Þriðja barn Zuckerberg og Chan komið í heiminn Mark Zuckerberg, forstjóri Meta og einn af stofnendum Facebook, og Priscilla Chan, eiginkona hans, eru búin að eignast sitt þriðja barn saman. Fyrir eiga þau börnin Max og August sem fæddust árin 2015 og 2017. 24.3.2023 15:08
Tatjana áfram formaður Tatjana Latinovic var endurkjörin formaður Kvenréttindafélags Íslands á aðalfundi félagsins í gær. Þá voru tvær nýjar stjórnarkonur kjörnar í stjórn félagsins. Á fundinum voru einnig gerðar tvær ályktanir með hvatningu til stjórnvalda. 24.3.2023 12:17
Löngu hætt að leita að ástinni Bandaríska leikkonan Diane Keaton hefur engan áhuga á stefnumótum og sér ekki fram á að hún fari aftur í samband á ævi sinni. Keaton hefur aldrei verið gift og liðin eru fimmtán ár síðan hún fór síðast á stefnumót. 24.3.2023 10:43
446 milljóna hagnaður í fyrra Tekjur Lyfju á síðasta ári námu rúmum fimmtán milljörðum árið 2022. Þá jukust tekjur af vörusölu um níu prósent frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður fyrirtækisins nam 1.299 milljónum króna og var endanlegur hagnaður var 446 milljónir. 24.3.2023 09:56
Forsetahjónin hittu Foster Íslensku forsetahjónin og sonur þeirra heimsóttu kvikmyndaverið í Gufunesi þar sem verið var að taka upp þættina True Detective. Forsetafrú Íslands deilir myndum af heimsókninni á Facebook-síðu sinni og segir að um áhugaverða heimsókn hafi verið að ræða. 23.3.2023 15:52
Vinsælustu nöfnin í fyrra: Emil skákar Aroni og Embla heldur sínu sæti Emil var vinsælasta fyrsta eiginnafn hjá nýfæddum drengjum á síðasta ári. Alls fengu 42 drengir nafnið Emil. Embla var vinsælasta fyrsta eiginnafn stúlkna hér á landi í fyrra en alls var 30 stúlkum gefið nafnið Embla. 23.3.2023 15:09
Selenskí þakklátur Íslandi Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu á árunum 1932-1933 sem hópmorð. Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu þess efnis. 23.3.2023 14:32
Sverrir Scheving nýr deildarstjóri Advania Sverrir Scheving Thorsteinsson er nýr deildarstjóri rafrænna viðskipta og skólalausna Advania. Hann mun leiða þróun á stafrænum skólalausnum fyrirtækisins og þróun á lausnum sem snúa að því að auðvelda íslenskum fyrirtækjum að stunda rafræn viðskipti. 23.3.2023 12:12
Myllan mögulega mætt í mæjónesið Myllan-Ora ehf. hefur undirritað samning um kaup á Gunnars ehf. en samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupin eru gerð í kjölfar þess að kaup Kaupfélags Skagfirðinga á Gunnars ehf. voru gerð ógild í janúar á þessu ári. 22.3.2023 15:12
Staðfest að brakið og líkamsleifarnar séu úr banaslysinu Flugvélabrak og líkamsleifar sem festust í veiðarfæri skipsins Hrafns Sveinbjarnarsonar GK-255 þann 8. mars síðastliðinn eru úr banaslysi sem varð á svæðinu fyrir fimmtán árum síðan. Rannsóknarnefnd samgönguslysa komst að þessari niðurstöðu í dag. 22.3.2023 14:23