Lög og regla
54 55 56 57 58 59 60 61 62 … 120 ›
Þrjátíu handteknir Höfð voru afskipti af 30 manns á aðfararnótt laugardags í aðgerðum lögreglu gegn handrukkurum. Enginn þeirra er enn í haldi lögreglu. Innlent 13.10.2005 19:22
Ummæli Jóns Baldvins ómerkt Ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar sendiherra sem hann viðhafði í Dagblaðinu um fyrrum tengdason sinn Marco Brancaccia, yfirmann ítölsku fréttaþjónustunnar ANSA í Mið-Ameríku, voru á miðvikudag ómerkt í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:22
Sat fastur undir Höfðabakkabrú Vörubifreið með tengivagn festist undir Höfðabakkabrú yfir Vesturlandsveg um klukkan tuttugu mínútur fyrir 12 í gærdag. Ökumaður bifreiðarinnar hafði ekki gætt að því að farmur tengivagnsins var hærri en svo að hann kæmist undir brúnna og því fór sem fór. Innlent 13.10.2005 19:22
Ók inn í malarhrúgu Malarhrúga varð á vegi ökumanns í Njarðvík í gærkvöldi. Hrúgan stóð við vegarbrúnina og ók maðurinn inn í hana. Hann gaf þá skýringu að hann hefði ekki séð hrúguna en hún hafði ekki dulist fjölda ökumanna enda hafði hún staðið þarna allan daginn án þess að ekið væri á hana. Einhverjar skemmdir urðu á bíl mannsins en hann var þó ökufær á eftir. Innlent 13.10.2005 19:22
Dæmdur fyrir að taka við þýfi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag þrítugan karlmann í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir að hafa þann 5. janúar síðastliðinn tekið við þremur fartölvum að verðmæti um 700 þúsund krónur úr höndum bróður síns þrátt fyrir að honum hafi mátt vera ljóst að þeim hefði verið stolið úr versluninni Office One um nóttina. Innlent 13.10.2005 19:22
Sjö og hálft ár fyrir axarárás Hæstiréttur staðfesti dóm yfir Birki Birgissyni sem hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði. Birkir réðst á mann með exi og sló hann í höfuðið. Hann var enn fremur dæmdur fyrir sjö líkamsárásir, brot á vopnalögum og umferðarlögum. Innlent 13.10.2005 19:22
Fjárdráttur á sambýli verði kærður Meintur fjárdráttur starfsmanns á sambýli á vegum Reykjavíkur verður kærður til lögreglu, reynist grunur á rökum reistur. Innlent 13.10.2005 19:22
Urðu bensínlausir eftir innbrot Tveir menn, 22 og 25 ára gamlir, voru í Héraðsdómi Austurlands í gær dæmdir í mánaðarfangelsi hvor, en báðir eru dómarnir skilorðsbundnir í tvö ár. Þá er þeim gert að greiða hvor um sig Olíuverslun Íslands hf. 51.790 krónur með vöxtum. Innlent 13.10.2005 19:22
Þrír mánuðir fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega þrítugan karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa í apríl árið 2001 slegið annan mann í andlitið með glasi með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á neðri vör og fimm framtennur brotnuðu. Ákærði neitaði sök en sannað þótti í samræmi við framburð vitna að hann hefði hent glasinu framan í manninn. Innlent 13.10.2005 19:22
Sprengjugabb í Íslandsbanka Lögregla var kölluð í útibú Íslandsbanka við Lækjargötu í Reykjavík skömmu fyrir hádegi í gær vegna miða sem starfsmenn bankans töldu vera sprengjuhótun. Reyndist um gabb eða misheppnað spaug að ræða. Innlent 13.10.2005 19:22
Dómur héraðsdóms staðfestur Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness frá janúar síðastliðnum um tæplega sjö ára fangelsi til handa Berki Birgissyni sem slasaði mann alvarlega þegar hann réðst á hann á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði vopnaður öxi. Innlent 13.10.2005 19:22
Töldu sprengjuhótun felast í miða Lögreglan var kvödd að útibúi Íslandsbanka við Lækjargötu fyrir hádegið vegna grunsamlegs miða. Samkvæmt lögreglu töldu starfsmenn bankans sig geta lesið sprengjuhótun út úr þeim skilaboðum sem á honum voru og var lögregla því kölluð til. Talið er að börn hafi staðið að baki gabbinu en miðinn sem fjaðrafokinu olli er í vörslu lögreglunnar. Innlent 13.10.2005 19:22
Nektarmyndir af stúlkubörnum Meðal þess sem lögreglan fann í tölvu reykvísks manns sem sætir nú rannsókn vegna gruns um kynferðisofbeldi gegn fjórum stúlkubörnum, voru nektarmyndir af þeim. Innlent 13.10.2005 19:22
Vilja að Gill verði látinn laus Íslendingarnir tveir sem tóku þátt í mótmælaaðgerðunum á Nordica-hótelinu ásamt Englendingnum Paul Gill telja gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir Gill óskiljanlegan og ranglátan. Meðferðinni á Gill verður mótmælt við dómsmálaráðuneytið klukkan tvö í dag. Innlent 13.10.2005 19:22
Bíll fastur undir Höfðabakkabrú Umferðartafir hafa orðið á Vestulandsvegi undir Höfðabakkabrúnni í vestur en þar er flutningabíll fastur. Bíllinn, sem er frá fyrirtækinu BM-Vallá, var með mikið járnvirki á pallinum, þar af stóð járnsúla hátt upp í loftið og hún rakst undir brúna með þeim afleiðingum að bíllinn er fastur. Innlent 13.10.2005 19:22
Geymdi þýfi fyrir litla bróður Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrítugan mann í sjö mánaða fangelsi fyrir að taka við og geyma þýfi fyrir sex árum yngri bróður sinn. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár. Innlent 13.10.2005 19:22
Sameining dæmd lögleg Sveitarstjórn Norður-Héraðs fór að lögum þegar sameining sveitarfélagsins Fellahrepps og Austur-Héraðs stóð fyrir dyrum og því hafnaði Hæstiréttur í gær kröfu átta einstaklinga sem kröfðust þess að staðfesting Félagsmálaráðuneytisins á sameiningunni væri dæmd ógild. Innlent 13.10.2005 19:22
Braut glas á andliti annars 31 árs gamall maður var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að brjóta glas á andliti manns inni á skemmtistaðnum Glaumbar í apríllok 2001. Refsingin er skilorðsbundin í tvö ár, en að auki þarf hann að greiða fórnarlambi sínu, sem missti fimm tennur, tæpar 370.000 krónur. Innlent 13.10.2005 19:22
Dæmdir fyrir stórfelld skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í dag þrjá af fjórum sakborningum í Landssímamálinu fyrir stórfelld skattsvik. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalféhirðir Landssímans, var sýknaður. Innlent 13.10.2005 19:22
Sakfelldir fyrir skattsvik Fjórir menn voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir fyrir að standa ekki skil á tugmilljónum króna í virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. Þrír menn úr Landssímamálinu voru sakfelldir en einn þeirra, Sveinbjörn Kristjánsson, var sýknaður af ákærum. Innlent 13.10.2005 19:22
Misnotaði þriggja ára stúlku Reykvískur karlmaður á fertugsaldri sætir nú rannsókn vegna gruns um kynferðisleg brot á fjórum stúlkubörnum. Stúlkurnar voru á aldrinum þriggja til þrettán ára þegar brotin voru framin. Við rannsókn á heimili mannsins fundust tugir barnaklámmynda í tölvu hans. Innlent 13.10.2005 19:22
Dótturfyrirtæki Össurar fær bætur Bandaríska stoðtækjafyrirtækið Bledsoe Brace Systems hefur verið dæmt af alríkisdómstól í Seattle í Washington-ríki til að greiða dótturfélagi stoðtækjafyrirtækisins Össurar, Generation Orthotics, tæplega sjö milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 455 milljóna íslenskra króna í bætur, fyrir brot á einkaleyfum fyrirtækisins. Innlent 13.10.2005 19:22
Ráðuneyti og lögregla semja Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Böðvar Bragason lögreglustjóri skrifuðu síðdegis í gær undir samning um árangursstjórnum og markmið lögreglunnar í Reykjavík. Lögregluembættið kynnti einnig stefnumótun ársins og kynnt var ársskýrsla lögreglunnar fyrir árið 2004. Innlent 13.10.2005 19:22
Í gæsluvarðhaldi fram á mánudag Paul Gill, breski atvinnumótmælandinn, sem var einn þremenninganna, sem mótmæltu álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni fram á mánudag. Hinum tveimur mótmælendunum var sleppt eftir yfirheyrslur í dag. Innlent 13.10.2005 19:22
Kanna auglýsingar Ego Áfengis- og vímuvarnadeild Lýðheilsustofnunnar hyggst kanna hvort auglýsingar þær sem uppi hafa verið á bensínstöðvum Ego síðustu daga brjóti í bága við áfengis- og tóbaksvarnarlög. Innlent 13.10.2005 19:22
Býr sig undir herskáar aðgerðir Landsvirkjun býr sig undir herskáar mótmælaaðgerðir við Kárahnjúka í næstu viku eftir uppákomuna á Nordica-hóteli í gær. Þremenningarnir sem ruddust inn á álráðstefnu á hótelinu og slettu grænu gumsi gætu átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi. Innlent 13.10.2005 19:22
Rússi enn á gjörgæsludeild Rússneski sjómaðurinn, sem Landhelgisgæslan sótti í togarann Ostrovet frá Dóminíku í fyrrinótt, liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi en er þó ekki í lífshættu. Maðurinn hlaut stungusár á kvið við fiskvinnslu um borð og fer ræðismaður sendiráðs Rússlands á Íslandi fyrir máli hans. Innlent 13.10.2005 19:22
Fá ekki greiðslur úr ríkissjóði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfum bænda á bænum Hjallalandi í Sveinsstaðahreppi í Austur-Húnavatnssýslu, en þeir vildu að viðurkennt yrði með dómi að þeir ættu rétt á greiðslum úr ríkissjóði sem handhafar beingreiðslna sauðfjárbúsins á bænum. Þeir töldu sig eiga rétt á skaðabótagreiðslum úr ríkissjóði vegna breytinga á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á landbúnaðarafurðum sem tóku gildi árið 2000. Innlent 13.10.2005 19:22
Ung kona kærði kynferðisbrot Lögreglan í Keflavík rannsakar kynferðisbrot sem átti sér þar stað í heimahúsi um helgina. Kona um tvítugt hefur kært mann á svipuðum aldri fyrir að nýta sér ölvunarástand hennar eftir gleðskap sem stóð á laugardagskvöld og fram á aðfaranótt sunnudags. Innlent 13.10.2005 19:22
Grunaður um kynferðislegt ofbeldi Reykvíkingur á fertugsaldri er grunaður um að hafa beitt fjórar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi. Á heimili mannsins fundust tugir barnaklámsmynda í tölvu hans. Innlent 13.10.2005 19:22
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp