Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að með fráfalli Davíðs Oddssonar fyrrverandi formanns flokksins, borgarstjóra og forsætisráðherra sé fallinn frá einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu íslenska lýðveldisins. Hún segir boð á heimili Davíðs fyrir jól eina af þeim minningum sem sitji eftir. 2.3.2026 12:00
Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Einn þekktasti sykraði gosdrykkur í heimi er kominn aftur í búðir í upprunalegri mynd. Einn mesti aðdáandi drykkjarins sem ekki hefur verslað við Ölgerðina í tæp tvö ár vegna málsins hefur tekið gleði sína á ný. 27.2.2026 22:01
Síðustu strandaglóparnir komust til Keflavíkur í nótt Síðustu farþegar Icelandair sem lentu í töfum vegna hríðarbyls við Keflavíkurflugvöll síðdegis í gær og var því lent á varaflugvöllum voru komnir til Keflavíkur um tvöleytið í nótt. Forstjóri segir leiðakerfi Icelandair hafa verið komið á réttan snúning í morgun og segir starfsfólk hafa unnið þrekvirki. 27.2.2026 12:03
Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Tuskudýr í Ikea á Íslandi nýtur vaxandi vinsælda og er ástæðuna að finna í dýragarði í Japan. 26.2.2026 22:01
Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Bílar í hið minnsta fimm ökumanna urðu fyrir miklu tjóni vegna snjóruðningstækis sem ók í gagnstæða átt við þá á Hafnarfjarðarvegi um kvöldmatarleytið í gær. Vegagerðin segir að málið verði kannað til hlýtar. 26.2.2026 12:02
Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Talsmaður rekstraraðila veitingahúsa segir svör borgarinnar vegna stöðumælasekta starfsfólks veitingahúsa við affermingar ekki standast fulla skoðun. Gert sé ráð fyrir undanþágum fyrir litlar sendingar í miðborgum nágrannalandanna. Talsmaðurinn kallar eftir samtali, auglýsir eftir stjórnmálamönnum og býður sig fram í „friðarviðræður“ vegna málsins. 25.2.2026 06:47
Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Fulltrúar Röskvu í Stúdentaráði Háskóla Íslands segja Vökuliða hafa hlaupið á sig með vantrauststillögu á hendur rektor skólans. Tillagan hafi verið byggð á röngum upplýsingum. 24.2.2026 23:47
Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Lögreglan á Suðurnesjum auk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu biðlar til vegfarenda um að taka ekki óþarfa áhættu og fara ekki af stað á vanbúnum bílum þar sem spáð sé snjókomu víða á suðvestanverðu landinu á morgun með vetrarfærð. Þá er fólk hvatt til að fylgjast vel með færð og veðurspá. 24.2.2026 23:20
Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Sjö gámar af búnaði og varahlutum frá Landsneti, Veitum og Norðurorku sem nýtast munu við enduruppbyggingu orkuinnviða Úkraínu verða sendir til Úkraínu í vikunni. Þetta er meðal þess sem Kristrún Frostadóttir upplýsti Úkraínumenn um í dag í heimsókn sinni til Kænugarðs. 24.2.2026 23:00
Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús þar sem hann er nú staddur á Tenerife. Ástæðan er sýking og vökvaskortur en að öðru leyti er ástand konungsins gott. 24.2.2026 22:03