Lög og regla
64 65 66 67 68 69 70 71 72 … 120 ›
Jói var okkar stoð og stytta "Jói var okkar stoð og stytta hér," segja Sigurður Jónsson og Ágústa Kristín Magnúsdóttir sem voru vinnuveitendur Vu Van Phong eða Jóa eins og hann var kallaður. Ekkja hans, Thanh Viet Mac, vinnur líka hjá þeim. Blaðamaður hitti þau Sigurð og Ágústu til að fá að vita hvaða mann hann hafði að geyma. Innlent 13.10.2005 19:13
Grunuðum nauðgara sleppt Lögreglan í Keflavík hefur sleppt karlmanni sem handtekinn var, grunaður um að nauðga ungri konu á salerni skemmtistaðar í Keflavík. Starfsmenn skemmtistaðarins komu konunni til hjálpar en talið er að maðurinn hafi nýtt sér ölvunarástand hennar. Innlent 13.10.2005 19:13
Kærði nauðgun á skemmtistað Kona á þrítugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar í Keflavík í nótt. Konan sagði mann hafa nauðgað sér á salerni á skemmtistað. Maðurinn var handtekinn á staðnum og gistir nú fangageymslur lögreglunnar í Keflavík. Innlent 13.10.2005 19:13
Bílslys á Svínadal Bíll fór útaf veginum á Svínadal um hálfníuleytið á föstudagskvöld. Lögreglan á Búðardal fékk tilkynningu um að í bílnum væru fjórir slasaðir og þar af eitt meðvitundarlaust barn. Innlent 13.10.2005 19:13
Bjargað þrekuðum og sjóblautum Skipstjóri mótorbátsins Hrundar BA-87 frá Patreksfirði mátti hafa sig allan við að koma sér frá borði eftir að eldur kom upp í bátnum. Hann komst í björgunarbát og var bjargað þaðan í annan bát, en reykurinn frá brennandi bátnum sást víða að. Innlent 13.10.2005 19:13
Varð einum að bana og særði annan 33 ára maður kom óboðinn til veislu í Kópavogi. Hann vildi ekki fara og greip til hnífs. Stakk einn til ólífis og særði annan. Ódæðismaðurinn var handtekinn og er nú í gæsluvarðhaldi. Innlent 13.10.2005 19:13
Gæsluvarðhald til 14. júlí Maður um þrítugt lést af sárum sem hann hlaut í átökum við annan mann í Kópavogi í gærkvöld. Hinn grunaði hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. júlí. Innlent 13.10.2005 19:13
Í haldi grunaður um nauðgun Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um nauðgun á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nótt. Innlent 13.10.2005 19:13
Tvær konur létust í árekstri Tvær konur létust í árekstri jeppa og fólksbíls í Öxnadal í Hörgárbyggð um klukkan hálf sex á föstudag. Önnur konan ók fólksbílnum og var ein í honum, en hin var farþegi í jeppanum. Þær hétu Halldóra Árnadóttir og Edda Sólrún Einarsdóttir. Innlent 13.10.2005 19:13
Maður lést í átökum Tuttugu og níu ára karlmaður lést eftir átök nokkurra manna í fjölbýlishúsi í Hjallahverfi í Kópavogi í gærkvöldi. Annar maður var fluttur á sjúkrahús þar sem hann þurfti að gangast undir aðgerð vegna áverka en hann mun ekki vera í lífshættu. Innlent 13.10.2005 19:13
Nauðgað á skemmtistað Kona á þrítugsaldri kærði í gærmorgun nauðgun sem hún sagði hafa átt sér stað inni á salerni á skemmtistað í Keflavík. Lögreglu barst kæran um klukkan hálf sex um morguninn og fór hún þegar á skemmtistaðinn þar sem maðurinn var handtekinn. Innlent 13.10.2005 19:13
Gæsluvarðhalds krafist Tuttugu og níu ára karlmaður lést eftir átök við annan mann í fjölbýlishúsi í Hjallahverfi í Kópavogi í gærkvöldi. Þrír menn voru handteknir í nótt en tveimur hefur nú verið sleppt. Krafist verður gæsluvarðhalds yfir hinum grunaða í dag. Innlent 13.10.2005 19:13
Vélsleðamaður með opið fótbrot Þyrla landhelgisgæslunnar sótti vélsleðamann með opið beinbrot á fæti inn að Hrauntindum í Rangárvallaafrétt um miðjan dag í gær og flutti á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Einnig voru kallaðar til björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli. Innlent 13.10.2005 19:13
Horfði á föður sinn stunginn Dóttir manns sem lést af völdum stungusára stóð blóðug og grátandi í stigaganginum og sagði pabba sinn dáinn. Til átaka kom milli veislugesta og manns sem kom óboðinn til veislunnar. Einn lést og annar særðist. Árásarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Unnið er að rannsókn. Innlent 13.10.2005 19:13
Umferð hefur gengið vel Umferðin til höfuðborgarsvæðisins hefur gengið mjög vel í dag að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík. Bílastraumurinn hefur verið jafn og engin slys orðið, enda veður og aðstæður allar hinar ákjósanlegustu. Innlent 13.10.2005 19:13
Veisluhald fór úr böndum Nokkur ólæti voru í ungu fólki í Garðabæ á föstudags- og laugardagskvöld, að sögn lögreglu í Hafnarfirði. Fjórir voru handteknir á föstudagskvöldið og á laugardagskvöldið þurfti lögregluhjálp við að fæla veisluglaða frá húsi í bænum. Innlent 13.10.2005 19:13
Maður barinn með kylfu Lögreglan á Ísafirði lagði hald á hafnaboltakylfu á Flateyri á aðfaranótt mánudags, en talið er að henni hafi verið beitt í slagsmálum fyrir utan veitingastað í bænum. Þar hafði nokkur hópur tekið þátt í slagsmálum sem upp komu, en enn liggja ekki fyrir kærur vegna atburðarins. Innlent 13.10.2005 19:13
Ekið á dreng á hlaupahjóli Um klukkan þrjú í gærdag var ekið á sex ára dreng við Greniteig í Keflavík, en þar er 30 kílómetra hámarkshraði. Innlent 13.10.2005 19:13
Féll sjö metra niður á stétt Kona á þrítugsaldri slasaðist mikið þegar hún féll sjö metra niður á steyptan kant og stétt fram af svölum á þriðju hæð fjölbýlisshúss í Neskaupstað um tvöleytið aðfaranótt mánudags. Hún fór í aðgerð á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað og í sjúkraflug til Reykjavíkur, en er úr lífshættu. Innlent 13.10.2005 19:13
Gæsluvarðhalds ekki verið óskað Dómari hefur ekki fengið beiðni um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum sem grunaður er um að hafa orðið öðrum manni að bana í fjölbýlishúsi í Hjallahverfi í Kópavogi í gærkvöldi. Þrír menn voru handteknir en tveimur hefur nú verið sleppt. Innlent 13.10.2005 19:13
Strákur lokaður í ruslatunnu Tveir fjórtán piltar lokuðu sjö ára dreng ofan í ruslatunnu, skorðuðu undir svölum og skildu eftir á Seltjarnarnesi síðasta þriðjudagskvöld. Stúlka heyrði bank í tunnunni 30 til 40 mínútum síðar og bjargaði drengnum. Innlent 13.10.2005 19:13
Tvö minni umferðarslys í gær Maður slasaðist á höfði eftir að hafa misst stjórn á bíl sínum við Laugafell á leiðinni inn að Kárahnjúkum um kvöldmatarleytið í gær. Hann var fluttur á heilsugæslustöðina að Kárahnjúkum þar sem hlúð var að honum. Bíllinn er ónýtur. Þá urðu ekki teljandi meiðsl á fólki þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og velti á Snæfellsnesvegi skammt sunnan við Hítará í gærdag. Ökumanninum fataðist aksturinn í beygju. Innlent 13.10.2005 15:33
Sækir veikan sjómann við Hornbjarg Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF var kölluð kölluð út á hádegi til að sækja veikan sjómann um borð í bát norður af Hornbjargi. Ekki er ljóst á þessari stundu hvað nákvæmlega amar að manninum en hann var hífður um borð í þyrluna rétt fyrir klukkan hálfþrjú. Innlent 13.10.2005 15:33
Tvær konur létust í umferðarslysi Tvær konur létust og einn karlmaður slasaðist mikið í árekstri sem varð á þjóðveginum í Öxnadal undir kvöld í gær. Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning um slysið rétt fyrir klukkan hálfsex. Slysið varð skammt frá bænum Syðri-Bægisá í Hörgárbyggð og með þeim hætti að jeppi á leið til Akureyrar, sem í voru eldri hjón, og fólksbíll á suðurleið, sem ein kona var í, skullu saman. Innlent 13.10.2005 15:33
Þyrlan komin til Reykjavíkur Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF, lenti nú klukkan hálffimm á Reykjavíkurflugvelli með veikan sjómann sem hún sótti í bát norður af Hornbjargi. Þyrlan var kölluð út á hádegi í dag og var maðurinn kominn um borð í hana rétt fyrir klukkann hálfþrjú. Þyrlan hélt í kjölfarið til Ísafjarðar til að taka eldsneyti og flaug svo beint til Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 15:33
Brutu rúðu til að komast í teiti Unglingspiltar brutu rúðu í heimahúsi í Garðabæ í nótt þegar þeir reyndu að komast óboðnir inn í samkvæmi. Stúlka á sextánda ári hafði fengið leyfi til að bjóða nokkrum vinkonum sínum heim og höfðu piltarnir frétt af því. Lögreglan í Hafnarfirði var kvödd á staðinn og var fengin aðstoð lögreglunnar í Kópavogi til að skakka leikinn. Enginn var handtekinn vegna þessa. Innlent 13.10.2005 15:33
Á 185 km hraða á Miklubraut Ökumaður var tekinn á 185 kílómetra hraða á Miklubraut neðan Ártúnsbrekku í Reykjavík í nótt. Má hann búast við því að verða sviptur ökuréttinundum og fá háa sekt. Þá voru sex teknir fyrir ölvunarasktur í Reykjavík og einn í Hafnararfirði og annar í Kópavogi. Innlent 13.10.2005 15:33
Annir hjá lögreglunni á Blönduósi Um fimmtíu hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi frá því á fimmtudag. Þá voru tveir teknir fyrir ölvunarakstur í nótt. Lögreglan býst við því að enn eigi þeim eftir að fjölga sem verða tekir fyrir hraðakstur þessa hvítasunnuhelgi. Innlent 13.10.2005 15:33
Gripinn tvisvar án ökuréttinda Tvítugur maður var tvívegis tekinn af lögreglunni í Keflavík í gær fyrir að aka bíl sviptur ökuréttindum. Fyrst var hann tekinn rétt eftir hádegi og svo aftur seint í gærkvöld. Lögreglan segir mjög hart tekið á brotum sem þessum. Innlent 13.10.2005 15:33
Leituðu torfærukappa á Suðurlandi Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út á þriðja tímanum í nótt til að leita að fimm mönnum á torfærumótorhjólum. Þeir höfðu lagt af stað frá Gjábakkavegi um fjögurleytið í gær og ætluðu norður að Hlöðufelli og niður hjá Miðdal en skiluðu sér ekki á ætluðum tíma. Um 25 björgunarsveitarmenn komu að leitinni og fundu þeir mennina laust fyrir klukkan sex í morgun heila á húfi í Dalbúðarskála við Kerlingu. Innlent 13.10.2005 15:33