„Best að taka menn og sekta duglega“ Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér. Innlent 22.6.2026 17:07
Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. Innlent 22.6.2026 13:34
„Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Utanvegaökumennirnir sem sást til víða á hálendinu hafa þegar lokið málinu með sektargreiðslu. Mennirnir voru erlendir ferðamenn og keyrðu um á Land Rover jeppum. Innlent 21.6.2026 22:06
Fengu ekki Baldur Vegna veður- og ölduspár fyrir helgina vara forsvarsmenn Herjólfs við því að aðstæður geti verið erfiðar með tilliti til siglinga til Landeyjahafnar. Innlent 22. maí 2026 11:38
Lokatölur í Rangárþingi eystra: Náðu hreinum meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn vann sigur í sveitarstjórnarkosningunum í Rangárþingi eystra í dag. Flokkurinn náði þar hreinum meirihluta – fjóra fulltrúa – en Framsókn náði tveimur og N-listinn einum. Innlent 17. maí 2026 01:05
Skólastarf til fyrirmyndar Málefni leik-, grunn- og framhaldsskóla eru okkur í D-lista og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra hugleikin. Með öflugu, framsæknu og faglegu starfi á öllum skólastigum leggjum við sterkan grunn að framtíð barnanna okkar. Þar er auðvitað lykilatriði að huga vel að starfsumhverfi kennarra og annarra starfsmanna til að auðvelda þeim að takast á við það verkefni að kenna og leiðbeina þeim sem erfa munu landið. Skoðun 15. maí 2026 15:31
Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Rekstur sveitarfélagsins Rangárþings eystra á síðasta kjörtímabili hefur gengið vel og er það eitt af okkar aðaláherslumálum á komandi kjörtímabili að halda því áfram. Ábyrgur rekstur á að skila sér til fólks og fyrirtækja. Skattfé íbúa skal nýta vel í þeirra þágu í formi góðrar þjónusta, hóflegra álaga og lækkun gjalda. Skoðun 13. maí 2026 17:00
Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Stefnt er á að kjarnaborunum - í tengslum við jarðgangagerð til Vestmannaeyja - ljúki í lok árs. Framkvæmdastjóri Eyjaganga er ekki í vafa um að göngin séu arðbær og segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að keyra á milli lands og eyja eftir tíu ár. Innlent 4. maí 2026 23:31
Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Ferðamaður leitaði til lögreglunnar á Hverfisgötu þar sem hann taldi vegabréfi sínu hafa verið stolið við Skógafoss. Innlent 2. maí 2026 17:43
Baldur til Eyja Ferjan Baldur mun sigla til og frá Vestmannaeyjum tímabundið vegna slæms ástands í Landeyjahöfn. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður. Gert er ráð fyrir fyrstu siglingunni til Eyja á föstudag en ferðaáætlun hefur ekki verið birt. Innlent 29. apríl 2026 22:25
„Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innviðaráðherra segir að reynt hafi verið að fá belgískt fyrirtæki, sem tekur við dýpkun Landeyjahafnar frá og með haustinu, fyrr að verkinu. Hann segist þokkalega ánægður með þær aðgerðir sem ráðuneytið kynnti í gær til að bæta samgöngur til Vestmannaeyja. Innlent 29. apríl 2026 13:02
„Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Íbúi í Vestmannaeyjum sem hefur skrifað pistil daglega sautján daga í röð til að mótmæla ófremdarástandi í samgöngum við Eyjar segir Vegagerðina bregðast Eyjamönnum. Skipuleggjandi Puffin stingur upp á sjö tíma siglingu með Herjólfi fyrir ráðamenn til að þeir átti sig á stöðunni. Innlent 28. apríl 2026 21:01
„Botninum hefur verið náð“ Herjólfur var sex klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gær vegna ólgusjós og vélarbilana. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ófremdarástand ríkja í samgöngumálum í Eyjum. Botninum hafi einfaldlega verið náð. Innlent 28. apríl 2026 13:02
Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af. Innlent 15. apríl 2026 18:07
„Þetta er erfiður mánudagur“ Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni. Innlent 13. apríl 2026 15:37
Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar Danska fyrirtækið DHI vinnur nú að tillögum er varða lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar í samvinnu við Vegagerðina. Reiknað er með niðurstöðum vinnunnar nú í vor og í kjölfarið verður það stjórnvalda að ákveða næstu skref. Innlent 4. apríl 2026 18:01
Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. Innlent 26. mars 2026 21:21
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. Innlent 4. mars 2026 08:30
Hrunvarnir við Holtsnúp verði tilbúnar í ágúst Vegagerðin hefur boðið út hrunvarnir meðfram þjóðvegi 1 við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum. Staðurinn hefur verið til skoðunar um nokkurt skeið og lét Vegagerðin hanna fyrirhugað mannvirki í kjölfar banaslyss sem þar varð í mars 2025. Innlent 4. mars 2026 08:25
„Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp. Innlent 3. mars 2026 13:02
Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Af þeim sökum er ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið er að því að fá varahluti erlendis frá. „Það er algerlega óásættanlegt að ekki verið til taks skip til að dýpka næstu daga og vikur, við því þarf Vegagerðin að bregðast,“ segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. Innlent 2. mars 2026 17:07
Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Björgunarsveitir hafa síðdegis og í kvöld aðstoðað vegfarendur sem lent hafa í vandræðum á hringveginum undir Eyjafjöllum. Veginum var á tímabili lokað vegna þess að bílar sátu fastir. Innlent 21. febrúar 2026 18:39
Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet Það er líf og fjör á sveitabæ í Landeyjunum þessa dagana því nýlega gaut íslenska tíkin Þekla ellefu hvolpum, sjö tíkum og fjórum rökkum. Eigandinn segist aldrei hafa vitað af íslenskum fjárhundi, sem hefur átt svona marga lifandi hvolpa í goti. Innlent 18. febrúar 2026 20:04
Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla Hringveginum var lokað við Skóga á Suðurlandi vegna umferðarslyss. Tveir voru fluttir á Selfoss til aðhlynningar. Innlent 16. febrúar 2026 17:39