Áhugamaður um norðurljós datt í lukkupottinn á Íslandi Bandarískur áhugamaður um norðurljós fékk heldur betur sýningu er hann ferðaðist til Íslands í síðustu viku með það að markmiði að fanga norðurljós á filmu. 19.1.2023 14:38
Ólafur Darri og félagar stofna framleiðslufyrirtæki Nýtt íslenskt framleiðslufyrirtæki sem ætlar sér að þróa og fjármagna framleiðslu á íslensku sjónvarpsefni fyrir alþjóðamarkað hefir tryggt sér fjármögnun innlendra sem erlendra fjárfesta. 19.1.2023 13:32
Litadýrðin rakin til eldgossins öfluga hinum megin á hnettinum Ef til vill hafa Íslendingar tekið eftir því að sólarupprás og sólarlag síðustu daga hafa verið í litskrúðugri kantinum. Að öllum líkundum má rekja ástæður þess og uppruna eitt ár aftur í tímann og í 15 þúsund kílómetra fjarlægð frá Íslandi, til eyríkisins Tonga í Kyrrahafi. 19.1.2023 11:27
„Það var logið upp í opið geðið á okkur“ Aðstandandi konu sem lést í umsjá læknis sem grunaður er um röð mistaka í störfum sínum segir að það sé vanvirðing við fjölskylduna, starfsfólk á Landspítalanum og þau sem leita sér aðstoðar á spítalanum að umræddur læknir, Skúli Tómas Gunnlaugsson, skuli enn á ný vera kominn til starfa á Landspítalanum. 19.1.2023 09:43
Rjúfa veginn til að vernda nýju brúna Vegagerðin mun rjúfa Skeiða- og Hrunamannaveg í sundur við brúna yfir Stóru-Laxá á morgun til þess að vernda nýja brú sem þar er nú í smíðum. Reiknað er með vatnavöxtum á næstu dögum vegna yfirvofandi hlýinda. 18.1.2023 14:33
Tekin af lífi með barnið í höndunum Lögreglan í Tulare-sýslu í Kaliforníu segir allt útlit fyrir að morðin á sex einstaklingum í smábænum Goshen í morgun hafi verið aftökur. Móður á táningsaldri var á flótta undan morðingjunum með tíu mánaða gamalt barn hennar er þau voru bæði tekin af lífi. 18.1.2023 13:21
Kastar fram hugmynd um mjúklokun sem stoppi vanbúna bíla „Við sjáum þetta þannig að lokanir eru til gagns sé þeim beitt rétt, sagði Harald Teitsson, formaður félags hópferðaleyfishafa og formaður hópbifreiðanefndar Samtaka ferðaþjónustunnar á fundi Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu stofnunarinnar. Harald varpaði fram þeirri hugmynd að beita mætti svokallaðri mjúklokun vega í meira mæli, þegar veður eru válynd. 18.1.2023 11:32
Rafmagnsleysið sýni alvarleika þess að vera háð einni línu Framkvæmdastjóri hjá Landsnet segir að rafmagnsleysið sem varð á Reykjanesi í gær sýni alvarleika þess að svæðið sé háð einni raforkulínu. Lagning annarrar línu á svæðið hefur strandað á sveitarfélaginu Vogum. 17.1.2023 11:05
Fer ekki eftir tillögu starfshóps um að skipa starfshóp Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, hefur ákveðið að fara ekki að tillögu starfshóps um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar, um að skipa starfshóp um fjármögnun björgunarsveita. Afstaða til tillagna fyrrnefnda starfshópsins verður tekin eftir samtal við björgunarsveitir. 16.1.2023 15:16
Reiknað með 8.600 sæta þjóðarhöll við Suðurlandsbraut Reiknað er með að ný þjóðarhöll rísi við Suðurlandsbraut í Reykjavík, fyrir aftan Laugardalshöll. Áætlaður kostnaður er um fimmtán milljarðar. Höllin á að vera fjölnota, taka 8.600 í sæti á íþróttaviðburðum og hýsa allt að tólf þúsund á tónleikum. Verklok eru sem fyrr áætluð árið 2025. 16.1.2023 12:16