Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Vinstrihreyfingin – grænt framboð (VG) hélt í dag flokksráðsfund sinn. Áherslumál voru málefni vinnumarkaðarins og umhverfismál. Rósa Björk Brynjólfsdóttir flutti ræðu í upphafi fundar. 6.6.2026 16:29
Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, hefur hvorki fengið að heimsækja móður sína né vera viðstaddur mikilvæga læknisfundi er varða heilsufar hennar. Þetta gagnrýna verjendur hans en hann situr nú í gæsluvarðhaldi á meðan beðið er þess að dómur verði kveðinn upp í máli hans. Móðir hans veiktist alvarlega í vikunni en hún þjáist af lungnatrefjun. 6.6.2026 15:40
Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Ásta Stefánsdóttir hefur verið endurráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar. Ásta hefur gegnt stöðunni síðastliðin átta ár. Ný sveitarstjórn kom í vikunni saman á sínum fyrsta fundi. 6.6.2026 14:29
Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út í morgun eftir tilkynningu um umferðarslys í Öræfum. Fyrstar á vettvang voru björgunarsveitir. 6.6.2026 14:05
Icelandair tekur litáíska vél á leigu Icelandair hefur erlenda flugvél í leigu frá litháíska leiguflugfélaginu Heston Airlines. Er um svokallaða blautleigu að ræða og fylgir erlend áhöfn með vélinni. 6.6.2026 12:49
Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Tveir voru handteknir á Akureyri í gærkvöldi. Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð út til aðstoðar. 6.6.2026 10:02
Dró sér fé sem gjaldkeri framboðsins Rödd unga fólksins hefur upplýst um fjárdráttarmál innan flokksins sem upp kom snemma á síðasta ári. Grunur hafi þá vaknað um að Sævar Þór Birgisson, þáverandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri flokksins, hafi dregið til sín töluverða fjármuni og málið kært til lögreglu. Rödd unga fólksins hefur átt fulltrúa í sveitarstjórn Grindavíkur síðastliðin tvö kjörtímabil. 4.6.2026 21:40
Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Lögreglan handtók ökumann miðsvæðis í Reykjavík grunaðan um að keyra undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn reyndi að skipta um sæti við mann í farþegasætinu í miðjum akstri eftir að lögregla varð þeirra vör. 4.6.2026 18:38
Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Neytendastofa hefur lagt stjórnvaldssekt að upphæð fjögur hundruð þúsund krónum á fyrirtækið Happyworld fyrir að auglýsa útsýnisflug á fisflugvélum. Aðeins megi fljúga þeim til skemmtunar og íþrótta og óheimilt er að fljúga fisflugvélum í atvinnuskyni. 4.6.2026 17:30
Rauður dagur í Kauphöllinni Kauphöllin var lengst af glóandi rauð í dag. Örfá fyrirtæki náðu þó að snúa vörn í sókn síðustu klukkustundina af opnun hennar og enduðu í grænu. Mest var hækkun Haga upp á 0,81% en viðskipti með bréf félagsins námu sextíu og þremur milljónum. Mesta lækkunin varð á bréfum Alvotech, um 4,76%, í viðskiptum upp á tæpar nítíu og fimm milljónir. 3.6.2026 16:56