Lög og regla

Klórgas til umræðu
Leyfisveiting vegna klórgasframleiðslu til fyrirtækisins Mjallar-Friggjar hefur ekki enn verið tekin fyrir til afgreiðslu í bæjarstjórn Kópavogs. Málið kom þó til umræðu á síðasta fundi.
Játaði sök sem burðardýr
Rúmlega tvítugur maður frá Litháen var ákærður sem burðardýr í stóru kókaínmáli í gær. Han játaði sök.

Grunaður um að níðast á hryssum
Selfosslögreglan handtók í nótt mann á fertugsaldri í grennd við hesthúsahverfið í Þorlákshöfn, grunaðan um að hafa verið með kynferðislega tilburði við hryssur. Heimamenn hafa haft hann grunaðan um slíkt og vísuðu lögreglu á hann í nótt. Hann gat enga skýringu gefið lögreglu á ferðum sínum við hesthúsin og því var hann tekinn fastur.
Stolið úr bílum
Lögreglu bárust tilkynningar um innbrot í fimm bíla í Austurborg Reykjavíkur á mánudag. Fyrsta tilkynningin barst klukkan sjö um morguninn og svo tíndust hinar inn fram eftir degi. Í öllum tilvikum var stolið hljómtækjum og geisladiskum.
Flóttamenn, fíkniefni og kjöt
Frá áramótum hefur Tollgæslan á Seyðisfirði neitað 18 útlendingum um landvistarleyfi, ýmist samkvæmt úrskurði Útlendingastofnunar og lögreglustjóra, eða að skilríki hafa reynst vera fölsuð.

Stal tölvum, peningum og farsímum
Töluverðum verðmætum var stolið í þremur innbrotum í vesturbæ Kópavogs sem lögreglu barst tilkynning um á mánudagsmorgun. Brotist var inn á tvö heimili og eina bifreið og telur lögregla að sami einstaklingur hafi verið þar á ferð.

Réðust átta á Friðrik Þór
Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndaleikstjóri, varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Ölstofu Kormáks og Skjaldar á föstudagskvöld. Friðrik segir átta manna hóp af misyndismönnum hafa komið á staðinn og barið sig.

Grunur um misbeitingu
Maður var handtekinn í Þorlákshöfn grunaður um innbrot í hesthús og um að hafa níðst kynferðislega á skepnunum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi tilkynntu hesthúsaeigendur um innbrotið og lýstu grunsemdum sínum.
Sluppu frá aurskriðum
Nokkrir flúðu inn í svokallaða vegskála vegna aurskriða í Óshlíð milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur upp úr klukkan hálf átta í gærkvöld. Rigning og hvassviðri var á Ísafirði í allan gærdag.

Stökk í sjóinn
Flóttamaður stökk í sjóinn af Norrænu við Hjaltlandseyjar þegar ferjan var á leið til Noregs. Maðurinn komst ekki í land á Íslandi þar sem hann var með falsað vegabréf en hann fór um boð í skipið í Bergen í Noregi.
Ógnaði starfsstúlku með hnífi
Maður vopnaður hnífi gerði tilraun til að ræna verslun í Austurbæ Reykjavíkur um klukkan fimm í gær.
Rúðubrjótur ófundinn
Lögreglan á Húsavík leitar nú logandi ljósi að skemmdarvargi sem á síðustu dögum hefur lagt í vana sinn að brjóta rúður í verslunum og fyrirtækjum í bænum.
Leita að stolnum bíl
Lögreglan í Keflavík leitar að dökkgráum Renault megane, með skráningarnúmerið AX-865, sem stolið var frá Vatnsnesvegi í Reykjanesbæ um klukkan hálf tvö í dag.

Farga og fela ólöglegt efni
Aðgerðir lögreglu gegn tólf stjórnendum og stórum þátttakendum í hundrað manna hópi fólks sem skipst hefur á skemmtiefni á netinu, hafa valdið hræðslu innan hópsins. Margir hafa eytt efni út af tölvunum eða afritað það á diska og falið á öruggum stað.
Tvennt slasaðist
Hjón voru flutt á sjúkrahús eftir að jeppabifreið þeirra valt í Kelduhverfi á móts við bæinn Mörk, skammt frá Ásbyrgi, í gærdag.

Rauð ljós auðkenna þyrluáhöfnina
Starfsmenn í þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar hafa fengið rauð ljós í bíla sína til að auðvelda þeim að komast leiðar sinnar í umferðinni.
Valt niður grýtta urð
Tvennt er alvarlega slasað eftir bílveltu niður bratta og stórgrýtta skriðu á Axarvegi á leið niður í Berufjörð um klukkan átta á fimmtudagskvöld. Fernt var í bílnum sem stöðvaðist um 40 metra frá veginum. Símasambandslaust er á þessum slóðum og gekk því fólkið slasað nokkra stund áður en bíl bar að.
Hefur snúið við blaðinu
Tuttugu og fjögurra ára gamall maður var dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla innvortis 138,4 grömmum af kókaíni. Maðurinn var gripinn í Leifsstöð 3. október í fyrra og þykir sýnt að efnið hafi að mestu verið ætlað til sölu.
Brotist inn í skóla og íbúð
Tilkynnt var um tvö innbrot í Reykjavík fyrri partinn í gær. Í fyrrinótt hafði verið brotist inn í Breiðholtsskóla með því að spenna upp glugga og þaðan stolið tölvu. Lögreglu var tilkynnt um innbrotið klukkan hálf tíu í gærmorgun. Þá var brotist inn í íbúðarhús í Austurborginni skömmu fyrir klukkan tíu.
Með falsað vegabréf
Maður frá Nígeríu sem stöðvaður var í Leifsstöð með fölsuð skilríki á miðvikudag bað um pólitískt hæli á fimmtudag þegar færa átti hann til dómara vegna fölsunarinnar.
Hálfsárs fangelsi
Maður sem sló annan með bjórglasi í höfuðið á skemmtistaðnum Stapa í Keflavík í sumar, þannig að glasið brotnaði og af hlutust alvarlegir áverkar, var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi. Þar af voru þrír mánuðir skilorðsbundnir.
Yfirheyrður í gær
Ekki liggur fyrir játning manns sem lögreglan á Höfn í Hornafirði yfirheyrði í gær vegna innbrots og skemmdarverka í safnahúsi Austur-Skaftfellinga um síðustu helgi. Yfirheyrslum yfir manninum lauk síðdegis í gær.

Ungur maður lífshættulega slasaður
Ungur maður er lífshættulega slasaður eftir alvarlegt umferðarslys í Þrastarskógi síðdegis þegar tveir fólksbílar, sem komu úr gagnstæðum áttum, skullu saman. Í hinum bílnum voru kona og eins árs barn og eru þau minna slösuð að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Enn einn handtekinn
Einn enn hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við eitt stærsta fíkniefnamál síðustu ára. Maðurinn sem er um þrítugt var handtekinn í fyrradag og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald síðar sama dag.

Leysti frá skjóðunni
Einn höfuðpauranna í höfundarréttarstuldinum, sem lögregla hóf víðtæka rannsókn á í fyrrakvöld, ákvað í gærkvöldi að leysa frá skjóðunni til að komast hjá því að verða úrskurðaður í gæsluvarðhald. Var hann þá kominn ásamt lögreglumönnum í húsakynni Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem fjalla átti um kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald
Karlmaður um þrítugt var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við umfangsmikið smygl á kókaíni, amfetamíni og LSD. Þar með sitja sjö í gæsluvarðhaldi vegna málsins, fimm hér á landi og tveir í Hollandi.

80% drengja hala ólöglega niður
Um áttatíu prósent drengja í tíunda bekk sækja kvikmyndir og tónlist á Netið með samskonar forriti og nú er til rannsóknar hjá lögreglunni vegna meints höfundarréttarstuldar. Einn höfuðpauranna í því máli ákvað að leysa frá skjóðunni til þess að komast hjá gæsluvarðhaldi.
Haldið sofandi í öndunarvél
Átján ára piltur slasaðist alvarlega þegar bifreið sem hann ók skall framan á annarri bifreið Biskupstungnabraut um miðjan dag í gær.

Lögreglan lýsir eftir dreng
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Albert Þór Benediktssyni, 14 ára, sem síðast sást til í Faxafeni sunnudaginn 26. september síðastliðinn klukkan 17:50. Þeir sem hafa orðið hans varir, eða vita hvar hann er nú, eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma við 444 1102.

Rauð blikkljós í bíla þyrlusveitar
Starfsmenn í þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar hafa fengið rauð ljós í bíla sína til að auðvelda þeim að komast leiðar sinnar í umferðinni. Ljósin eru ekki eiginleg forgangsljós. Þau eiga hins vegar að auka öryggi og óska eftir tillitsemi annarra ökumanna. Þá auðvelda ljósin lögreglu að aðstoða þyrluáhafnir við að komast leiðar sinnar í neyðartilfellum.