Áframhaldandi átök í Líbanon þrátt fyrir samkomulag Átök héldu áfram í Líbanon í nótt þrátt fyrir að Ísraelar og Hezbollah hafi samþykkt tillögu Bandaríkjamanna um staðbundið vopnahlé. Hezbollah gerði í nótt þrjár árásir á ísraelska skriðdreka og hermenn nærri þorpum í norðurhluta Ísrael og ríkismiðlar í Líbanon hafa greint frá árásum Ísraela í suðurhluta landsins. Erlent 2.6.2026 06:37
Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Yfirvöld í Kúveit greindu frá því í morgun að loftvarnir landsins hefðu verið virkjaðar vegna yfirstandandi eldflauga- og drónaárásar. Nokkrum mínútum síðar sögðust hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert árásir á radar- og stjórnstöðvar í Íran yfir helgina. Erlent 1.6.2026 07:01
Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Tugir voru drepnir í hörðum árásum Ísraela á Líbanon í gær og í nótt eftir að forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú hafði heitið því að setja aukinn kraft í baráttuna gegn Hezbollah samtökunum sem starfa þar í landi. Erlent 27.5.2026 08:25
Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Ísraelsmenn og Líbana hafa komist að samkomulagi um tíu daga vopnahlé sem á að taka gildi klukkan 22 í kvöld að íslenskum tíma. Erlent 16. apríl 2026 15:58
Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu. Erlent 16. apríl 2026 06:55
Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að viðræður við Írani myndu mögulega hefjast á ný á næstu dögum. Erlent 15. apríl 2026 06:44
Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Fulltrúar Ísraels og Líbanon áttu í sínum fyrstu diplómatísku viðræðum í meira en þrjá áratugi í dag. Markmið fundarins var að binda enda á átökin á milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna. Erlent 14. apríl 2026 23:09
Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael. Erlent 14. apríl 2026 06:34
Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. Bandaríkjaforseti segir það breyta engu fyrir sig hvort friðarsamkomulag náist við Íran. Erlent 11. apríl 2026 21:15
Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Þrátt fyrir vopnahlé í stríðinu í Íran hafa átök Ísraelsmanna og Hesbollah í Líbanon haldið áfram og ljóst að engin samstaða er um þann hluta vopnahléssamninganna. Erlent 10. apríl 2026 07:31
Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Tala látinna eftir að Ísraelsher gerði loftárás á miðborg Beirút í gær er komin yfir þrjú hundruð. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir að herinn haldi áfram árásum á Hezbollah-samtökin þar til öryggi Ísraela er tryggt. Erlent 9. apríl 2026 23:51
Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. Erlent 8. apríl 2026 20:08
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. Erlent 8. apríl 2026 17:13
Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Tugir eru sagðir fallnir og hundruð særð eftir að Ísraelsher gerði fyrirvaralausar loftárásir á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar segja að vopnahlé sem þeir gerðu við Írani í gær nái ekki til árása þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon. Erlent 8. apríl 2026 13:57
Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. Erlent 28. mars 2026 23:41
Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Stjórnvöld í Ísrael hyggjast taka yfir suðurhluta Líbanon að ánni Litani, það sem þau kalla „öryggissvæði“. Áin liggur í um 30 kílómetra fjarlægð frá landamærum Ísrael og Líbanon. Að sögn utanríkisráðherrans Israel Katz munu Ísraelar einnig stjórna þeim brúm yfir ána sem enn standa. Erlent 24. mars 2026 12:05
Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Að minnsta kosti tveir létust þegar Íranir skutu eldflaugum með klasasprengjum á Tel Aviv í nótt. Ríkismiðlar í Íran sögðu um að ræða hefndarárás vegna dráps Ísraelsmanna á Ali Larijani, yfirmanni öryggismála og einum helsta ráðgjafa Ali Khamenei. Erlent 18. mars 2026 06:42
Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata. Erlent 17. mars 2026 06:52
Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla. Erlent 15. mars 2026 00:22
Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans. Erlent 14. mars 2026 20:41
Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Bandaríkin senda nú um 2.500 bandaríska landgönguliða til Mið-Austurlanda. Enn halda árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran áfram og Íranir hafa ekki látið af árásum sínum á olíuflutningaskip í Persaflóa. Erlent 13. mars 2026 20:39
Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Ísraelsher hefur haldið árásum sínum á suðurhluta Líbanon áfram og hefur nú beint þeim tilmælum til íbúa á stóru svæði sem nær til nokkurra borga og fjölda þorpa að flýja heimili sín og halda norður. Erlent 13. mars 2026 06:49
Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Ísraelsher segir að Íranir hafi snemma í morgun sent skæðadrífu flugskeyta á skotmörk víðsvegar um Ísrael en enn hafa engar fregnir borist af tjóni vegna þeirra. Erlent 5. mars 2026 06:49
Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna. Erlent 4. mars 2026 06:40