Sex til níutíu ára tefla í Rimaskóla í dag Íslandsmót skákfélaga fer fram um helgina. 300 manns tefla í Rimaskóla. Allt frá sex ára upp í 90 ára. Mótinu lýkur í dag. 15.10.2023 09:53
Samfylkingin ætli ekki „að sóa tíma í einhvern pólitískan æsing“ Formaður Samfylkingarinnar segir flokkinn tilbúinn í verkefni vetursins. Kjarapakki þeirra sé skýr. Mikilvægt sé að horfa á aðalatriðin og hlusta á fólkið í landinu. Á sama tíma eigi Samfylkingin ekki að gleyma sér í góðum niðurstöðum skoðanakannanna. 14.10.2023 16:44
Kristján viss um að hann veiði áfram hval á næsta ári Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segist viss um að hann fái að halda áfram að veiða hval á næsta ári þrátt fyrir að núgildandi veiðileyfi renni út um áramótin. Það sé nóg af hvali við strendur Íslands og hægt að halda áfram veiðum að eilífu. 14.10.2023 16:26
Vara við svikasíðu í nafni Háskóla Íslands Svikasíða hefur verið sett í loftið í nafni Háskóla Íslands. Tilgangur síðunnar er að hafa fé af fólki eða fjárhagsupplýsingar þess. Háskólinn bendir á að aðeins er hægt að skrá sig til náms á hi.is. 14.10.2023 15:40
Jarðskjálfti að stærð 2,7 fannst vel í Grindavík Jarðskjálfti að stærð 2,7 mældist um tvöleytið í dag á Reykjanesskaga. Líkur á nýju eldgosi hafa aukist síðustu vikur. Kvika safnast saman á um tíu kílómetra dýpi en engir nýir kvikugangar hafa myndast enn sem komið er, en það gæti gerst á næstu vikum eða mánuðum. 14.10.2023 14:38
Tekur bjartsýn en raunsæ við nýjum verkefnum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir segist spennt taka við nýjum verkefnum. Hún muni leggja sig allan fram í þau. Verkefnin séu þung, en augljós. Hún segir það í forgangi að halda áfram með sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. 14.10.2023 14:14
Sannfærður um að vikan hafi þétt raðir ríkisstjórnarinnar Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja ræddu framtíð ríkisstjórnarinnar og erindi hennar eftir að Bjarni tilkynnti um afsögn sína. Þau telja sig enn eiga erindi og vilja ljúka verkefnum sem sett voru fram í stjórnarsáttmála fyrir tveimur árum. 14.10.2023 13:55
Vara viðskiptavini við svikapóstum frá island.is Svikapóstar hafa borist viðskiptavinum Íslandsbanka í nafni island.is. Bankinn hefur varað viðskiptavini við þessum skilaboðum. 14.10.2023 12:56
Hjartsláttur Bjarna róaðist eftir því sem sannfæringin varð meiri Bjarni Benediktsson segist hafa tekið endanlega ákvörðun um að færa sig í utanríkisráðuneytið í gær. Hann segist sáttur við ákvörðuna. Það verði með stólaskiptunum hægt að skapa frið um verkefnin sem framundan séu í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. 14.10.2023 11:51
Bjarni verður utanríkisráðherra og Þórdís fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson verður nýr utanríkisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir nýr fjármála- og efnahagsráðherra. Leiðtogar stjórnarflokkanna segja ríkisstjórnina standa styrka og samhenta og þau vilji klára kjörtímabilið saman. Það er nú hálfnað. 14.10.2023 11:23