Neituðu sök en viðurkenna nú að hafa drepið hjálparstarfsmann Ísraelsher viðurkennir að hafa drepið starfsmann Sameinuðu þjóðanna í skriðdrekaárás á Gasa í mars. Herinn hafði áður neitað sök. 24.4.2025 22:41
Árásarmaðurinn sagður aðhyllast hugmyndir Hitler Nemandinn sem grunaður er um að hafa stungið skólasystur sína til bana í Nantes í Frakklandi í dag er sagður hafa lýst yfir dýrkun á hugmyndum Adolfs Hitler. Hann sendi samnemendum sínum tölvupóst skömmu fyrir árásina þar sem hann segir hnattvæðingu spilla mannkyninu. 24.4.2025 21:48
Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Kvikmyndin Ástin sem eftir er eftir Hlyn Pálmason, með Sögu Garðarsdóttur og Sverri Guðnasyni í aðalhlutverkum, verður heimsfrumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni í maí. Myndin verður sýnd í Cannes Premiere-flokki hátíðarinnar, fyrst íslenskra mynda. 24.4.2025 20:32
Meintir hópnauðgarar á bannlista skemmtistaðar Þrír menn sem grunaðir eru um tvær hópnauðganir hafa verið bannaðir á English Pub, skemmtistað sem þeir eru sagðir hafa sótt. Þá hafa aðrir skemmtistaðaeigendur verið varaðir við mönnunum. 24.4.2025 19:50
Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisáreitni gegn barni Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni og brot á barnaverndarlögum. Honum var gefið að sök að hafa kysst sextán ára stúlku á kinnina, strokið rass hennar og þrýst henni upp að sér gegn vilja hennar í veislu á veitingastað í Garðabæ. 24.4.2025 19:10
Vasaþjófur handtekinn í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í dag tilkynnt um vasaþjófnað í miðborginni. Þjófurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. 24.4.2025 17:27
Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Minnst 74 eru taldir af eftir loftárás Bandaríkjahers á eldsneytisgeymslur Húta við Ras Isa höfnina í Jemen í morgun. Árásin er sú mannskæðasta síðan herinn hóf að auka árásir á herstöðvar Húta í fyrra. 19.4.2025 00:02
Bað fyrir friðsamlegum kosningum meðan hann hékk á krossinum Föstudagurinn langi var haldinn hátíðlegur víða um heim í dag. Mismunandi hefðir tengdar deginum er að finna í öllum heimshornum til að minnast píslargöngu Krists. Meðan Íslendingar létu sér nægja að flagga í hálfa stöng sviðsettu einhverjir Filippseyingar krossfestingu. 18.4.2025 23:02
Konfettíið enn að hrynja meðan hnéð „fimmfaldaðist“ Sviðslistakona sem lagði út fyrir uppsetningu leiksýningar sjálfsstæðs sviðslistahóps í Iðnó lenti í því óhappi á frumsýningu að falla í gólfið með þeim afleiðingum að hnéskel hennar fór úr lið. Sýninguna fjármagnaði hún með launum sínum hjá frístundaheimili í Reykjavík. 18.4.2025 21:44
Diddy ekki veittur aukafrestur Dómari í New York ríki í Bandaríkjunum hafnaði í dag beiðni rapparans Sean „Diddy“ Combs um að fresta réttarhöldunum yfir honum um tvo mánuði. Þannig eru réttarhöldin áfram fyrirhuguð þann 5. maí næstkomandi. 18.4.2025 19:25