Trump hæðist að sjónvarpskonu og segir hana hafa verið blæðandi eftir andlitslyftingu Bandaríkjaforseti ræðst af ofsa á sjónvarpskonu á Twitter og segir hana með lága greindarvísitölu og klikkaða. Þá fullyrðir hann að hún hafi verið blæðandi eftir andlitslyftingu um áramótin. 29.6.2017 15:03
Ferðabann Trump gegn múslimalöndum tekur gildi Borgarar sex landa þar sem meirihluti íbúa er múslimar geta aðeins komið til Bandaríkjanna ef þeir hafa "náin tengsl“ við landið frá og með miðnætti. Þá tekur ferðabann Donalds Trump gildi að hluta til eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna aflétti lögbanni á hluta þess á mánudag. 29.6.2017 11:28
Youtube-brella endaði með dauða kærastans Nítján ára stúlka í Minnesota hefur verið ákærð fyrir manndráp eftir að Youtube-myndband sem hún og kærasti hennar ætluðu að gera fór hræðilega úrskeiðis. Stúlkan skaut manninn af stuttu færi með öflugri skammbyssu í gegnum bók hann sem hann hélt fyrir brjóstinu. 29.6.2017 10:12
Blaðafulltrúi Hvíta hússins auglýsti vafasamt myndband um leið og hann gagnrýndi gervifréttir Myndband sem sýnir framleiðanda hjá CNN gagnrýna fréttaflutning stöðvarinnar af Donald Trump og Rússum segir ekki alla söguna. Blaðafulltrúi Hvíta hússins mælti með því að allir Bandaríkjamenn horfðu á það þrátt fyrir að hann gæti ekki staðfest sannleiksgildi þess. 28.6.2017 16:59
Boaty McBoatface nær nýjum lægðum í jómfrúarferðinni Fjarstýrði kafbáturinn sem fékk nafnið Boaty McBoatface eftir nafnasamkeppni sem vakti heimsathygli í fyrra er kominn heim úr jómfrúarferð sinni í Suður-Íshafi. Þar rannsakaði hann djúpsjávarstrauma og áhrif þeirra á loftslag jarðar. 28.6.2017 15:45
Leit að þeim sem var saknað á Grænlandi hætt Grænlenska lögreglan segir að leit að þremur fullorðnum og barni sem var saknað eftir flóðbylgjuna á þjóðhátíðaradginn hafi verið hætt. Fólkið er talið af. 28.6.2017 14:28
Kúkur á kaffihúsum: Saurgerlar í ís stóru kaffihúsakeðjanna Kaffihúsakeðjurnar Starbucks, Nero og Costa lofa að grípa til aðgerða eftir að rannsókn BBC leiddi í ljós að saurgerla er að finna í ís á stöðum þeirra á Bretlandi. 28.6.2017 13:26
Fyrrverandi kosningastjóri Trump þáði milljónir frá flokki vilhöllum Rússum Paul Manafort var kosningastjóri Donald Trump þangað til í ágúst. Hann hefur nú skráð sig sem útsendari erlendra aðila og upplýst að hann hafi þegið 17,1 milljón dollara frá úkraínskum stjórnmálaflokki sem er hallur undir Rússland. 28.6.2017 12:03
Sex ákærðir vegna Hillsborough-harmleiksins Yfirlögregluþjónn sem stjórnaði löggæslu þegar 96 stuðningsmenn Liverpool fórust á Hillsborough-vellinum árið 1989 er ákærður fyrir manndráp vegna grófrar vanrækslu. Fimm aðrir, lögreglumenn, lögmaður og yfirmaður hjá Sheffield Wednesday, eru einnig ákærðir fyrir önnur brot. 28.6.2017 10:44
Sarah Palin stefnir New York Times vegna ærumeiðinga Leiðarahöfundur New York Times sakaði Söruh Palin um að hafa stuðlað að skotárás á þingmann demókrata árið 2011 þrátt fyrir að ekki hafi verið sýnt fram á slík tengsl. Palin hefur stefnt blaðinu vegna ærumeiðinga. 28.6.2017 10:08