátt hár og var klæddur í svartar gallabuxur og svartan jakka. Hann fór að heiman frá sér á bifreiðinni MM-A05, sem er Nissan E-NV200, hvít sendibifreið. 4.7.2017 22:06
Öryggisráðið komi saman vegna eldflaugatilrauna Norður-Kóreu Bandaríkjamenn hafa farið fram á að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundi sem fyrst vegna eldflaugartilraunar Norður-Kóreu. Búist er við að fundur verði haldinn strax á morgun. 4.7.2017 21:17
Leiðrétting á gervihnattamælingum slær vopn úr höndum afneitara Gervihnattamælingar sýna nú örlítið meiri hlýnun en hitamælar á jörðu niðri eftir að vísindamenn leiðréttu fyrir skekkjum í þeim. Afneitarar loftslagsvísinda hafa lengi bent á mun á gervihnattamælingum og yfirborðsmælingum til að fullyrða að engin hnattræn hlýnun hafi átt sér stað síðustu 19 árin. 4.7.2017 21:15
Flesti ríki Bandaríkjanna neita að afhenda gögn um kjósendur Fjörutíu og fjögur af fimmtíu ríkjum Bandaríkjanna vilja ekki verða við beiðni "kosningasvindlsnefndar“ Donalds Trump um persónuupplýsingar um kjósendur í ríkjunum. 4.7.2017 19:04
Sjúkrahús Páfagarðs býðst til að taka við langveiku barni Mál Charlie Gard, langveiks drengs sem bíður dauðans, hefur vakið athygli um allan heim. Barnasjúkrahús í eigu Páfagarðs hefur nú boðist til að taka við drengnum til að foreldrarnir geti sjálfir ákveðið hvenær lífsbarátta hans endar. 4.7.2017 18:25
Þremenningar dæmdir skaðabótaskyldir í Marple-málinu Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi kröfu þrotabús Kaupþings um að Hreiðar Már Sigurðsson, Skúli Þorvaldsson og Magnús Guðmundsson sé skaðabótaskyldir vegna tjóns bankans af viðskiptum við félagið Marple Holding. 4.7.2017 17:52