„Það er gaman að gera erfiða hluti“ „Ég hleyp aldrei, mér finnst bara gaman að taka áskoranir, á sjálfan mig,“ segir Egill Trausti Ómarsson sem mætti greinilega með rétta hugarfarið á Esjuna í dag. Egill ætlar, ásamt Hrólfi Vilhjálmssyni, að hlaupa fimmtán sinnum upp og niður fjallið í dag. Ævintýrið hófst klukkan fjögur í morgun og voru þeir félagar að klára sína fimmtu ferð þegar fréttastofa náði tali af Agli á tíunda tímanum í morgun. 4.7.2026 10:43
Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum. Fyrirtækin verða beitt stjórnvaldssektum að upphæð tvö til fjögur hundruð þúsund krónum. 3.7.2026 16:42
Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný Vesturbæjarlaug var opnuð á ný klukkan þrjú í dag eftir að hafa verið lokuð vegna viðhalds í tíu daga, frá 23. júní síðastliðnum. Við opnun var hiti sundlaugarinnar um tólf gráður en byrjað var að láta renna í hana síðdegis í gær. Það má því velta fyrir sér hvort laugin muni fyrst og fremst draga að sjósundsfólk í dag en búist er við að laugin muni hafa náð fullum hita á morgun. 3.7.2026 15:09
Snæddi með furstanum af Mónakó Halla Tómasdóttir forseti Íslands snæddi hádegisverð með Alberti, fursta af Mónakó. Ræddu þau meðal annars hvernig smáríki geta haft áhrif og gildi öflugrar alþjóðlegrar samvinnu á tímum mikilla breytinga. 3.7.2026 14:13
Quang Le fer ekki langt Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi farbann yfir Quang Lé til föstudagsins 25. september næstkomandi. Quang er sakborningur í máli þar sem meðal annars er til rannsóknar gífurlega umfangsmikið mansal. 3.7.2026 12:14
Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Svala Jóhannesdóttir segir bann- og refsistefnu þegar kemur að vímuefnum ekki hafa skilað neinum árangri og kominn sé tími á að afleggja hana. Hún segir að sú stefna sem skili bestum árangri sé sú sama og í áfengismálum þar sem ríkið stjórni aðgengi. Skatttekjur af nýju kerfi myndu nægja til að fjármagna forvarnir og meðferðarstarf. Svala er formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og mannréttindi fólks sem notar vímuefni. 2.7.2026 17:09
„Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ „Ég held að tala látinna eigi eftir að hækka,“ segir tónlistarmaðurinn landskunni, Páll Óskar Hjálmtýsson, um hörmungarnar í Venesúela. Skjálfti að stærð 7,5 reið þar yfir á miðvikudag í liðinni viku og er tala látinna komin upp í 2295 samkvæmt yfirvöldum. Eiginmaður Páls Óskars, Antonio, er venesúelskur. 2.7.2026 11:56
Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir „Ég legg þetta til en almáttugur minn, þó ég sé nú stjórnsöm þá ræð ég þessu ekki ein,“ segir séra Hildur Eir Bolladóttir í pistli þar sem hún veltir því upp hvort sá siður í útförum að lesa upp kveðjur í lok minningarorða sé barn síns tíma. 26.6.2026 17:27
Lét drauminn rætast á Ítalíu „Þetta gerist þegar þú ert ekki að leita,“ segir Svana Símonardóttir sem fann draumahúsið sitt á Ítalíu í fyrra. Að koma í húsið var í fyrstu eins og að stíga í tímavél og ferðast beint aftur til ársins 1970. Kominn var tími á endurbætur sem Svana og eiginmaður hennar Ríkarð réðust í. 26.6.2026 16:51
Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall „Það er með ólýsanlegri sorg í hjarta sem við kveðjum dásamlegan strák, einungis 24 ára gamlan, en hann féll fyrir eigin hendi á dögunum eftir mikla og erfiða baráttu,“ segir Sigfríður Agnes Friðfinnsdóttir um Arnar Atla Björnsson, fæddan 2. ágúst 2001, sem lést þann 19. júní síðastliðinn. 26.6.2026 13:42