Hart barist í Líbíu, þrátt fyrir friðarkall SÞ Átökin gætu endað í annarri borgarastyrjöld en mikil óöld hefur ríkt í Líbíu frá því Muammar Gaddafi var velt úr sessi árið 2011. 7.4.2019 22:17
Bandarísk kona og leiðsögumaður laus úr haldi mannræningja í Úganda Fjórir vopnaðir menn rifu fólkið úr safari-bíl sem þau voru í í Queen Elizabeth þjóðgarðinum á þriðjudaginn og fóru þeir fram á hálfa milljón dala. 7.4.2019 21:27
Gerðu stólpagrín að vandræðum Biden Biden, sem ætlar líklegast að bjóða sig fram í forvali Demókrataflokksins vegna forsetakosninganna á næsta ári, hefur verið sakaður um að snerta konur á óviðeigandi hátt. 7.4.2019 20:25
Segja Indverja hyggja á árás gegn Pakistan Shah Mehmood Qureshi, utanríkisráðherra Pakistan, segir yfirvöld ríkisins búa yfir upplýsingum um að Indverjar ætli sér að gera árás á Pakistan. 7.4.2019 19:53
Ætla aldrei að gefast upp í skattaslagnum Mick Mulvaney, starfsmannastjóri Hvíta hússins, segir að skattaskýrslur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, verði aldrei gerði opinberar, sama hvað Demókratar reyna. 7.4.2019 18:01
FA og VR/LÍV undirrita kjarasamning Samningurinn, sem gildir til fyrsta nóvember 2022, er í meginatriðum samsvarandi svonefndum lífskjarasamningi VR og Samtaka atvinnulífsins, hvað varðar launa- og vinnutímabreytingar. 5.4.2019 15:21
Yfirvöld Chicago ætla að höfða mál gegn Smollett Chicagoborg ætlar að höfða mál gegn leikaranum Jussie Smollett vegna kostnaðar við rannsókn á frásögn hans af barsmíðum sem hann sagðist hafa orðið fyrir í borginni. 5.4.2019 15:06
Gruna að spilakassar séu ítrekað notaðir til peningaþvættis Embætti ríkislögreglustjóra segir skattsvik vera alvarlegt og umfangsmikið vandamál hér á landi. Þar að auki sé mikil ógn af skattsvikum í tengslum við fjárþvætti hér á landi. Sömuleiðis er veruleg hætta á því að spilakassar geti verið notaðir til að þvætta fé og leikur grunur á að það sé ítrekað gert. 5.4.2019 15:00
Vörpuðu sprengju á smástirni Japanskir geimvísindavísindamenn notuðu geimfarið Hayabusa 2 til að varpa sprengju á smástirnið Ryugu. 5.4.2019 11:51