Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Alþingi hefur samþykkt Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. Atkvæði með voru þrjátíu og þrjú en tuttugu og þrír þingmenn sátu hjá. Samgönguáætlun forgangsraðar framkvæmdum hins opinbera til næstu fimmtán ára. 12.6.2026 14:33
Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Spáð er blíðskaparveðri sunnan- og vestantil á landinu í dag. Samkvæmt spá Veðurstofunnar mun hiti ná nítján gráðum í Reykjavík síðdegis. 12.6.2026 10:21
Hafnar kreddum um verðbólguna Samsetning verðbólgu hérlendis er flókin og orsakir hennar ekki svo einfaldar að fyrst komi launahækkanir og í kjölfarið verðbólga. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir verkalýðshreyfinguna óska eftir umræðu sem byggir ekki á kreddum heldur gögnum. 11.6.2026 17:29
Hefur þegar fengið starfstilboð Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir að það að ganga í gegnum erfiðleika hafi mótað hana mest. Áslaug gengur stolt frá störfum sínum á þingi en segist munu sakna þess að takast á um framtíð landsins. Starfstilboð eru þegar farin að berast Áslaugu sem er nýkomin heim úr meistaranámi í Bandaríkjunum. 11.6.2026 16:24
„Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að aðild að Evrópusambandinu myndi bæta kjör almennings verulega með lægra matvælaverði og lægri vöxtum. Atkvæðagreiðslan í ágúst snúist ekki um aðild heldur hvort hefja eigi aðildarviðræður. 10.6.2026 21:22
„Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina afvegaleiða með áherslu sinni á Evrópusambandsaðild. Evran sé engin töfralausn og ríkisstjórninni færi betur að horfa sér nær og taka til í ríkisfjármálunum. 10.6.2026 20:28
Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) fara fram á Alþingi í kvöld og verða sendar út í beinu streymi á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 19:40. 10.6.2026 19:00
Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings, málið hafi verulega almenna þýðingu. Steina var í lok febrúar sakfelld í Landsrétti fyrir manndráp af gáleysi. 10.6.2026 17:44
Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest. 9.6.2026 22:03
No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd,“ segja samtökin No Borders í yfirlýsingu í tengslum við lög sem samþykkt voru á Alþingi í dag sem heimila stjórnvöldum að setja á fót svokallaða brottfararstöð. Samtökin hafa meðal annars beitt sér fyrir réttindum flóttafólks. 9.6.2026 20:28