Lionel Jospin er látinn Lionel Jospin, fyrrverandi formaður Sósíalistaflokks Frakka, er látinn 88 ára að aldri. Hann var forsætisráðherra Frakka í fimm ár en sagði skilið við stjórnmálin eftir að hafa tapað í forsetakosningunum árið 2002. 23.3.2026 12:40
Rannsökuðu meint kynferðisbrot á leikskóla Lögreglan á Suðurlandi hafði til rannsóknar tilkynningu um meint kynferðisbrot á leikskólanum á Flúðum fyrr á árinu. Enginn er með réttarstöðu sakbornings en starfsmanni var vikið úr starfi meðan á rannsókninni stóð. 23.3.2026 11:06
Bein útsending: Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands fer fram 23. til 25. mars. Meðal gesta sem taka til máls er forseti Íslands og atvinnuvegaráðherra. Þingið er í beinu streymi á Vísi. 23.3.2026 10:45
Hófu frumkvæðisathugun í kjölfar umfjöllunar Kveiks Nefnd um eftirlit með lögreglu ákvað að ráðast í frumkvæðisathugun í kjölfar fréttaumfjöllunar Kveiks í fyrra sem varðaði gagnaleka hjá lögreglunni. Nefndin segir að ráðast þurfi í umbætur. 22.3.2026 17:07
„Eruð þið í alvörunni að handtaka Justin Timberlake?“ Í júní 2024 var bandaríski poppsöngvarinn Justin Timberlake handtekinn grunaður um ölvunarakstur. Fjölmiðlar vestanhafs hafa nú komist yfir myndefni úr búkmyndavél lögreglunnar frá handtökunni. 22.3.2026 15:35
Tekist á um kjarasamningana Fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Starfsgreinasambands Íslands tókust á um kjarasamninga í Sprengisandi í morgun. Formaðurinn telur háa verðbólgu bitna hvað mest á tekjulægsta fólkinu og að það sé „galið“ hvernig kjarasamningaviðræður ríkis og sveitarfélaga fóru. Ráðherrann segir grundvallarvandamálið vera að laun geti ekki hækkað umfram hagvöxt. 22.3.2026 14:31
Galli í hugbúnaði leiddi til rangra greiðsluseðla Í langflestum tilvikum hafa eigendur bíla fengið rétta bráðabirgðagreiðslu kílómetragjalds í samræmi við áætlaðan meðalakstur en ágallar í hugbúnaði leiddi til þess að afmarkaður hópur fékk ekki rétta greiðsluseðla. 22.3.2026 13:55
Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Hringveginum hefur verið lokað á milli Hafnar og Djúpavogs. Þá er hefur Fjarðarheiði og Fagradal einnig verið lokað auk Almennings á Siglufjarðarvegi en þar féll snjóflóð. 22.3.2026 09:55
Nýsköpun, kjarasamningar og afnám áminningarskyldu Það verður nóg um að vera í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Daði Már Kristófersson og Vilhjálmur Birgisson taka fyrir kjarasamningana og Guðrún Hafsteinsdóttir fer yfir fylgi Sjálfstæðisflokksins. Þá verður vinnumarkaðurinn og nýsköpun einnig tekið fyrir. 22.3.2026 09:52
Fáskrúðsfjarðargöngin opin á ný Fáskrúðsfjarðargöngum var lokað rétt fyrir klukkan níu vegna umferðaróhapps. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrastofnun. 22.3.2026 09:32