Viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli vegna yfirgefinnar tösku Sprengjusveit lögreglu var kölluð út um klukkan 18 í dag vegna yfirgefinnar tösku í suðurbyggingu Keflavíkurflugvallar. 16.5.2018 18:29
Ætla að freista þess að fá fóstureyðingarlögunum hnekkt Með lögunum verða fóstureyðingar eftir sex vikna meðgöngu bannaðar í Iowa og löggjöfin því sú strangasta sinnar tegundar í Bandaríkjunum. 15.5.2018 23:30
Guðlaugur Þór fundaði með Mattis í Pentagon Á fundinum ræddu ráðherrarnir helstu áherslumál á vettvangi Atlantshafsbandalagsins í aðdraganda leiðtogafundar bandalagsins í sumar, þ.m.t. auknar áherslur á mikilvægi Norður-Atlantshafsins. 15.5.2018 22:06
„Viðbjóðsleg, tilgerðarleg, kvalafull og aumkunarverð“ kvikmynd von Trier gekk fram af áhorfendum í Cannes Bandaríski leikarinn Matt Dillon fer með aðalhlutverk í myndinni en hann leikur raðmorðingja sem myrðir bæði konur og börn á hryllilegan máta. Uma Thurman fer einnig með hlutverk í myndinni. 15.5.2018 21:30
Hætta við fund með Suður-Kóreu og hóta því að aflýsa Bandaríkjafundi Yfirvöld í Norður-Kóreu segja sameiginlegar heræfingar Suður-Kóreu og Bandaríkjanna ástæðu að baki ákvörðun sinni. 15.5.2018 20:10
Biskup fór ekki að lögum við skipun Páls í embætti héraðsprests Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í gær að biskup hefði átt að skipa Pál í embættið til fimm ára og féllst á kröfu hans um að biskup gæfi út erindisbréf Páli til handa með gildistíma frá 1. júlí 2017 til 30. júní 2022. 15.5.2018 19:25
Forsætisráðherra og borgarstjóri funduðu um Borgarlínu Borgarstjóri kynnti verkefnið og stöðu þess fyrir forsætisráðherra, sem og næstu skref í samtali ríkis og borgar um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. 15.5.2018 18:46
„Það eru aðrir sem mega gráta hærra en við“ Jósef Ó. Kjartansson, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Grundarfirði og bæjarfulltrúi fyrir flokkinn, gagnrýnir sýslumanninn á Vesturlandi harðlega fyrir að koma ekki til móts við íbúa á Grundarfirði og bjóða upp á kosningar utan kjörfundar þar í bæ fyrir sveitastjórnarkosningarnar 26. maí. 15.5.2018 18:24
Heitir því að finna uppljóstrarana í Hvíta húsinu Trump greindi frá þessum fyrirætlunum sínum á Twitter í kvöld. 14.5.2018 23:54
Leikstjóri íslenska Eurovision-atriðisins hefði ekki breytt neinu Arnór Pálmi Arnarson, leikstjóri íslenska atriðisins í Eurovision, segir að eftir á að hyggja hefði hann ekki breytt neinu hvað varðar sviðsetningu á atriðinu í keppninni, allt hafi farið eins og áætlað var og engu hafi þurft að sleppa. Hann segir íslenska hópinn jafnramt ekki hafa látið gagnrýnisraddir á sig fá eftir slæmt gengi á undankvöldi keppninnar síðastliðinn þriðjudag. 14.5.2018 22:15