Körfubolti

Fréttamynd

Detroit enn taplaust

Detroit Pistons heldur áfram sigurgöngu sinni í upphafi leiktíðar í NBA og í gær rúllaði liðið yfir Sacramento á útivelli 102-88. Milwaukee Bucks tapaði sínum fyrsta leik, en Los Angeles Lakers byrjar ágætlega.

Sport
Fréttamynd

Memphis-Seattle í beinni

Einn leikur verður í beinni útsendingu á NBA TV í nótt, en það er viðureign Memphis Grizzlies og Seattle Supersonics. Memphis hefur unnið tvo leiki og tapað einum, en Seattle hefur spilað tvo leiki og unnið annan þeirra. Pau Gasol er stigahæstur í liði Memphis með rúm 25 stig að meðaltali í leik, en Ray Allen hefur skorað rúmt 31 stig í leik fyrir Seattle. Leikurinn hefst klukkan eitt í nótt.

Sport
Fréttamynd

San Antonio þurfti framlengingu í Chicago

Fimm leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio lögðu Chicago 104-95 í framlengdum leik og LA Clippers tapaði sínum fyrsta leik í vetur. Þá er Toronto enn án sigurs.

Sport
Fréttamynd

Enn tapar New York

Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Lærisveinar Larry Brown í New York eru enn án sigurs og töpuðu öðrum leik sínum í röð á heimavelli í nótt fyrir Golden State Warriors. Sacramento náði sínum fyrsta sigri gegn Phoenix og LA Lakers lögðu Denver öðru sinni á nokkrum dögum.

Sport
Fréttamynd

Milwaukee lagði Miami

Milwaukee Bucks hefur byrjað vel í NBA deildinni í vetur og í nótt vann liðið þriðja leik sinn í röð þegar það skellti Miami á heimavelli sínum 105-100. Michael Redd og Bobby Simmons skoruðu báðir 23 stig fyrir Milwaukee og T.J. Ford 13 stigum og 11 stoðsendingum. Dwayne Wade var atkvæðamestur í liði Miami með 21 stig, 9 stoðsendingar og 7 fráköst. Ellefu aðrir leikir voru á dagskrá í nótt.

Sport
Fréttamynd

Philadelphia bíður erfitt verkefni

Lið Philadelphia 76ers hefur enn ekki unnið leik í deildarkeppni NBA það sem af er tímabili, en í kvöld sækir liðið Indiana heim í leik sem verður annar tveggja í beinni útsendingu á NBATV. Hinn leikurinn er viðureign LA Clippers og Minnesota Timberwolves.

Sport
Fréttamynd

Hamilton tryggði Detroit sigur í lokin

Tíu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í gærkvöldi og þar bar hæst sigurkarfa Rip Hamilton á lokasekúndunni gegn Boston í æsispennandi leik sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland.

Sport
Fréttamynd

Tveir leikir í beinni

Það verða tveir leikir í beinni útsendingu á NBA TV stöðinni á Digital Ísland í nótt. Fyrri leikurinn er viðureign Detroit Pistons og Boston Celtics, en síðari leikurinn er rimma Golden State Warriors og Utah Jazz. en þar eru á ferðinni lið sem ekki hafa sést mikið á skjánum hérlendis. Veislan byrjar fljótlega upp úr miðnætti.

Sport
Fréttamynd

O´Neal verður frá í 2-4 vikur

Shaquille O´Neal verður frá keppni í tvær til fjórar vikur með Miami Heat, eftir að hafa snúið sig illa á ökkla í leiknum við Indiana síðustu nótt. Þetta staðfestu læknar liðsins í dag. O´Neal hafði byrjað tímabilið nokkuð rólega og var aðeins með 15 stig og 6 fráköst að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum.

Sport
Fréttamynd

Hann er "úr hverfinu"

Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers hitti David Stern, framkvæmdastjóra NBA deildarinnar að máli fyrir leik Indiana og Miami í nótt og ekki var annað að sjá en að vel færi á með þeim. Stern dæmdi Artest sem kunnugt er í 73 leikja bann í fyrra fyrir slagsmál.

Sport
Fréttamynd

Stórleikur Bryant dugði ekki gegn Suns

Phoenix Suns lagði Los Angeles Lakers á útivelli í síðari leik kvöldsins í NBA í nótt 122-112. Phoenix hafði yfirburði í leiknum í gærkvöld, en liðið var þó næstum búið að glutra niður 17 stiga forystu í fjórða leikhluta eins og tveimur kvöldum áður gegn Dallas.

Sport
Fréttamynd

Númer Miller hengt upp í mars

Reggie Miller fær treyju sína hengda upp í rjáfur á heimavelli Indiana Pacers þann 31. mars næstkomandi í virðingarskyni fyrir farsælan feril hans, en Miller lék öll átján ár sín í deildinni með félaginu.

Sport
Fréttamynd

Indiana vann í Miami

Lið Indiana Pacers minnir rækilega á sig í upphafi leiktíðar í NBA og í nótt vann það góðan 105-102 útisigur á Miami Heat. Jermaine O'Neal skoraði 27 stig og hirti 9 fráköst fyrir Indiana, en nafni hans Shaquille O´Neal þurfti að fara meiddur af leikvelli í síðari hálfleiknum með snúinn ökkla og missir væntanlega af næsta leik Miami.

Sport
Fréttamynd

Flautukarfa Bryant tryggði Lakers sigur

Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Kobe Bryant tryggði Los Angeles Lakers sinn fyrsta sigur á tímabilinu með flautukörfu í framlengingu gegn Denver og LeBron James fór mikinn hjá Cleveland gegn New Orleans Hornets. Þá átti Michael Redd stórleik þegar Milwaukee vann annan sigurinn í röð á tveimur dögum.

Sport
Fréttamynd

Rafmögnuð spenna í opnunarleikjunum

Leiktíðin í NBA deildinni hófst í nótt með fjórum leikjum og ekki er hægt að segja annað en að byrjunin lofi góðu, því tveir leikjanna fóru í framlengingu og mjög óvænt úrslit urðu í fyrsta leiknum sem háður var í Oklahoma City.

Sport
Fréttamynd

Dunleavy samdi við Golden State

Framherjinn ungi Mike Dunleavy hjá Golden State Warriors, framlengdi í gær samning sinn við félagið um fimm ár og fær fyrir það um 44 milljónir dollara. Dunleavy var valinn þriðji í nýliðavalinu árið 2002 og fetaði með samningnum í fótspor Tayshaun Prince sem undirritaði svipaðan samning við Detroit skömmu áður.

Sport
Fréttamynd

Prince semur við Detroit

Framherjinn Tayshaun Prince hefur framlengt samning sinn við Detroit Pistons til fimm ára og fær fyrir það um 47 milljónir dollara í laun. Samningar milli umboðsmanns Prince og félagsins náðust á elleftu stundu, en ef það hefði ekki tekist, hefði Prince verði með lausa samninga næsta sumar.

Sport
Fréttamynd

Magloire til Milwaukee Bucks

Milwaukee Bucks var duglegt á leikmannamarkaði NBA í sumar og fékk meðal annars fyrsta valréttinn í nýliðavalinu. Í gærkvöldi nældi félagið svo í enn einn leikmanninn þegar það fékk til sín miðherjann Jamaal Magloire frá New Orleans, í skiptum fyrir framherjann Desmond Mason og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Flautukarfa Payton tryggði Miami sigur

Fjórir æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Gary Payton tryggði Miami Heat eins stigs sigur á Atlanta Hawks með körfu á síðustu sekúndu leiksins.

Sport
Fréttamynd

Þrír leikir í kvennakörfunni

Þrír leikir voru á dagskrá í 1. deild kvenna í körfuknattleik í dag. Keflavíkurstúlkur héldu uppteknum hætti og völtuðu yfir Breiðablik 106-50 á útivelli. Haukar sigruðu KR 82-34 og Grindavíkurstúlkur lögðu ÍS í hörkuleik í Grindavík, 75-67. Keflavík og Grindavík eru því bæði með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.

Sport
Fréttamynd

Bað um að dómur sinn yrði þyngdur

Menn ganga misjafnlega langt til að hylla íþróttastjörnur sem þeir hafa í uppáhaldi. Sennilega hafa fáir gengið jafn langt og Eric James Torpy sem var fundinn sekur um morð.

Sport
Fréttamynd

Auðvelt hjá Njarðvík og Fjölni

Njarðvíkingar unnu sannfærandi sigur á Hetti í Hópbílabikarnum í körfubolta á Egilsstöðum í gærkvöldi 107-77 og Fjölnir gerði góða ferð á Ísafjörð og lagði KFÍ 90-61.

Sport
Fréttamynd

Sex æfingaleikir í NBA í nótt

Sex æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar á meðal var leikur LA Lakers og Denver Nuggets, sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. Leikurinn var hin besta skemmtun, en það voru gestirnir frá Denver sem voru sterkari og sigruðu 105-94. Þá háðu Allen Iverson og LeBron James mikið einvígi í nótt.

Sport
Fréttamynd

Hópbílabikarinn í kvöld

Þremur leikjum er lokið í Hópbílabikarnu í körfubolta í kvöld. ÍRingar lögðu Tindastól 90-80 á Sauðárkróki, KR vann Hamar/Selfoss á útivelli 92-72 og Þór á Akureyri lagði Skallagrím 95-91. Úrslit úr leik Stjörnunnar og Keflavíkur verða tilkynnt fljótlega.

Sport
Fréttamynd

Fyrsta Evrópuleikur kvennaliðs

Haukar leika í kvöld fyrsta leik íslensks kvennaliðs í Evrópukeppni í körfubolta en bikarmeistararnir taka á móti spænska liðinu Caja Canarias. Þetta verður fyrsti leikur Hauka af sex í riðlinum en auk þess leika Haukar gegn ítölsku og frönsku liði.

Sport
Fréttamynd

Jordan viðurkennir mistök

Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan viðurkennir í viðtali við þáttinn "60 Minutes" á CBS sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum, að hann hafi gengið of langt í fjárhættuspilum á tíunda áratugnum, en segir að hann hafi náð að hætta að spila þegar honum þótti hann fara yfir strikið.

Sport
Fréttamynd

Tap hjá Haukastúlkum

Kvennalið Hauka spilaði sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld og máttu þola slæmt tap á heimavelli fyrir Caja Canarias, 97-58. Kesha Tardy skoraði 20 stig fyrir Haukaliðið og Helena Sverrisdóttir skoraði 15 stig og átti 9 stoðsendingar.

Sport
Fréttamynd

Fimm æfingaleikir í NBA í nótt

Átta æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt, þar sem liðin sem mættust í úrslitunum í fyrra, San Antonio Spurs og Detroit Pistons, töpuðu bæði leikjum sínum.

Sport
Fréttamynd

Hópbílabikarinn í kvöld

Tveir leikir verða á dagskrá í Hópbílabikarnum í körfubolta í kvöld, en þeir eru báðir í karlaflokki. Valur og Snæfell mætast klukkan 19:00 í íþróttahúsi Kennaraháskólans, en klukkan 21 hefst leikur Hauka og Grindavíkur að Ásvöllum. Fyrri leikir í 16-liða úrslitunum klárast annað kvöld, en síðari leikirnir verða allir á sunnudag.

Sport
Fréttamynd

Keflavík kjöldró KR

Keflavíkurstúlkur völtuðu yfir stöllur sínar í KR í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld 130-36. Þá unnu Grindavíkurstúlkur auðveldan 91-48 sigur á Breiðablik.

Sport